Sveitarstjórnarmál - 06.12.2011, Blaðsíða 10
Fjármálaráðstefna
sveitarfélaga
Aukaframlag úr jöfnunarsjóði
verði að föstu framlagi
Á fjarmálaraðstefnu sveitarfélaga gagnrýndi
Halldór Halldórsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, harðlega 300 milljóna
króna framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga
til Sveitarfélagsins Álftaness. Hann sagði að
innanríkisráðherra og fjármálaráðherra hafi
ákveðið að verja þessum 300 milljónum
króna af 700 milljón króna aukaframlagi árs-
ins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til Sveitar-
félagsins Álftaness gegn mótmælum sam-
bandsins.
Halldór telur að breyta verði aukaframlagi
jöfnunarsjóðs í fast framlag. Sambandið hafi
óskað eftir að við umfjöllun fjárlaganefndar
um fjáraukalög fyrir yfirstandandi ár tryggi
nefndin a.m.k. 200 milljóna króna aukafjár-
veitingu til hækkunar aukaframlags Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga úr 700 milljónum í 900
milljónir á þessu ári. Við þessu hafi ríkisvaldið
ekki orðið en leggi þess í stað stóran hluta
framlagsins til eins sveitarfélags.
Ráðherraræðið ekki alræði
sem betur fer!
Halldór sagði í setningarræðu sinni á ráð-
stefnunni að í stefnumörkun sambandsins
séu ákvæði um að festa beri varanlega sér-
stakt 1.200 milljóna króna framlag ríkisins til
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í stað aukafram-
lags og verja því árlega til illa stæðra sveitar-
félaga. Það hlutfall tekna ríkissjóðs sem varið
sé til jöfnunarsjóðs hækki sem þessari fjár-
hæð nemur.
Hann sagði að þessum sjónarmiðum hafi
verið komið á framfæri við innanríkisráðherra
og fjármálaráðherra og einnig óskað eftir því
að fjárlaganefnd hafi framangreint stefnu-
mið í huga við umfjöllun sína um fjárlaga-
frumvarpið fyrir árið 2012. „Við skulum ekki
gleyma því að það er Alþingi sem samþykkir
fjárlög og þær fjárheimildir sem þar er að
finna en ekki rfkisstjórn eða einstakir ráð-
herrar. Þó ráðaherraræðið sé mikið hér á
landi þá er það ekki alræði sem betur fer.
Þess vegna eigum við ekki að hika við að leita
beint til Alþingis þegar ráðherrar vilja ekki
styðja okkar mál og þá sérstaklega þegar þau
geta ekki talist annað en hófstillt og sann-
gjörn."
Halldór sagði ennfremur að í fjárlagafrum-
varpinu sé gert ráð fyrir að aukaframlagið
lækki í 350 milljónir króna á næsta ári og
enn frekari lækkun verði árið 2013 og eftir
það falli það út. „Þetta má ekki gerast fyrr
en búið er að gera varanlegar breytingar á
jöfnunarsjóði þannig að aukaframlagið komi
inn í útgjaldajöfnunargreiðslur sjóðsins."
Falleg kort gleðja. Það er alltaf persónulegt að
þakka fyrir viðskiptin og samstarfið með fallegum
jóla-, nýárs- eða gjafakortum sérmerktum þér.
prentmet íslenskt
HRAÐÞJÓNUSTA
-afliflogsál