Sveitarstjórnarmál - 01.10.1959, Qupperneq 12
10
SVEITARSTJÓRNARMÁi
anna og heiti þeirrar samþykktar breytt til
samræmis við það.
Leggur þingið til, að launin falli innan
rannna 1.—4. ilokks í drögum þeim að sam-
ræmdri launasamþykkt, sem nú liafa verið
gerð fyrir kaupstaði.
Felur þingið stjórn sambandsins að vinna
að þessu máli.
Samþykkt samhljóða.
c. Sveitarstjórnarlaganefnd.
Tillögur nefndarinnar:
I.
Landsþing Sambands íslenzkra sveitar-
félaga fagnar því, að ríkisstjórnin hefur nú
orðið við margendurteknum áskorunum
sambandsins um að skipa nefnd til að end-
urskoða sveitarstjórnarlöggjöfina og semja
frumvarp eða frumvörp um þau efni.
Landsþing sambandsins hafa urn mörg
undanfarin ár livatt til þess, að gagngerð
endurskoðun yrði látin fara fram á sveitar-
stjórnarlöggjöfinni og að ný löggjöf yrði
sett um tekjuöflun sveitarfélaganna og lagt
fram ýmsar tillögur >um æskilegar breyt-
ingar á þessum efnum.
Sambandsþingið hefði því getað vænzt
þess, að samráð yrði haft við sambandið
um skipun nefndar til að endurskoða sveit-
arstjórnarlöggjöfina og telur það miður
farið að nefndin skyldi skipuð án þess að
sambándinu gæfist kostur á að tilnefna
a. m. k. einn fulltrúa í nefndina.
Umræður urðu um tillöguna. Komu fram
í umræðunum tvær breytingartillögur, önn-
ur um að vísa aðaltillögunni aftur til nefnd-
arinnar. Var hún felld með öllum þorra
atkvæða. Hin breytingartillagan, sem er
viðbótartillaga við aðaltillöguna, var sam-
þykkt með meginþorra atkvæða gegn 6.
Tillagan var þannig:
„Lýsir sambandsþingið þessu yfir, án þess
að í yfirlýsingunni felist vantraust á þá
menn, sem eru í nefndinni.“
Var síðan aðaltillagan með viðbótartil-
lögunni samþykkt samhljóða.
II.
6. landsþing Sambands íslenzkra sveitar-
félaga fagnar frumvarpi því til laga um lög-
heimili, sem lagt hefur verið fram á Al-
þingi, og telur ýmis ákvæði þess spor í
rétta átt, hins vegar telur 6. landsþing Sam-
bands íslenzkra sveitarfélaga nokkra galla
á því og að ósamræmis gæti í hinum ýmsu
greinum þess og felur því stjórn sambands-
ins að athuga frumvarpið nánar.
Athuga þarf m. a.:
1. Nánari skilgreining á löglieimili og
heimili.
2. Ekki er víst að saman fari ákvæði 3.
gr. um tímalengd atvinnu og hreinar
árstekjur.
Samþykkt samhljóða.
d. Fjárhagsnefnd.
Framsögumaður Stefán Jónsson, Hafnar-
firði.
Tillögur nefndarinnar
I.
Nefndin leggur til, að reikningar sam-
bandsins árin 1955—1958 verði samþykktir.
Samþykkt í einu liljóði.
II.
Nefndin leggur til, að tillaga stjórnar-
innar um hækkun árgjalds til sambandsins
verði hækkað í kr. 1.50 fyrir hvern íbúa
og að hækkunin verði látin gilda fyrir árið
1959.
Svofelld breyting var gerð á síðari tillögu
fjárhagsnefndar: