Sveitarstjórnarmál - 01.12.1946, Qupperneq 7
SVEITARSTJÓRNARMÁL
<)1
máluni, en ráðherrann taldi nauðsyn-
legt að hafa eitthvert eftirlit með þeim,
þótt ekki væri nema samræmis vegna.
Enn fremur hafði sambandið haft
eftirlaun borgarstjóra til meðferðar,
hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir sjúk-
linga með langvinna sjúkdóma, laun
lannlækna í þjónustu bæjarfélaga, elds-
nevti, mjólkurmál, hervörð og skaða-
bætur fvrir skemmdir Þjóðverja, auk
ýmissa smærri atriða.
Eftir nokkrar umræður var skýrsla
stjórnarinnar samþykkt og reikningar
sambandsins sömuleiðis.
Bæjarstjórinn í Árósum, Sv. lTnsnack
Larsen, hóf umræður um lögin um vist-
un (Indkvartering) hermanna, og var
samþykkt áskorun til þings og stjórnar
um að breyta þeim lögum í þá átt, að
ríkið eitt bæri kostnað af vistun her-
manna, sem innkallaðir eru. Emil Rotoft,
horgarstjóri í Fredrikssund, hóf umræður
um endurskoðun á reglum um jöfnunar-
sjóð sveitarfélaga og vissum köflum
skattalaganna. Iv. Bjerregaard, fram-
kvæmdastjóri fasteigna Kaupmannahafn-
ar, flutti erindi um framlíðar íbúðar-
húsabýggingar, og fannst mér minna á
því að græða en ég hafði vonazt eftir,
með hliðsjón af því, er ég hafði séð og
heyrt á byggingarmálaráðstefnuni okkar.
Að umræðum um þetta erindi loknum
báru fulltrúar annarra landa fram kveðj-
ur sínar eftir stafrófsröð, og síðan vorn
fundarmenn allir gestir kaupstaðasam-
bandsins í veizlu á fögrum strandstað,
rétt utan við Árósa, er Varna heitir.
Að riiorgni næsta dags voru rædd raf-
magnsmál kaupstaðanna og óskir sveita
og kauptúna um að verða meðeigendur í
rafmagnsstöðvum stærri bæjanna. Var þá
komið að kosningum, og var þeim lokið
fyrir hádegi.
Vi.ð kosningarnar þótti það marlc-
verðast, að H. P. Hansen, sem verið hef-
ur formaður sambandsins síðan 1929,
var nú ekki kjörgengur til endurkosn-
inga vegna þess, að hann var ekki lengur
í bæjarstjórn í sinum heimabæ, Slagelse.
//. /'. Hansen.
1 hans stað var kjörinn formaður C. E.
Christiansen, landsþingmaður frá Maribo.
Að kosningum loknum stóð varafor-
maðurinn V. Juhl upp og tilkynnti, að
fulltrúafundurinn hefði einróma kjörið
H. P. Hansen heiðursfélaga kaupstaða-
sambandsins, í þakklætisskyni fvrir það,
sem hann hefur gert fyrir sambandið.
Hann hafði verið fulltrúi á fundum þess
í 33 ár, í stjórn þess í 29 ár og formaður
í 17 ár. Enn frernur hefur hann verið i
stjórn Tjörufélags gasstöðvanna í 9 ár,
í stjórn Samtryggingar kaupstaðanna í
25 ár, og lengst af formaður, formaður
Starfslaunasjóðs í 18 ár og í stjórn
Félagsmáladeildar kaupstaðasambands-
ins í 9 ár.
í ræðu, sem innanríkisráðherrann hélt
fvrir H. P. Hansen i kvöldveizlunni fyrri
fundardaginn, sagði hann, að þegar kaup-
staðasambandið væri nefnt, þá stæði H.
P. Hansen fyrir hugarsjónum manna, og
ef H. P. Hansen væri nefndur, þá beind-
ist hugurinn að kaupstaðasambandinu.
Hann sagði enn fremur, að þótt þeir H.
P. Hansen væru andstæðingar í stjórn-
málum, þá liefði sér ávallt þótt gott að
vinna ineð honum, vegna þess hve þraut-