Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Blaðsíða 5

Sveitarstjórnarmál - 01.01.2003, Blaðsíða 5
Forystugrein Sveitarfélögin, lýðræðið og íbúarnir Á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfé- laga, sem haldið var á Akureyri í lok sept- ember sl., fjallaði Styrmir Cunnarson, rit- stjóri Morgunblaðsins, í afar athyglisverðri ræðu um þjóðfélagsumræðuna á íslandi undanfarna áratugi, samskipti hins al- menna borgara og opinberra aðila og á hvern hátt tölvu- og tæknibylting síðustu ára hefur í raun gjörbylt samskiptaferli stjórnmálamanna og almennings. Hann sagði að eftir að íslenskt þjóðfélag fór að færast í eðlilegt horf eftir fjörutíu ára átök kalda stríðsins og það sem því fylgdi þótt- ust þeir á Morgunblaðinu merkja nýja strauma í samfélaginu, sem einkenndust af auknum áhuga Iesenda blaðsins á sínu nánasta umhverfi. Einnig nefndi Styrmir að breytingar á þjóðlífinu á síðasta rúmum áratug hefðu orðið til að auka vægi sveitar- stjórnarstigsins í stjórnkerfi okkar og hvatti sveitarstjórnarmenn til að beita sér fyrir aukinni þátttöku íbúanna í ákvarðanatöku um stór og mikilvæg sveitarstjórnarmál, sem varðaði hagsmuni og framtíð þeirra. Óhætt er að fullyrða að sveitarstjórnar- menn gera sér góða grein fyrir þeim miklu breytingum, sem orðið hafa í umhverfi sveitarfélaganna og ekki síður á hlutverki og ábyrgð sveitarstjórnarmanna. Aukið upplýsingastreymi, skýrari réttarstaða íbú- anna og aukinn áhugi þeirra á viðfangsefn- um sveitarfélaganna kallar á meira samráð sveitarstjórna og íbúa og opnari og lýðræð- islegri stjórnsýslu. Sveitarstjórnarmenn þurfa nú að takast á við gjörbreytt umhverfi frá því sem áður var og til þeirra eru gerðar sífellt meiri kröfur um vönduð og fagleg vinnubrögð. Lýðræðislegir stjórnarhættir sveitarfélag- anna felast í því að íbúarnir séu vel upp- lýstir um stjórnsýslu viðkomandi sveitarfé- lags, erindi þeirra séu afgreidd eins fljótt og kostur er með rökstuddum hætti og jafn- ræðis sé gætt í hvívetna. Þeir felast einnig í því að stærri mál, svo sem skipulag fram- tíðarbyggðar, breytingar á skipulagi í eldri hverfum, skóla- og leikskólamál, aðgerðir í umhverfismálum og ýmis stærri verkefni í samgöngumálum séu kynnt íbúunum á upphafsstigum með skýrum hætti og að sjónarmið þeirra og athugasemdir séu í framhaldinu rædd á jafnræðisgrunni. í raun má fullyrða að því betri og lýð- ræðislegri sem stjórnsýsla sveitarfélaganna er, því líklegra er að traust og virðing íbú- anna gagnvart kjörnum fulltrúum aukist og styrkur sveitarfélaganna eflist. íbúarnir vilja eðlilega að góð þjónusta sé til staðar í sínu sveitarfélagi og sífellt eru gerðar meiri kröf- ur um bætta og eflda þjónustu. Þó er Ijóst að útilokað er að mæta öllum þessum kröf- um á þeim tíma sem þeirra er óskað. Því er mikilvægt að markvisst samstarf og samráð milli sveitarstjórna og íbúa sé stöðugt þannig að báðir aðilar geti sameiginlega gert sér grein fyrir möguleikum sveitar- stjórnarinnar til aðgerða í tilteknum mál- um. í mjög stórum málum, sem hafa mikla þýðingu fyrir framtíðarhagsmuni einstakara sveitarfélaga, er nánast allt sem mælir með því að slík mál séu lögð undir atkvæði íbú- anna, enda viðkomandi mál vel kynnt og spurningar skýrar. í ræðu sinni á landsþinginu sagði Styrm- ir Gunnarsson ritstjóri eftirfarandi og undir það skal tekið: „Við fslendingar erum fá- menn en vel menntuð og vel upplýst þjóð. Við erum í hópi best efnuðu þjóða heims. Við erum í hópi þeirra þjóða, sem lengst eru komnar í að hagnýta hina nýju upplýs- ingatækni. Við höfum þar af leiðandi ein- stakt tækifæri til þess að verða í fremstu röð þeirra lýðræðisríkja heims, sem taka sér fyrir hendur að þróa lýðræði 21. aldar- innar í átt til þess, sem hér hefur verið lýst, að hinn almenni borgari sjálfur taki fullan og milliliðalausan þátt í ákvörðunum um þau málefni, sem mestu skipta hvort sem er á vettvangi sveitarstjórna eða á landsvísu. Það er hins vegar hyggilegt að þróa þessa stjórnarhætti upp á sveitarstjórnarstiginu. Þar er hægt að prófa þá og slípa vankant- ana af þeim áður en lengra er haldið." Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður SVEITAR STJ ÓRNARMÁL Útgefandi: Samband íslenskra sveitarfélaga Háaleitisbraut 11-13 • 108 Reykjavík. Sími: 515 4900 • Bréfasími: 515 4903 Netfang: samband@samband.is • Veffang: www.samband.is Ritstjórar: Magnús Karel Hannesson (ábm.) magnus@samband.is Bragi V. Bergmann bragi@fremri.is Auglýsingar: P. J. Markaðs- og auglýsingaþjónusta Símar: 566 8262 & 861 8262 Netfang: pallj@islandia.is Umbrot og prentun: Alprent, Glerárgötu 24, 600 Akureyri, s. 462 2844. Dreifing: íslandspóstur Forsíðumyndin: Reykjavíkurtjörn skartaði sínu fegursta í skammdeginu undir lok nýliðins árs. - Mynd: Þórður Ingimarsson. Ritstjórn: Fremri kynningarþjónusta Furuvöllum 13 600 Akureyri Sími 461 3666 • Bréfasími: 461 3667 Netfang: fremri@fremri.is Tímaritið Sveitarstjórnarmál kemur út mánaðarlega, að undanskildum júlí- og ágústmánuði, í 3.500 eintökum. Áskriftarsíminn er 461 3666. 5

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.