Sveitarstjórnarmál - 01.12.1946, Síða 4
SVEITARSTJ ÓRXAR MÁ f.
.‘)<S
Ping Kaupstaðasambands S'oregs að Litlahamri.
tilveru sína mikið að þakka gistihúsun-
um þar, sem starfa bæði sumar og vetur,
því skíðabrekkur eru þarna ágætar og
vetraríþróttir því mikið stundaðar.
Hið merkasta, sem séð verður á Litla-
hamri, er liið fagra byggðasafn þar,
„Sandvikske Samlinger". Hefur þeim ver-
ið haganlega komið fyrir á skógivaxinni
liæð, sem nefnist „Maihaugen", rétt hjá
bænum.
Hinn 10. maí kl. 10 f. h. átti að setja
þingið. Fulltrúar og gestir komu flestir
kvöldið áður, og voru gistihúsin strax
fullskipuð síðari hluta dags hins 9.
maí.
Þingið var haldið í húsakynnum Spari-
sjóðs Litlahamars, en þau eru hin rúm-
bezlu og vistlegustu. Fyrir framan húsið
blöktu Norðurlandafánarnir fimm, og
var þetta í fyrsta skipti sem íslenzki fán-
inn siist á slíkri samkomu, því ísland
hal’ði ekki áður sent fulltrúa á þing
hinna norrænu sveitarfélaga. Kl. 10 um
morguninn eru allir fulltrúarnir og gest-
ir mættir í hinum stóra samkomusal, og
formaður sambandsins, Ásbjöm Stens-
aker rektor frá Bergen, setur þingið með
ræðu. I ræðu sinni minntist hann þeirra
erfiðleika, sem sambandið hafði átt við að
stríða undir hernáminu, en þá var for-
maðurinn og raunar öll stjórnin rekin
l’rá, og Kvislingsstjórnin skipaði nýja
stjórn og sameinaði bæði samböndin,
Héraðasambandið og Kaupstaðasamband-
ið, í eitt samband með stjórnskipuðum
formanni og meðstjórnendum. Því næst
bauð hann gesti mótsins velkomna og
ininntist þá séstaklega íslands, sem nú
væri með í fyrsta sinn.
Erlendir gestir, er sátu þingið, voru
þessir: