Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Blaðsíða 13
icehotel.is
Auglýsing
um styrki úr Listskreytingasjóði ríkisins árið 2003
Stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins auglýsir eftir umsóknum um styrki til
listskreytinga í opinberum byggingum er falla undir lög nr. 46/1998 um
Listskreytingasjóð ríkisins.
11. gr. laganna segir eftirfarandi: „Opinberar byggingar merkja í lögum
þessum allar þær byggingar sem ríkissjóður fjármagnar að nokkru eða öllu
leyti".
Listskreytingasjóður ríkisins veitir ekki styrki til listaverka sem
umsóknaraðili er þegar búinn að kaupa eða ráða listamann til að vinna,
án atbeina sjóðsins, né til verkefna þar sem dómnefnd hefur þegar verið
skipuð. ( þessu sambandi vísast til 5. gr. áðurnefndra laga þar sem segir:
„Stjórn Listskreytingasjóðs skal vera til ráðgjafar um listskreytingu
þeirra mannvirkja sem lög þessi taka til og hvernig staðið skuli að
framkvæmdum".
Eldri umsóknir þarf að endurnýja
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2003.
Umsóknareyðublöð og allar frekari upplýsingar varðandi lög og reglur
Listskreytingasjóðs ríkisins fást á skrifstofu 5ÍM, Sambands íslenskra
myndlistarmanna, Hafnarstræti 16,101 Reykjavík., s. 551 1346, fax. 562
6656, veffang: www.sim.is netfang:sim@simnet.is og á heimasíðu
Menntamálaráðuneytisins www.mrn.stjr.is
LISTSKREYTINGASJÓÐUR
Gíeðiíegt
nýtt árí
Reykjavíkuitforg • Umhverfis- og tæknisvið
Skrifstofa borgarverkfrœðings Fasteignastofa
Umhverfis- og heilbrigðisstofa Gatnamálastofa
Verkfrœðistofa
----- 13