Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2003, Page 21

Sveitarstjórnarmál - 01.04.2003, Page 21
Ungmenni í frímínútum viö nýbyggingu Melaskólans í Reykjavík en hann er einn af eldrí skólum borgar- innar sem byggja varð við vegna einsetningarinnar. armenn í Reykjavík á því vori, sem skýrist trúlega af því að þjóðmálin hafa brunnið heitar á þeim. Á þessum tíma var Kristján Benediktsson að láta af störfum eftir ára- langa setu í borgarstjórn og Gerður Stein- þórsdóttir, sem hafði verið í öðru sæti, gaf heldur ekki kost á sér, enda var þá fækkað í borgarstjórn úr 21 í 15 fulltrúa. Skoðana- kannanir höfðu mælt mjög lítið fylgi við flokkinn, stemmningin var lítil og tíminn að renna frá okkur. Við þessar aðstæður þurfti að efna til framboðs og við þrjú, sem þá vorum for- menn framsóknarfélaganna í Reykjavík, tókum að okkur að manna efstu sæti list- ans. Ég skipaði fyrsta sætið, Alfreð Þor- steinsson var í öðru sæti og Hallur Magn- ússon í þriðja sætinu. Það var ekki auðvelt að ná manni inn í borgarstjórn Reykjavík- ur við þessar aðstæður. Framsóknarflokk- urinn hefur aldrei lent í þeirri stöðu að eiga ekki mann í borgarstjórn. í þessum kosningum var sú hætta þó vissulega fyrir hendi, enda mældist fylgi flokksins sáralft- ið í upphafi kosningabaráttu." Lítið um svör Sigrún leiddi framboðslista Framsóknar aftur í borgarstjórnarkosningunum 1990. Hún segir eftirminnilegustu mál þessara kjörtímabila vera byggingu Ráðhúss Reykjavíkur og Perlunnar í Öskjuhlíð. „Ég var kosin í dóm- nefnd um byggingu Ráðhússins af minnihlutanum í borgar- stjórn. Ég var líka í stjórn veitu- stofnana, sem er forveri Orku- veitu Reykjavíkur, og eini full- trúi minnihlutans á þeim tíma. Þegar ég fór að bera fram fyrirspurnir í veitustjórn- inni um byggingu Perlunnar varð fremur lítið um svör. Borgarstjóri hafði skipað sér- staka verkefnisstjórn um bygginguna og kom hún því ekki til kasta veitustjórnar- innar að sama skapi og önnur verk sem veiturnar stóðu að. Deilt var um þessar framkvæmdir á sínum tíma og einnig framkvæmdasýsluna í kringum þær, þar sem kostnaður fór langt fram úr áætlun- um." Útfellingar frá Nesjavöllum Á þessum tíma var bygging Nesjavalla- virkjunar hafin og einnig lagning hita- veituæðar til höfuðborgarsvæðisins. Sig- rún segir að þegar vatni frá Nesjavöllum hafi verið hleypt á dreifikerfi Hitaveitunn- ar hafi fljótt tekið að berast kvartanir um að óhreinindi væru í vatninu. Hún kveðst þá hafa farið að bera fram fyrirspurnir um af hverju þetta stafaði en ekki hafi verið að sama skapi auðvelt að fá svör. „Ég leit- aði þá til Orkustofnunar og fleiri aðila til þess að fá upplýsingar. Hrefna Krist- mannsdóttir hjá Orkustofnun tók mér sér- staklega vel, veitti mér upplýsingar og ómetanlega aðstoð. Ég taldi mig hafa vissu fyrir að um útfellingar væri að ræða og hafði lýst þeirri skoðun í sjónvarpsvið- tali. Á næsta stjórnarfundi eftir viðtalið átti að knésetja mig fyrir að hafa haldið því fram að rangt hafi verið staðið að verki og faglegum undirbúningi ekki hagað sem skyldi. Auk stjórnarmanna og nefndar- manna, sem oftast sátu fundi veitustjórnar, voru kallaðir til fimm sérfræðingar til þess að sýna þessari konu úr Aust- urborginni hversu fáránlegar staðhæfingar hennar væru." Minnisstæð rimma Sigrún segir að stundum sé eins og almættið komi til hjálpar. Þessi fundur í desemberbyrjun hafi staðið í fjóra klukkutíma og harðlega verið tekist á. En er líða tók á daginn hafi snöggkólnað úti og talsvert frost komið um kvöldið. Kuldinn hafi haft þau áhrif að „Þarna gat ég, þá starfandi í minnihluta, sagt fyrir um viðkvæmt mál sem menn áttu erfitt með að kyngja." Láttu gæði og góða reynslu ráða vali þínu á ofnhitastillum Danfoss ofnhitastillar fyrir þig Danfoss er leiðandi í framleiðslu ofnhitastilla Danfoss hf Skútuvogi 6 Simi 510 4100 www.danfoss.is <%> 21

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.