Sveitarstjórnarmál - 06.12.2011, Page 16
vestmannaeyjabœr
ibúum fjölgar og
framtíðn björt
Vestmannaeyjar eru næststærsti þétt-
býliskjarninn utan höfuðborgarsvæðisins,
einungis Akureyri er stærri. Stöðug fólks-
fjölgun hefur orðið í Vestmannaeyjum
undanfarinn áratug eftir nokkuð langt
tímabil fólksfækkunar. Þar búa nú um
4.200 manns og segir Elliði Vignisson
bæjarstjóri að framtíð Vestmannaeyja
hafi ekki verið jafn björt um áratuga-
skeið. "Framtíð okkar stendur þó og
fellur með því að ásættanleg lending
náist í málefnum sjávarútvegsins," segir
hann. Sviðsljósinu er beint að Vest-
mannaeyjum að þessu sinni.
Elliði er fæddur í Vestmannaeyjum árið 1969.
Að loknu stúdentsprófi lauk hann BA-prófi í
sálfræði og náði sér að auki i kennsluréttindi
á grunn- og framhaldsskólastigi. Hann lauk
síðan mastersprófi í sálfræði og hefur einnig
stundað nám í opinberri stjórnsýslu síðustu
ár. Eiginkona Elliða er Bertha Johansen og
börn þeirra eru Nökkvi Dan og Bjartey Bríet.
Elliði hefur búið nær alla sína ævi í fæðingar-
bænum og að háskólanámi hans loknu flutti
fjölskyldan aftur til Vestmannaeyja og hann
hóf störf við Framhaldsskólann í Vestmanna-
eyjum. Elliði leiddi lista Sjálfstæðisflokksins
í bæjarstjórnarkosningunum 2006 og eftir
stórsigur sjálfstæðismanna í þeim kosningum
var hann ráðinn bæjarstjóri og hefur gegnt
því starfi síðan.
Greiddu nær allar skuldir
rétt fyrir hrun
Elliði segir að vissulega hafi bankahrunið og
kreppan sem skall á í kjölfarið haft sín áhrif í
Vestmannaeyjum eins og annars staðar en
með öðrum hætti þó.
„Staðreyndin er sú að það urðu ákveðin
straumhvörf hjá okkur á árunum 2007 og
fyrri hluta árs 2008 - rétt fyrir bankahrun.
Meginskýringin er þríþætt. í fyrsta lagi fór
áratuga langt aðhald í rekstri bæjarins loks
að skila sér svo um munaði í bókhaldinu. í
öðru lagi var hagur útgerðarinnar hér tekinn
að vænkast eftir erfiða hagræðingu og í raun