Sveitarstjórnarmál - 06.12.2011, Page 6
Fjármálaráðstefna
sveitarfélaga
Við vitum hvar valdið
liggur
Myndirnar sem birtast með umfjöllun um fjármálaráðstefnuna tóku þau Ingibjörg Hinriksdóttir
og Gunnlaugur Júlíusson, starfsmenn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
„Af þessum sökum finnst mér ekki boðlegt að bera svona mál-
flutning á borð fyrir okkur eins og fjármálaráðherra gerir. Það er ekki
hægt að standa fyrir framan kjörna fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu og
halda því fram að þeir séu einungis þiggjendur góðra hluta sem til
koma vegna erfiðra ákvarðana í ríkisstjórn. Þannig er það ekki, því
ekki einungis höfum við á sveitarstjórnarstiginu þurft að taka gríðar-
lega erfiðar ákvarðanir heldur höfum við líka þurft að takast á við
ríkisvaldið um ákveðin mál þó eins og fyrr segir séu samskiptin að
mestu leyti í góðum farvegi. Svo er það bara þannig að kjörnir full-
trúar eru kosnir til að taka erfiðar ákvarðanir."
Viljum draga úr átökum
Halldór sagði sveitarstjórnarmenn vita hvar valdið liggi. „Það er hjá
ríkisstjórn og Alþingi. Við höfum fundið fyrir því í ákveðnum málum
en okkur líkar betur þegar hægt er að semja um málin og ná sam-
eiginlegri niðurstöðu. Sem betur fer er samningaleiðin mun oftar ofan
á en að ákveðnir ráðherrar eða ríkisstjórn taki ákvarðanir þvert á
stefnu og samþykktir Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ekki ætti að
þurfa að ítreka það en sú stefna og þær samþykktir eru mótaðar og
samþykktar af fulltrúum allra sveitarfélaga á landinu á landsþingum
sambandsins. Þess vegna er mikill lýðræðishalli á slikum ákvörðunum
ríkisvaldsins að mínu mati en þar liggur hins vegar valdið."
Halldór sagði að slíkar ákvarðanir kalli líka á átök milli þessara
tveggja stjórnsýslustiga, „sem er nokkuð sem við viljum draga úr
og ég tel að það hafi nokkuð áunnist í því á tveimur undanförnum
árum. Það er hollt að minnast þess að við bætum ekki samfélag okkar
með átökum heldur með lausnum sem draga úr átökum," sagði
Halldór Halldórsson í setningarræðu sinni.
Halldór Halldórsson, formaður sambandsins,
í ræðustóli á fjármálaráðstefnunni.
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga,
kvaðst f setningarræðu sinni á fjármálarástefnu sveitarfélaga 2011
hafa lesið grein fjármálaráðherra og heyrt hann halda því fram á lands-
fundum að ríkisstjórnin hafi ein og tiltölulega óstudd tekið á sig alla
erfiðleikana við uppbyggingu eftir hrunið. Hann kvaðst ekki vilja draga
úr því að þar á bæ hafi þurft að taka erfiðar ákvarðanir. Ekki megi þó
draga úr því að á sveitarstjórnarstiginu hafi kjörnir fulltrúar sem eru
miklu nær sínum umbjóðendum á hverjum degi en fulltrúar á Alþingi
þurft að taka verulega sárar og erfiðar ákvarðanir og munu þurfa að
gera það áfram.
6