Sveitarstjórnarmál - 01.10.1959, Blaðsíða 25
SVEI l ARSTJÓRNARMÁL
23
Avarp félagsmálaráðherra.
H’erra þingforseti, virðulegir þingfulltrú-
ar og gestir.
Mér er það raikill heiður og ánægja, að
ávarpa landsþing Sarabands íslenzkra sveit-
arfélaga, liið 6. í röðinni, sem háð hefur
verið frá stofnun sambandsins.
Samband íslenzkra sveitarfélaga er ung
stofnun, aðeins 14 ára gömul, að því er
mér er tjáð, eða einu ári yngri en lýðveldi
á íslandi hið síðara. Engu að síður hefur
það unnið sér mikilsverðan þegnrétt í liinu
íslenzka þjóðfélagi. Ber þar fyrst og fremst
tvennt til. í fyrsta lagi hafa valizt til for-
ystu í sambandinu harðduglegir áhuga-
nrenn, sem átt hafa hlut að því að móta
það og hazla því völl innan þjóðfélagsins
og stofnana þess. Ég ætla að engum sé órétt-
ur ger, þó einn þessara manna sé nefndur
í Jtessu sambandi, öðrura fremur, en það
er Jónas Guðmundsson, sem verið hefur for-
maður stjórnar sambandsins frá upphafi og
frarakværadastjóri þess um skeið. Hann var
á sínum tíma frumkvöðull þess, að sam-
bandið var stofnað og liefur síðan með sín-
um alkunna dugnaði og hyggindum átt sinn
drjúga hlut að Jrví að móta starfsemi þess
og uppbyggingu.
Hin ástæðan fyrir því, að Samband ís-
lenzkra sveitarfélaga hefur öðlazt mikils-
verðan Jjegnrétt í þjóðfélaginu, er sú, að
Jiað hefur þýðingarmiklu hlutverki að
gegna. Samkvæmt lögum sambandsins er
hlutverk Jress fjórþætt.
í fyrsta lagi, að vinna að aukinni fræðslu
um málefni íslenzkra sveitarfélaga og efla
samstarf þeirra í milli.
í öðru lagi, að koma fram sem heild í
málefnunr sveitarfélaganna, þegar þess ger-
ist Jxirf.
í þriðja lagi, að vinna að því, að æðri
stjórnarvöld taki réttmætt tillit til óska og
Jtarla sveitarfélaganna, m. a. með því að
fulltrúar þeirra séu tilkvaddir, er mikilvæg-
ar ákvarðanir eru teknar um málefni, sem
sérstaklega varða sveitarfélögin.
Og í fjórða lagi, að vinna að auknu sam-
starfi um alhliða menningarmál í hinum
ýmsu sveitarfélögum.
Það liggur í augum uppi, að hér er
ekkert smáræðis verkefni, sem hvílir á herð-
um Sambands íslenzkra sveitarfélaga, en það
og stjórn Jjess hefur látið til sín taka á öll-
um þessunt sviðum og ég ætla með góðum