Sveitarstjórnarmál - 06.12.2011, Blaðsíða 18
lfestmannaeyjabœi*
félögum hér á landi og e.t.v. einstakt hjá
sveitarfélagi af þessari stærð."
Vestmannaeyjar komnar
í þjóðbraut
Hann nefnir einnig annað stórt mál tengt
ríkisfjármálunum - samgöngumálin. „Það kom
verulegt bakslag í samgöngumál okkar Eyja-
manna þegar sú ákvörðun var tekin að hætta
við að smíða nothæfa ferju í stað Herjólfs.
Það sér ekki enn fyrir endann á þeirri ákvörð-
un og stór hluti af þeim vanda sem við
glímum við í Landeyjahöfn er vegna þess að
ekki er hægt að tryggja fjármagn til að
standa straum af kostnaði við gott dýpkunar-
skip og hentuga ferju."
Elliði segir að þótt ný ferja sé ekki komin á
teikniborðið og vandinn sé enn nokkur hafi
orðið bylting í samgöngumálum Vestmanna-
eyinga. „Þetta sést best með því að fara 6-8
ár aftur í tfmann og skoða stöðuna eins og
hún var þá. Þá sigldi Herjólfur 1-2 sinnum á
dag frá Þorlákshöfn, flug var við það að
leggjast af og loks var enginn fókus í fram-
tíðarsýn um samgöngumál til og frá Eyjum.
Eilífar deilur voru um hvort kaupa ætti nýja
ferju til að sigla í Þorlákshöfn ellegar Landeyja-
höfn og margir vildu skoða möguleikann á
að gera jarðgöng til lands. Seinasta heila árið
sem Herjólfur sigldi um Þorlákshöfn ferð-
uðust 127.000 farþegar með ferjunni."
Hann segir stöðuna allt aðra og betri í
dag. „Nú er Landeyjahöfn staðreynd og
Herjólfur siglir allt að 8 ferðum og ekki færri
en 4 ferðir á dag á milli lands og Eyja. Far-
þegafjöldi með skipinu fer sennilega úr
127.000 í 270.000 í ár, sem er ríflega tvö-
földun. Sigling fyrir okkur og gesti okkar
tekur nú um 30 mínútur í stað 3ja klukku-
stunda áður og kostnaður ríkisins við rekstur
ferjunnar er um milljón krónum minni á dag
en var áður, þrátt fyrir stóraukna þjónustu.
Flug til og frá Eyjum stendur ennfremur
styrkum fótum og Flugfélagið Ernir veitir
frábæra þjónustu. Við eru því í allt annarri
stöðu en áður og Vestmannaeyjar eru komn-
ar í þjóðbraut."
Allt í lagi með bílskúrinn
þótt bílinn komist ekki inn!
Elliði segir umræðuna um Landeyjahöfn mjög
villandi og út f hött sé að segja að mannvirkið
sé mislukkað í alla staði. „Landeyjahöfn hefur
þegar valdið straumhvörfum í samgöngu-
málum Vestmannaeyja eins og ég nefndi áð-
an. Hvað þann vanda varðar sem við stönd-
um frami fyrir þá vil ég koma með samlík-
ingu. Ef þú byggir bílskúr fyrir Toyota Yaris
en hættir svo við að kaupa þér Yaris og átt
bara áfram gamla Bedfordinn þinn, þá er
fráleitt að halda því fram að bílskúrinn sé þar
með ónýtur eða rangt hannaður. Hann mun
koma að fullum notum þegar að því kemur
að þú kaupir þér bíl af réttri stærð. Ferjan er
einfaldlega of stór og djúprist fyrir höfnina"
Hann segir að vegna þess að ríkið hafi
hætt við að kaupa grunnrist skip og nota
gamla Herjólf áfram, liggi það í hlutarins eðli
að dýpka þurfi meira. Vandræðin hafi síðan
aukist við það að fá eldgos svo að segja „við
bæjardyrnar", með öllu þeim framburði jarð-
vegs sem því fylgdi. Elliði telur að reynslan af
Breiðafjarðarferjunni Baldri, sem leysti Herjólf
tímabundið af síðsumars, hafi fært mönnum
heim sanninn um hvað hægt sé að gera
með grunnristari ferju. „Það liggur fyrir að
18