Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.02.2014, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 14.02.2014, Blaðsíða 14
Kynjahalli í myndbirtingum Við berum ábyrgð S heryl Sandberg, sem er ein áhrifamesta konan í banda-rísku viðskiptalífi, stofnaði í fyrra samtökin LeanIn í kjölfar útgáfu samnefndar bókar þar sem hún hvetur konur til að láta að sér kveða í viðskiptalífinu. Samtökin gerðu í vikunni samning við einn stærsta myndabanka verald- ar, GettyImages, um að bæta í myndabankann jákvæðum myndum af konum í hinum ýmsu aðstæðum. Samtökin höfðu áður gagnrýnt hið tak- markaða úrval sem bankinn býður upp á þegar leitað er að myndum af konum og bent á hversu miklar steríótýpur þar væri verið að setja fram. Þegar hefur bæst fjöldi frá- bærra mynda við safn Getty. Þar má nú finna stúlkur í ka- rate, stúlkur á hjólabrettum, konur í kafarabúningum, vöðvastæltar konur í líkamsrækt og konur að stýra fundi í fyrirtæki, svo fátt eitt sé nefnt. Við Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur í kynjafræði, heim- sóttum Námsgagnastofnun í vikunni í því skyni að skoða kynhlutverk í námsbókum íslenskra barna í kjölfar umræðu undanfarinna daga um kynja- halla í námsbókum eins og ég lýsi í fréttaskýringu hér í blaðinu. Eitt af því sem mér fannst hvað gagnrýniverðast í þeim bókum sem við skoðuðum voru myndskreytingar í bókinni Þjóð- félagsfræði – eins og ég kem reyndar inn á í fréttaskýringunni. Mér fannst magnað að í öll þau 13 ár sem bókin hefur verið notuð, hafi enginn kennari fundið hjá sér þörf að hafa samband við Námsgagnastofnun og benda á hversu óviðeigandi teikningarnar eru í bókinni, af þrýstnum konum í mínípilsum og hælaskóm. Eitt af því sem gagnrýnt hefur verið við bókina undanfarna daga er mynd af konu í gylltum pinnahælum að fæða barn. Myndin er einmitt tekin úr ofan- greindum myndabanka, Getty. Þó svo að ábyrgð þeirra sem fram- leiða og selja myndefnið sé rík er ábyrgð þeirra sem velja myndir og birta þær opinberlega, ýmist í kennsluefni, afþreyingarskyni, í auglýsingum eða fjölmiðlum enn ríkari. Það er okkar að velja myndefni með það fyrir augum að endurspegla þá heimsmynd sem við búum í eða jafnvel að ögra þeim staðalímyndum sem við reynum að brjótast út úr. Við getum valið að segja við teiknarann sem teiknaði konur í mínípilsum og hælum að hann verði að gera betur. Við getum valið að birta ekki mynd af manni sem gerir út á kvenfyrirlitn- ingu í kafla um það hvað gerir fólk að Íslendingum. Við höfum val – og við berum ábyrgð. Eins og ég sagði frá í pistli í síðasta blaði stofnaði ég í síðustu viku Fa- cebook-síðu undir heitinu fullklædd.is þar sem markmið mitt var einmitt að benda á fyrirmyndir í tónlistarmynd- böndum í ljósi þess að æ fleiri kven- kyns tónlistarmenn virðast fara þá leið að fækka fötum og dansa á eggjandi hátt til að vekja á sér athygli. Þúsundir hafa þegar „lækað“ síðuna sem sýnir hversu mikill áhugi er á jákvæðum fyrirmyndum. Dóttir mín, 8 ára, sem var í raun kveikjan að síðunni, er farin að spyrja mig hvort hún megi „fara á fullklædd“. Það leyfi ég henni með ánægju því þá veit ég að hún er ein- ungis að skoða myndbönd af tónlistar- konum sem ég vonast til að geti eflt sjálfsmynd hennar á jákvæðan hátt. Því allt skiptir máli. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Sjónarhóll Við getum valið að segja við teiknarann sem teiknaði konur í mínípilsum og hælum að hann verði að gera betur. Audi Q5. Notadrjúgur og glæsilegur. Fullkomlega samstillt hönnun. Skilvirkni er undirstöðuþáttur í hverju einasta smáatriði. Hönnun Audi Q5 skartar rennilegum línum sem gefa útlitinu sérlega tilkomu mikinn blæ. Staðalbúnaður er m.a. rafdrifin opnun og lokun á afturhlera, skyggðar rúður, 3ja svæða loftkæling, leður áklæði, bluetooth símkerfi, bi-xenon aðalljós og díóðuljós (LED). Audi Q5 kostar frá kr. 9.040.000. Dónaherinn óstöðvandi Menn hafa berað sig óumbeðnir fyrir framan mig. Ég hef ítrekað lent í rassa-, brjósta-, píkuklípum á skemmti- stöðum. Ég hef verið elt heim oftar en ég kæri mig um að muna. Vera Sölvadóttir skrifaði kjarnyrta grein kynferðislega áreitni dónakalla sem er svo lúmsk og almenn að hún telst vera norm. Spurðu Berlusconi Hvað má og þarf að ganga á til að ráðherra segi af sér? Bjarkey Gunnarsdóttir, Vinstri grænum, furðaði sig á þaul- setu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í stóli innanríkisráðherra í skugga „lekamálsins“. Illt er þeirra réttlæti Ég fæ skítkast alls staðar þar sem ég kem, meira að segja á pósthúsinu. Mig langar bara að loka mig og son minn inni, mig langar ekki út. Af hverju er fólk að dæma mig fyrir það sem barnsfaðir minn gerði? Á ég að þurfa að gjalda fyrir það? Og strákurinn minn líka. Birna Járnbrá Hrólfsdóttir, barnsmóðir manns sem setti ósmekklegar myndir af sér á netið, bað Grindvíkinga í opnu bréfi um að hugsa sinn gang og sýna aðgát í nærveru sálar.  Vikan Sem Var 14 viðhorf Helgin 14.-16. febrúar 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.