Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1959, Blaðsíða 28

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1959, Blaðsíða 28
26 SVEITARSTJÓRN AR M Á L árangri. Margt ai því er e. t. v. almenningi lítt kunnugt, en sumt liggur hverjum manni í augum uppi, svo sem hið myndarlega tíma- rit, Sveitarstjórnarmál, sem samband sveit- arfélaganna hefur gefið út allar götur síðan 1947, og ég vil segja, að hverjum manni, sem við sveitarstjórn fæst, sé bráðnauðsyn- leg handbók, til þess að geta fylgzt með því, sem gerist á sviði sveitarstjórnarmála á landinu á hverjum tíma. Þá minni ég á það hér, að Samband ís- ienzkra sveitarfélaga hefur haft bein og óbein afskipti af og áhrif á ýmis löggjafar- málefni sveitarfélaganna þeim til hagsbóta og á vafalaust eftir að gera það í enn rík- ara mæli. Slíkt er í alla staði eðlilegt og sjálfsagt, enda eru þingfulltrúar og stjórn- endur sveitarfélagasambandsins kunnugri þeim málum en aðrir og vita bezt, hvar skórinn kreppir. Sveitarfélögin eru mjög gamlar stofnan- ir. Ýmsir fræðimenn telja, að hrepparnir sétt lil komnir á landnámstíð. Sé það rétt, eru þeir liinar elztu félagslegu stofnanir á fslandi aðrar en hjúskapur og heimilishald, sem hvorttveggja er raunar byggt á sifjum og samningum. Hins vegar hafa sveitarfé- lögin — hrepparnir fornu — tekið margvís- legum breytingum af eðlilegum ástæðum. Verkefni þeirra hafa tekið breytingum með þróun þjóðfélagsins gegnum aldirnar. Stjórn þeirra og staðartakmörk hafa sömu- leiðis tekið breytingum af sömu ástæðum. í hinum fornu þjóðveldislögum, Grágás, eru ákvæði um það, að í löghrepp skuli vera 20 bændur hið fæsta og þurfti lög- réttuleyfi til að hreppar með færri bænd- ur gæti haldizt. Hreppsnefndarmenn r'oru kallaðir sókn- armenn og verkefni þeirra var að taka við tíundarframtölum manna og eiðfestingu þeirra, skipta þurfamannatíund, sem var fjórði hluti af tíund hvers gjaldanda. Enn fremur skiptu þeir matgjöfum, sem svo voru nefndar, og ráðstöfuðu þurfamönnum. Nokkurra fleiri verkefna þeirra er getið, en skipting fátækratíundar og matgjafa var fyrst og fremst við það miðuð, að koma í veg fyrir að menn yrðu framfærsluþurfar. Hrepparnir höfðu og öðru hlutverki að gegna, sem var einstætt, a. m. k. meðal norrænna þjóða, en það var gagnkvæm ábyrgð hreppsmanna á vissu tjóni, er að höndum kynni að bera. Þetta var gagn- kvæm búfjárábyrgð og eldsvoðaábvrgð. Bú- fjárábyrgðin tók til þess, ef nautgripir féllu af sótt og greiddust bætur, ef fjórðungur penings féll eða meira. Eldsvoðaábyrgð tók til stofu, eldhúss og búrs og einnig til kirkju eða bænahúss. Skaðabótum var jafn- að niður á bændur eftir fjáreign þeirra. Tilgangur með þessari gagnkvæmu ábyrgð- artryggingu hefur án efa verið sá, að koma í veg fyrir að slík óhöpp gerðu menn að þurfamönnum. Þegar fram liðu stundir, bættust við ný og ný hlutverk sveitarfélaganna, svo sem fjallskil, vega- og brúargerðir, auk allra hinna fjölmörgu verkefna, sem sveitar- og bæjarfélög hafa í dag og ykkur öllum eru kunn. Nú er svo komið, að bæjar- og sveitar- félögin ráðstafa til sinna þarfa talsvert veru- legum hluta af öllum þjóðartekjunum og bæjar- og sveitarfélög skipa svo háan sess í þjóðfélaginu, að réttur þeirra til þess að ráða sjálf málefnum sínum er verndaður af ákvæðum sjálfrar stjórnarskrárinnar. Það hefur að sjálfsögðu giundvallarþýð- ingu fyrir þjóðina, að þessa réttar sveitar- félaganna til þess að ráða sjálf málefnum sínum sé neytt með skynsemi og fyrir- hyggju og með velferð þegnanna fyrir aug- um. Menn greinir að sjálfsögðu á um þessa hluti, menn greinir eðlilega á um, hvað sé skynsamlegt og æskilegt og livort þetta eða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.