Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Blaðsíða 9

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Blaðsíða 9
pressi það og fargi á viðurkenndan hátt. Vatnsból og frárennslis- mál þurfi líka alls staðar að vera í góðu lagi. Ragnhildur segir að flest sveitarfélög hafi tekið vel við sér í sambandi við móttöku og förgun spilliefna en Ijóst sé að aðstoðar sé víða þörf við hreinsun og flutning brotajárns af sveitabæjum. Áætlað er að um átta til tíu tonn af brotajárni séu að meðal- tali á hverjum sveitabæ þar sem aldrei hefur verið farið í brotajárnshreinsun og Ijóst að kostnaðarsamt er að flytja það. Níels Árni Lund, formaður verkefnisstjórnar, gerði niðurrif gamalla húsa að umtalsefni á ráðstefnunni. Hann sagði margar bygg- ingar til sveita gerðar úr varanlegum byggingarefn- um sem tímans tönn vinni hægt á eftir að notkun þeirra og umhirðu sé hætt. Slíkar byggingar þurfi að rífa því hálfhrundar húsarústir séu engum til prýði. Hátt á annað hundrað tengiliðir Þrír starfsmenn unnu að kynn- ingu og leiðbeiningarþjónustu vegna Fegurri sveita á liðnu sumri. Auk Ragnhildar ferðuðust þær Hildur Stefánsdóttir, frá Laxárdal í Norður-Þingeyjarsýslu, og Sig- ríður Jóhannesdóttir, frá Gunnarsstöðum í sömu sýslu, um landið og kynntu ábúendum jarða verkefnið en þær stunda báðar nám við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Á ráðstefnunni á Sel- fossi gerðu þær ásamt Ragnhildi grein fyrir starfi sínu og sam- skiptum við ábúendur, sveitarstjórnarmenn og aðra þátttakendur og sögðu þau samskipti undantekningalítið hafa verið mjög góð. Nauðsynlegt að halda áfram Á ráðstefnunni á Selfossi kom fram mikill vilji til þess að tryggja framhald þessa verkefnis í einhverri mynd eftir formleg lok þess nú um áramótin. Fundarmenn voru sam- mála um að þótt góður ár- angur hafi náðst sé starfið rétt að byrja og því Ijúki væntanlega aidrei. í um- ræðum lagði Magnús B. Jónsson, rektor Landbún- aðarháskólans á Hvann- eyri, áherslu á að fram- hald þess starfs sem unnið hefur verið yrði vistað hjá einhverri tiltekinni stofnun eða samtök- um. Hann nefndi þrjá kosti sem honum finnst að komið geti til greina í því sambandi; Bænda- samtökin, Samband íslenskra sveitarfélaga og Landbúnaðar- háskólann á Hvanneyri. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra lagði einnig áherslu á að áfram yrði haldið og hét áfram- haldandi stuðningi sínum við þetta verkefni. Frekari upplýsingar um verkefnið Fegurri sveitir má finna á heimsíðu þess á Netinu, undir slóðinni www.simnet.is/umhverfi Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra afhendir Ara Teitssyni, formanni Bændasamtaka ís- lands, viðurkenningu verkefnisins til samtakanna. Átaksverkefninu sem slíku lauk nú um áramótin en mikill vilji er til þess að halda starfinu áfram. Nýr framkvæmdastjóri Vara- sjóðs húsnæðismála Sigurður Árnason hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Varasjóðs húsnæðismála og tekur hann við því starfi af Garðari Jóns- syni, skrifstofustjóra í félagsmálaráðuneyt- inu. Sjóðurinn hefur haft starfsemi sína í félagsmálaráðuneytinu frá því að hann var stofnaður 1. ágúst á þessu ári en hefur nú aðsetur á Sauðárkróki. Hlutverk sjóðsins er að veita fé til sveit- arfélaga og félaga á þeirra vegum vegna félagslegra íbúða en jafnframt hefur sjóð- urinn tekið við öllum réttindum og skyld- um Varasjóðs viðbótarlána sem lagður hefur verið niður. Nánar tiltekið er hlut- verk sjóðsins skilgreint þannig í 44. grein húsnæðislaga nr. 44/1998 með síðari breytingum: • Að veita rekstrarframlög til sveitarfé- laga vegna hallareksturs félagslegra leiguíbúða eða íbúða sem hafa stað- ið auðar í lengri tíma. • Að veita framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði. • Að hafa umsýslu með Tryggingar- sjóði vegna byggingargalla. • Að gera tillögur til íbúðalánasjóðs um að afskrifa að hluta eða að öllu leyti útistandandi veðkröfur íbúða- lánasjóðs á ákveðnum félagslegum leiguíbúðum sveitarfélaga í þeim til- vikum þar sem leiguíbúðir, sem standa að veði fyrir viðkomandi kröfum, verða ekki leigðar út vegna slæms ástands þeirra. Að veita ráðgjöf og leiðbeiningar þeim sveitarfélögum sem vilja breyta um rekstrarform félagslegra leigu- íbúða eða hagræða í rekstri þeirra. Að sjá um upplýsingavinnslu og út- tekt á árangri af verkefnum sjóðsins. 9

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.