Sveitarstjórnarmál - 01.04.2003, Síða 19
Menningarmiðstöð
í nafni Grettis sterka
Mikill áhugi er á að nýta sögu og menningu Húnaþings vestra til að efla menningarstarf og
ferðaþjónustu í héraðinu. Nú hefur sérstök stofnun verið sett á fót til þess að sinna þessu
verkefni.
Grettistak er menningar- og fræðslustofn-
un í Húnaþingi vestra. Nafn hennar er
dregið af Gretti sterka frá Bjargi í Miðfirði,
einni af hetjum íslendingasagnanna. Til
þessa hefur einkum verið unnið með þann
menningararf sem tengist nafni Grettis en
að sögn Elínar R. Líndal, framkvæmda-
stjóra Grettistaks, er ætlunin að teygja
starfið til fleiri þátta í framtíðinni.
Byrjun með „Björtum nóttum"
Upphaf þessa starfs má að nokkru rekja til
sumardagskrár Bjartra nátta sem haldnar
hafa verið í Vestur-Húnavatnssýslu frá ár-
inu 1996. Sérstök Grettishátíð hefur einnig
verið haldin á hverju sumri frá sama tíma.
Fyrir þremur árum var farið að vinna með
þessar hugmyndir með markvissari hætti
og stofnaður sérstakur stýrihópur af því til-
efni sem hlaut nafnið Gettistak. Á síðasta
ári var sjálfseignarstofnun með sama heiti
sett á laggirnar. Að henni standa, auk
Húnaþings vestra, Byggðasafn Húnvetn-
inga og Strandamanna, Ferðamálafélag
Vestur-Húnavatnssýslu og Hagfélagið ehf.
Þegar er búið að tryggja fjármuni til rekst-
urs stofnunarinnar út árið 2003 og einnig
til hluta af undirbúningsvinnu við upp-
byggingu menningarmiðstöðvar á Laugar-
bakka í Miðfirði. Fyrir liggur að ráða fram-
kvæmdastjóra í fullt starf og hefur starfið
þegar verið auglýst. Þá má geta þess að
Grettistak er þátttakandi í Evrópuverkefn-
inu „Destination Viking" eða áfangastaðir
víkinga, sem er þriggja ára
samvinnuverkefni sex landa á
norðurslóðum og tengjast öll í
gegnum íslendingasögurnar.
Elín R. Líndal.
Framkvæmdarstjóri Grettirs sterka
þurfi að beita markvissum vinnubrögðum
og þróa verkefni er tengjast menningar-
arfinum stig af stigi. Hún segir að mark-
miðið með stofnun Grettsitaks sé að
hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd
og tilgangurinn með því að meðal annars
sá að gera Húnaþing vestra sýnilegra,
bæta ímynd byggðarinnar og efla atvinnu-
líf. Hún segir margvíslega möguleika vera
til ferðaþjónustu innan Húnaþings vestra
en mikið vanti á að þeir hafi verið nýttir
sem skyldi. Þetta verkefni styðji við upp-
byggingu ferðaþjónustunnar og þar með
Elín R. Líndal segir að vonir manna standi til að
þetta verkefni hafi ekki aðeins áhrif innan Húna-
Vænlegt framlag til
byggðaþróunar
Elín segir að innan Húnaþings
vestra hafi um nokkurt skeið verið horft til
þess á hvern hátt nýta megi menningararf
og sögu héraðsins til að efla atvinnu- og
menningarlíf. Til þess að svo megi verða
þings vestra heldur geti það haft víðtæk áhrif á
Norðurlandi og raunar landinu öllu.
atvinnulífs á Norðurlandi vestra. Aðstand-
endur Grettistaks líta einnig svo á að verk-
efnið sé vænlegt framlag til byggðaþróun-
ar og eflingar atvinnulífs og búsetu á
landsbyggðinni. Elín segir að vonir manna
standi til að þetta verkefni hafi ekki aðeins
áhrif innan Húnaþings vestra heldur geti
það haft víðtæk áhrif á Norðurlandi og
raunar landinu öllu. Saga landsins og
menning séu samofnir þættir fyrir allt
landið.
Húsnæði á Laugarbakka
Grettistak er nú að ganga frá kaupum á
um 220 fermetra húsnæði á Laugarbakka
undir starfsemi sína auk leigu á stórri lóð
þar á staðnum. Hugmyndin er að setja
upp faglega sýningu þar sem Grettissögu
verður miðlað á sjónrænan hátt og gerð
fjölbreytt skil, meðal annars með útisýn-
ingu þar sem hægt verður að spreyta sig á
Grettistökum en hugtakið er fengið frá
bjargi einu miklu er sagan segir að kapp-
inn hafi lyft. Einnig er ætlunin að koma á
fót upplýsingamiðstöð fyrir héraðið og
móttöku fyrir ferðamenn á Laugarbakka
en áætlanir gera ráð fyrir að um 40 þús-
und gestir muni heimsækja sýninguna á
hverju ári í framtíðinni.
Grettishátíð að Bjargi í Miðfirði
„Grettishátíðin hefur átt mjög góðu láni
að fagna og er orðin ómissandi þáttur í
menningardagskrá hvers sumars í Húna-
þingi vestra. Gott gengi hennar hefur ekki
síst orðið mönnum hvati til þess að ráðast
í viðtækari verkefni á sviði sögu og menn-
ingar og tengja það ferðaþjón-
ustu. Nú er unnið að því að
efla þetta hátíðarhald, meðal
annars með því að vinna að
öflugri dagskrá sem standa
mun yfir frá því kvöldið fyrir
hátíðardaginn og út þann dag.
------- Menningarborgarsjóður styrkir
verkefnið í ár. Er það afar
ánægjulegt að verða þar með hluti af því
áhugaverða framtaki sem Menningarborg-
arsjóður stendur fyrir," segir Elín R. Líndal.
19