Sveitarstjórnarmál - 01.04.2003, Side 3
Byggt til framtíöar
Byggingahlutar úr forsteyptum einingum hefur aukist mjög mikið á liðnum árum. Kostir eru margir
og má þar nefna styttri byggingartíma, þar sem framleiðsla og uppsetning gengur mun hraðar.
Minna umstang er á byggingarstað og minna rakamagn í byggingu sem þýðir að húsið er fyrr
tilbúið til innréttinga og notkunar. Einingaverksmiðjan hefur framleitt einingar í fjölda skóla, m.a.
Hjallaskóla, Öldutúnsskóla, Grunnskóla Reykjanesbæjar, Grunnskólann Heiðarbyggð,
Borgarholtsskóla, Engidalsskóla, Grandaskóla, Borgarskóla, Foldaskóla, Víkurskóla, Aslandsskóla
og Lækjarskóla. Það er góður vitnisburður um notagildi eininga. Þar byggja menn með framtfðina
í huga.
Breiðhöfða 10 Fax: 587 7775
IIOReykjavík e-mail: ev@ev.is
Sími: 587 7770 www.ev.is
EININGAVERKSMIÐJAN
Til fyrirtækja og stofnana
Styrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði
til sérstakra verkefna á vegum svæðisvinnumiðlana
Styrkhœf verkefni_________________________________ > l/in nhim |i i ill 'y'
• Sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök geta sótt um
styrk til sérstakra verkefna.
• Verkefnið skal vera unnið innan umdæmis svæðisvinnumiðlunar.
• Ráða á vinnuafl af atvinnuleysisskrá í umdæmi svæðisvinnu-
miðlunar í samvinnu við Svæðisvinnumiðlun.
• Timabundin verkefni umfram venjuleg umsvif.
• Verkefni sem ella væru ekki framkvæmd í launaðri vinnu.
• Verkefnið má ekki vera í samkeppni við aðila í hliðstæðum atvinnu-
rekstri á landsvísu.
• Atvinnulausir einstaklingar geta sótt um styrk til eigin reksturs.
• Verkefni við atvinnusköpun fyrir fótk, sem ekki á bótarétt úr
Atvinnuleysistryggingasjóði, eru ekki styrkhæf.
Svæðisvinnumiðlanir
veita allar nánari upplýsingar
• Umsóknum skal beint til svæðisvinnumiðlunar.
• Umsókn skal fylgja:
a) Verkefnislýsing
b) Kostnaðaráætlun
• Hámarkstími 6 mánuðir
• Ráðningarkjör starfsmanna skv. gildandi kjarasamningum
• Vinnuveitandi greiðir launatengd gjöld
• Styrkfjárhæðir nema hálfum eða heilum atvinnuleysisbótum.
Styrkfjárhæðin fer eftír bótarétti þess sem ráðinn er.
• Stjóm Atvinnuleysistryggingasjóðs tekur ákvörðun um úthlutun
styrkja.
• Umsóknareyðublöð og reglur nr. 238/1999 um:
„Sérstök verkefni á vegum svæðisvinnumiðlana"
er að finna á vef Vinnumálastofnunar www.vinnumalastofnun.is
vinkilmAla
■ TOFIVUN
Vinnumálastofnun
Hafnarhúsinu viö Tryggvagðtu «150 Reykjavík
Sími: 515 4800 • Símbréf: 511 2520
Veffang: www.vinnumalastofnun.is