Sveitarstjórnarmál - 01.12.1946, Qupperneq 3
SVEITARSTJORNARMAL
Tímarit um málefni íslenzkra sveitarfélaga.
Ritstjóri:
jONAS GUÐMUNDSSON, eftirlitsmaður sveitarstjórnarmálefna.
Utanáskrift: .jSveitarstjórnarmál", Túngötulö, Reykjavík.
6. ÁRGANGUR
1946
2.-3. HEFTI
Frá þingi
Kaupstaðasambands Noregs.
I marzmánuði s. 1. barst stjórn Sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga bréf frá
stjórn Kaupstaðasambands Noregs, þar
sem hinu íslenzka sambandi var boðið
að senda tvo gesti á þing norska sam-
bandsins, sem halda skyldi dagana 10.
og 11. maí að Lillehammer í Guðhrands-
dal í Noregi. Stjórn Sambands isl. sveit-
arfélaga ákvað að jiiggja boðið og senda
a. m. k. einn fulltrúa á þiugið, og varð
það úr, að formaður sambandsins fœri,
þar sem hvort tveggja var, að þetta
var fyrsta boð um að sækja þing sams
konar sambanda erlendis, sem okkur
hafði borizt, og þarna var um að
ræða fyrsta sveitarfélagaþing Norð-
manna, sem haldið var eftir endurheimt
frelsis þeirra undan kúgun Hitlers, laldi
stjórnin sér skvlt að taka boðinu og
senda fulltrúa á þingið, þó það sýnilega
yrði miklum örðugleikum háð, eins og
öllum samgöngum við Noreg og Norður-
lönd þá var hátlað. Ekki var unnt að
l'á skipsferð, Jiví hið eina skip, sem gekk
milli Norðurlanda og íslands - Drottn-
ingin —• var þá þegar upppantað fram
á haust. Eina leiðin var að fá flugferð
til Parisar á vegum Bandaríkjahersins
liér og fljúga siðan þaðantil Kaupmanna-
hafnar. Varð það úr, að þessi leið var
valin. Ég lagði af stað í ferðalag þetta
um kvöldið 29. apríl. \’ar þá l'logið i 40
nianna Skymaster flugvél amerískri
beina leið og án viðkomu til Parísar. Sú
ferð tók aðeins 7 klukkustundir, og hefði
það fyrir fáum árum þóll frásagnar vert.
I París var dvalið í ö daga og síðan
haldið með flugvél lil Kaupmannahafnar.
Þar revndist því iniður ómögulegt að fá
gistingu lengur en eina nótt. vegna hótel-
vandræða, svo ég flaug áfrain næsta dag
til Oslóar. Þangað lcom ég um kvöldið
4. mai. Þar tók á móti mér á flugvell-
inum framkvæmdastjóri Kaupstaða-
sambands Noregs, Kjell T. Evers. I Oslo
var sama sagan með hótelherbergi eins
og í Kaupmannahöfn, að það var lielzt
ekki að fá. Mér tókst þó að fá þar inni
í þrjá daga, því að þing Kaupstaðasam-
bandsins átti að halda á Litlahamri, og
þar beið hótelherbergi eftir mér og öð,- •
um gestum og fulltrúum á þing sam-
bandsins.
Hinn 8. mai l'ór ég upp að Litlahamri.
Þar er einhver helzti hvíldar- og hress-
ingarstaður í Noregi, svo ekki var úr vegi
að evða þar einum degi áður en jiingið
byrjaði. Litlihamar er á Upplöndum eða
í Opland Fylke og slendur þar, sem Guð-
brandsdalslögurinn fellur út í Mjösen
(Mjóasjó). Er þar ljómandi l'agurt lands-
lag og heilna'ml loftslag, enda á bærinn