Sveitarstjórnarmál - 06.12.2011, Síða 11
Forsætisraðherra vill fleiri
verkefni til sveitarfélaga
Eitt mesta úrval landsins af öryggisskápum fyrir fyrirtæki og einstaklinga
www.optima.is
Hafðu samband við sölumenn okkar og sjáðu hvað við
getum gert fyrir þig
nashuatec
STOFNAÐ 1953
OPTiMA
Vínlandsleið 6-8, S. 588 9000
Optlma er aðili að rammasamningi Rlkiskaupa
Hraða þarf undirbúningi að
yfirfærslu málefna aldraðra
Jóhanna sagði að fáir málaflokkar ef nokkrir
væru jafn vel fallnir til að færast til sveitar-
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði
í ávarpi á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga að
ekki ætti að láta staðar numið varðandi yfir-
færslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Hún
nefndi velferðarþjónustu og einnig rekstur
framhaldsskólanna sem möguleika í því sam-
bandi.
Hún sagði að marka þurfi skýrar línur um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og horfa
með opnum huga á hvaða opinber þjónusta
teljist nærþjónusta og hvaða verkefni falli
að öðrum verkefnum sveitarfélaga. „Margir
staldra eflaust við framhaldsskólana, með
samfellu í skólastarfi f huga. Ég bendi einnig
á tækifæri sem kunna að leynast í því að ríki
og sveitarfélög, eitt, fleiri eða öll, geri með
sér þjónustusamninga þannig að sveitar-
félögin taki að sér að veita tiltekna velferð-
arþjónustu í umboði ríkisins," sagði hún.
félaga og málefni fatlaðra og aldraðra. Hraða
þyrfti undirbúningi að yfirfærslu málefna aldr-
aðra eins og kostur væri á. Jóhanna benti á
að árið 2006 hafi sveitarfélög verið með um
30% opinberra útgjalda en ríkið um 70%.
Dönsk sveitarfélög ráðstafi hins vegar um
65% opinberra útgjalda í Danmörku en ríkið
35%.
Jóhanna sagði ennfremur að til að sveitar-
félög gætu axlað ábyrgð á stórum mála-
flokkum þurfi þau að hafa fjárhagslega burði
og getu er varðar stjórnsýslu. Hún hvatti
minni sveitarfélög til að fhuga kosti samein-
ingar í því sambandi.