Sveitarstjórnarmál - 01.04.2003, Side 29
Ný sorporkustöð á Klaustri
Skilgreindur sem kjarnabúsvæði
Fjórðungsþingið fjallaði einnig ítarlega um
byggðamál. Ingimar segir Vestfirðingum
hafa brugðið við fyrstu drög að byggðaá-
ætlun ríkisstjórnarinnar á síðasta ári þar
sem Vestfjarða hafi ekki verið getið að
öðru leyti en því að ekki væri gert ráð fyr-
ir fólksfjölgun þar á næstu árum. Sveitar-
stjórnarmenn á Vestfjörðum skipuðu þá
starfshóp til að semja byggðaáætlun fyrir
Vestfirði. Árangur þess varð sá aðVestfirð-
ir voru teknir með í byggðaáætlun lands-
stjórnarinnar og ísafjarðarbær skilgreindur
sem eitt af kjarnabúsvæðum landsins.
Samstarf um orkumál
Sveitarfélögin á Vestfjörðum áttu 60% í
Orkubúi Vestfjarða á móti ríkinu en eftir að
ríkið keypti þau út hafa ákveðnar áhyggjur
sett svip á orkuumræðuna vestra. Á fundi
stjórnar Fjórðungssambands Vestfjarða seint
á sfðasta ári reifaði Guðni Geir jóhannsson,
formaður stjórnar Fjórðungssambandsins,
hugmyndir um hvernig efla mætti starfsemi
Orkubús Vestfjarða á Vestfjörðum og tryggja
starfsemi þess á svæðinu betur. Vestfirðingar
hafa staðið gegn því að störf tengd orku-
framleiðslu flyttust úr fjórðungnum með
samstarfi eða sameiningu við önnur orku-
fyrirtæki en nú eru ræddar hugmyndir um
samstarf Orkubús Vestfjarða, Rafmagns-
veitna ríkisins og annarra orkufyrirtækja í
Norðvesturkjördæminu við áframhaldandi
störf að orkumálum vestra. Ingimar kveðst
álíta að áfram verði unnið að þvf máli og
kannað til hlítar á hvern hátt þessi starfsemi
geti náð saman án þess að störf þurfi að
flytjast úr Vestfirðingafjórðungi.
Ný sorporkustöð hefur verið tekin í notk-
un á Kirkjubæjarklaustri. Sorp hefur verið
brennt við háhita á Kirkjubæjarklaustri frá
1999. Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra
ræsti nýju stöðina að viðstöddu fjölmenni
þann 26. mars sl.
Með tilkomu nýrrar og afkastameiri
sorpbrennsluvélar á Kirkjubæjarklaustri er
gert ráð fyrir að hægt verði að eyða öllu
brennanlegu sorpi sem fellur til í sveitarfé-
laginu. Nýja sorpbrennslustöðin hitar vatn í
40 þúsund lítra miðlunargeymi og er vatn
frá geyminum sfðan leitt inn á hitakerfi
skóla og sundlaugar, en auk þess er fyrir-
hugað að hita íþróttahús, sem er í bygg-
ingu, með vatni frá sorporkustöðinni. Nýja
sorpbrennsluvélin mun ná að brenna
1.200 til 1.400 kílóum af sorpi á dag og
heildarkostnaður vegna hennar verður að
líkindum tæpar 60 milljónir króna en ligg-
ur ekki endanlega fyrir enn sem komið er.
Sorpi er safnað vikulega í þéttbýlinu á
Kirkjubæjarklaustri og einnig tekið við líf-
rænu sorpi hjá þeim, sem ekki jarðgera
það sjálfir. Nýlega var farið að safna
brennanlegu sorpi úr öllu sveitarfélaginu
og er það sótt á fjögurra vikna fresti. Líf-
rænu sorpi er ekki safnað í dreifbýlinu
vegna þess hve byggðin er dreifð og vega-
lengdir miklar. íbúar Skaftárhrepps hafa
tekið þátt í Staðardagskrá 21 frá upphafi.
Siv Friöleifsdóttir umhverfisráðherra ræsir nýju sorporkustöðina.
Kosið um sameiningu Búða- og
Kosið verður um sameiningu Búða- og
Stöðvarhrepps á Austurlandi jafnhliða al-
þingiskosningunum í vor. Sveitarstjórnir
beggja sveitarfélaganna hafa fallist á tillögu
þar um frá samstarfsnefnd um sameiningu
þeirra. í samstarfsnefndinni sátu þrír fulltrú-
ar frá hvoru sveitarfélagi auk þess sem þeir
nutu aðstoðar starfsmanns Þróunarstofu
Austurlands.
Um 570 manns búa nú í Búðahreppi,
sem er þéttbýlissveitarfélag við Fáskrúðs-
fjörð, og 276 í Stöðvarhreppi við Stöðvar-
fjörð. Verði af sameining þessara sveitarfé-
laga verður því til sveitarfélag með tæplega
850 íbúa. Fáskrúðsfjarðarhreppur, sem er
dreifbýl issveitarfélag við Fáskrúðsfjörð, tek-
ur ekki þátt í kosningunni. í Fáskrúðsfjarð-
arhreppi búa um 60 manns þannig að ef
Stöðvarhrepps
hann myndi sameinaðist hinum tveimur
gæti orðið til rúmlega 900 manna sveitar-
félag. Samkvæmt upplýsingum félagsmála-
ráðuneytisins eru aðrar sameiningarkosn-
ingar sveitarfélaga ekki fyrirhugaðar jafn-
hliða alþingiskosningunum þótt áhuga fyrir
viðræðum um sameiningarmál sveitarfé-
laga hafi orðið vart á ýmsum stöðum á
landinu að undanförnu.
29