Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Blaðsíða 11
gagnaskrár og gagnaskipta innan og á
milli stjórnsýslustiga hins opinbera. í
fjórða lagi menntun og fræðslu og í
fimmta Iagi mörkun gagnastefnu. Halldór
sagði fyrstu þrjá þættina tengjast innviðum
umhverfis landsupplýsinga hér á landi en
síðasti þátturinn þeirri vinnu sem unnin
hefur verið á vegum fjármálaráðuneytis-
ins.
í framvarðasveit í notkun upp-
lýsingatækni
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sagði meðal
annars í erindi sínu á ráðstefnunni að
Samband íslenskra sveitarfélaga hafi sett
sér þá stefnu að vera í framvarðasveit í
notkun upplýsingatækni og rafrænnar
þjónustu sem skili íbúum sveitarfélaganna
ávinningi og einnig að sambandið muni
beita sér fyrir eflingu grunnkerfa fyrir
gagnaflutning um landið allt. Hann sagði
sambandið leggja áherslu á að íbúar geti
nýtt sér þjónustu sveitarfélaganna án tillits
til búsetu og að sveit-
arfélögin verði á hverj-
um tíma sem hæfust til
þess að mæta kröfum
og væntingum íbú-
anna. Hlutverk sam-
bandsins að þessu
leyti væri að vera öfl-
ugur vettvangur sam-
ráðs upplýsingaöflunar og þekkingarmiðl-
unar fyrir sveitarfélögin í landinu.
Samvinna nauðsynleg
Vilhjálmur sagði gildi landsupplýsinga fyr-
ir sveitarfélögin einkum felast í tvennu.
Annars vegar í því að bæta ákvarðanatöku
sveitarstjórnarmanna með því að bæta
upplýsingar og hins vegar í því að veita
íbúunum betri þjónustu. Hann sagði
þennan málaflokk með þeim hætti að
hann krefðist samvinnu fjölmargra; ekki
aðeins sveitarfélaganna heldur einnig rík-
isstofnana og einkafyrirtækja. í því efni
verði að skilgreina þörf, einfalda verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga, marka
stefnu um formleg samskipti og samvinnu
um málefni sem varða hagsmuni sveitarfé-
laganna og tryggja að saman fari ábyrgð á
þjónustu og framkvæmd og fjárhagur. Vil-
hjálmur sagði að treysti ríkið sér ekki til
þess að veita sveitarfélögunum þjónustu á
sviði kortamála með eðlilegum hætti geti
það kallað á formlegar breytingar á verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga á þessu
sviði þrátt fyrir að í gildi séu lög um land-
mælingar og kortagerð, sem kveða skýrt á
um hlutverk Landmælinga íslands sem
kortastofnunar íslands.
11