Fréttatíminn - 14.02.2014, Blaðsíða 1
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
Kínverskt mál og kínversk menn-ing er þema nýárshátíðar sem haldin verður á Háskólatorgi í Háskóla Íslands á morgun. Drekadans, ferðaráð, tedrykkja og tónlist er meðal þess sem stendur gestum til boða.
„Kínverska menningarhátíðin er tilvalið tækifæri til að kynnast betur kínverskri menningu, mat og siðum,“ segir Magnús Björns-son forstöðumaður Konfúsíusar-stofnunar Norðurljósa. Stofnunin stendur í ár rétt eins og í fyrra fyrir kínverskri menningarhátíð á Háskólatorgi Háskóla Íslands. Á hátíðinni er kínverska nýár-inu fagnað og haldið upp á lukt-arhátíð um leið. Kínverska nýárið gekk í garð þann 31. janúar síðast-liðinn en luktarhátíð má líkja við þrettándann hér á landi, hún er haldin í lok hátíðarhalda í tengsl-um við kínverska nýárið. Hér verður þessum tveimur há-tíðum slegið saman í skemmti-lega menningarhátíð en dag-skrá hennar hefst klukkan tvö á morgun laugardaginn 15. febrúar og stendur til hálf fimm.
„Þemað á hátíðinni í ár er kín-verskt mál og kínversk menning,“ segir Þorgerður Anna Björnsdótt-ir, viðburðarstjóri Konfúsíusar-stofnunar.
Meðal dagskrárliða eru drekadans, Heilsudrekinn sýnir kínverskar bardagalistir og KK verður með tónlistaratriði. „Við munum kynna kínverska matarmenningu, en á boðstólum verður kínverskur matur og te,“ segir Magnús. Nemendur í kín-verskum fræðum verða með bása þar sem gestir og gangandi geta, meðal annars, kynnt sér ferða-lög um Kína, kínverskt ritmál og skrautskrift.
„Fólk getur fengið nafnið sitt ritað með kínverskum táknum og uppi á sviðinu verður hægt að máta kínversk föt og láta taka mynd af sér. Sem er sérstaklega skemmtilegt fyrir börnin,“ segir Þorgerður Anna. „Þetta verður hátíð fyrir alla fjölskylduna og margt spennandi í gangi. Ég hvet alla til að mæta,“ segir Magnús að lokum.
-Kristín Clausen
Fagna kínverska nýárinu Kínversk fræði í HÍ
Mynd: Konfúsíusrastofnunin
8Heillaðist af Hong Kong
7Kínverskar bardagamyndir
3 Verðlaun fyrir Qigong
2 Heimsreisan breyttist í nám
Ljónadans er samofin kínverskri menningu og kínverskum hátíðarhöldum. Þessi mynd er tekin í Dalí í Yunnan-héraði í suðvestur Kína þar sem ferðalangar geta fylgst með ljóna-
dansi árið um kring. Kínverska nýárið gekk í garð 31. janúar í ár en Íslendingar geta tekið þátt í kínverskri nýárshátíð á Háskólatorgi í Háskóla Íslands á morgun.
Mynd: Þorgerður Anna Björnsdóttir
Þann 31. janúar gekk ár hestsins í garð og tók við af ári snáksins. Kín-
versk stjörnumerki eru tólf en í dýrahringnum eru rotta, uxi, tígur,
kanína, dreki, snákur, hestur, geit, api, hani, hundur og svín. Spurð-
ur um ár hestsins segir Magnús það vera ár vinnusemi en margt
drastískt geti gerst ef hestinum er hleypt á skeið. Samkvæmt fræðunum eru fólk sem fætt er á ári hestsins hæfileik-
aríkt í samskiptum, greint og hjartahlýtt. Fólk fætt á þessu ári tekur
sér líka gjarnan stöðu í sviðsljósinu. Veikleikar þeirra sem fæddir eru
á ári hestsins eru yfirborðsmennska og óþolinmæði. Þar sem kínverski stjörnuhringurinn hleypur á tólf árum var ár
hestsins síðast árið 2002. Hefðbundið kínverskt tímatal byggist á
tunglinu og er dagsetningin á áramótum því breytileg.
Hesturinn tekur við af snáknum
Frá hátíðarhöldunum í fyrra.
Kínversk fræði hafa verið kennd í Háskóla Íslands um nokkurra ára skeið. Auk þess stendur nem-endum til boða að taka kjörsvið viðskiptatengdrar kínversku sem sameinar nám í kínverskum fræðum og viðskiptafræði. Velji nemendur að taka 180 einingar í kínverskum fræðum eða viðskipta-tengdri kínversku stendur þeim til boða að ljúka náminu við kín-verskan háskóla.
Kjarni kínverskra fræða felst í kínverskunámi. Í náminu er kennt staðlað kínverskt talmál sem einnig er kennt við mandarín (embættismál fyrri tíma), guoyu („þjóðtunga“) og putonghua („al-menn tunga“). Í kínverskunáminu er markmiðið að gera nemendum kleift að skilja og tjá sig á hvers-dagslegu máli.
Þá hefur námið að geyma sam-félags- og menningartengd nám-skeið. Þar á meðal fær löng og við-burðarík saga Kína talsvert rými en nemendur fá einnig innsýn inn í samfélagsþróun í Kína, marg-brotið samfélag samtímans og kín-verskt viðskiptaumhverfi.
Útlendingar í augn-
aðgerðir hér
Allt að helmingi ódýrara
hér en í Danmörku.
Síða 4
Samræmd rafræn
SjÚkraSkrá
Allar opinberar heilbrigðis- stofnanir fá aðgang í sumar.
Síða 7
æSkudraumur að
Skera í fólk
Jóhannes Árnason starfar sem lýtalæknir í þremur löndum.
Síða 10
rannSaka krabba-
meinSmeðferðKannað verður hvort meðferð við brjóstakrabbameini henti öllum.
Síða 12
2. tölublað 2. árgangur
14. febrúar 2014
Íslenski
heilbrigðisklasinn
Fyrirtæki og stofnanir í heilbrigðisgeiranum hafa tekið sig saman um að skapa betri
starfsskilyrði. Hugmyndin er að heilbrigðistengd starfsemi geti orðið ein af undirstöðu
atvinnugreinunum á Íslandi í framtíðinni. Efla á læknistengda ferðaþjónustu og hlúa að hátæknifyrirtækjum.
Síða 8
e
in
n
ig
í
F
r
é
t
ta
t
ím
a
n
u
m
í
d
a
g
: S
am
tí
m
in
n
: g
u
n
n
ar
S
m
ár
i F
ja
ll
ar
u
m
g
er
la
í
m
at
væ
lu
m
–
K
o
m
d
u
e
lS
Ku
n
n
i á
ó
va
rt
á
v
al
en
tí
n
u
Sa
rd
ag
in
n
–
m
en
n
in
g
Viðtal Guðrún Gunnarsdóttir sönGkona setur börnin í fyrsta sæti
ókeypis
Ósáttir barnalæknar
leita lausna
Sérhæfðri fyrirburamóttöku
hefur nú verið lokað og öll
þjónusta við fyrirbura færst
yfir á heilsugæslu-
stöðvarnar.
síða 20
24Viðtal
lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Finnur sáttina
fyrir dauðann
Sigrún Þöll Þorsteins-
dóttir er aðeins 39 ára
gömul en er dauðvona
vegna krabbameins.
4
Fréttir
14.–16. febrúar 2014
7. tölublað 5. árgangur
gafst upp
á Hljómalind og
fór í garðyrkju
Kiddi kanína
snýr aftur
28Viðtal
30
Viðtal
tæklar adHd
með fitnessi
og hollum
mat
Sara
Djeddou
H e l G a r b l a ð
Á annan tug barna staðgöngumæðruð
Á annan tug barna hér á landi hafa fæðst fyrir tilstuðlan staðgöngumæðrunar þrátt fyrir að staðgöngumæðrun sé
ólögleg hér á landi. Foreldrar hafa ýmist fengið
staðgöngumóður erlendis eða hér á landi. For-
eldrar barna sem fædd eru með staðgöngu-
mæðrun lenda í miklum vandræðum þegar
kemur að skráningu barnsins í kerfið því ís-
lensk stjórnvöld hafa ekki en brugðist við þeim
veruleika að verðandi foreldrar sæki sér þjón-
ustu staðgöngumæðra erlendis. Engin opin-
ber skrá er til yfir fjölda barna fæddra með til-
stuðlan staðgöngumæðrunar en samkvæmt
heimildum Fréttatímans eru þau á annan tug
og hefur fjölgunin orðið mest á síðustu tveim-
ur árum. Samkvæmt heimildum Fréttatímans
munu fleiri íslensk börn fæðast fyrir tilstuðl-
an staðgöngumæðrunar í ár en nokkru sinni
fyrr og þó nokkur fjöldi foreldra bíður þess að
breyting verði á íslenskri löggjöf.
Óvissa ríkir um réttarstöðu þessara barna,
hverjir teljist foreldrar eða forsjármenn eða
hvort eða hvernig börnin eru skráð. Eins
og staðan er í dag eru flest börn skráð með
lögheimili hjá forsjármönnum og einhverjir
þessara foreldra eru í ættleiðingarferli. Soffía
Fransiska Heder, talskona Staðgöngu, stuðn-
ingsfélags staðgöngumæðrunar á Íslandi, veit
af foreldrum sem eru í ættleiðingarferli á sínu
eigin barni. Fimmtíu félagsmenn eru í Stað-
göngu, bæði foreldrar og fólk sem hefur áhuga
á ferlinu. -hh
Sjá nánar síðu 18
NÝJAR
VÖRUR
K R I N G L U N N I / S M Á R A L I N D
Kringlunni og Smáralind
Facebook.com/veromodaiceland
Instagram @veromodaiceland
NÝ SENDING
Peysa 6990
Toppur 6990
Buxur 7990
Guðrún Gunnarsdóttir söngkona fagnar þrjátíu ára söngafmæli um þessar mundir. Líf hennar tók stakkaskiptum fyrir
fimm árum þegar hún sagði skilið við barnsföður sinn og tók saman við sér tólf árum yngri mann, Hannes Friðbjörnsson,
trommara í hljómsveitinni Buff. Fjölskylda hennar er því dæmigerð, samsett stjúptengslafjölskylda því auk þriggja dætra
á hún stjúpson og einnig stjúpdóttur af fyrra hjónabandi sem á þrjú börn sem kalla hana ömmu.
Ástfangin og ánægð með lífið
tvö blöð fylgja
Fréttatímanum í dag
nýársblað
Konfúsíusar-
stofnunar og
líftíminn
fylgja blaðinu
í dag.