Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Síða 6
Sígild ópera færð í nútímabúning.
CARMEN frá Louisiana
Þér kannist að sjálfsögðu við Carmen, —
óperu í fjórum þáttum eftir George Bizet,
sem hefur verið sýnd á þekktustu óperu-
húsum víðs vegar urn heim, sömuleiðis
tekin á kvikmynd. Rejane, Chaplin, Viv-
ian Romance og Rita Hayworth liafa gert
tilraunir til þess að lýsa þessari indælu
skækju. En fáurn hefur tekizt það, því að
aðeins Spánverjar cru .Spánverjar. Og Car-
men er frá Sevilla.
Árið 18875 var frumsýning á Carmen r
Opera Comique í París. Juliette Marie
lék Carmen, olli hneykslun, og menn vildu
ekki lineykslast á þeim tímum. Sýningin
fékk hina verstu útreið, Bizet yfirgaf leik-
húsið sárgramur, áður en tjaldið féll, og
dó þremur mánuðum síðar. Það var ekki
fyrr en Nietszche tók upp hanzkann fyrir
hana, að Carmen hlaut viðurkenningu.
Annars er Carmen ekki eingöngu verk
Bizet. Saga hennar gerðist raunverulega í
Sevilla, og ungur spanskur fangi sagði
franska rithöfundinum Prosper Merimée
hana nótt eina í fangaklefa í Granada.
Daginn eftir var sögumaðurinn hengdur
fyrir niorð á unnustu sinni, en Merimée
fór heim með góða sögu í huganum. Hann
skrifaði söguna. Bizet las hana, iifði sig
inn í hana og skrifaði óperuna um hana.
Nú kunna strákar um allan heim lögin
úr óperunni.
Og það eru einmitt götustrákarnir, sem
koma l'yrst fyrir í kvikmyndaútgáfu Oscar
Hammerstein af óperunni sígildu. Litlir
negrastrákar, óhreinir og skemmtilegir,
með knatttré og glatt bros á vörum,
skálma á leið til knattleikja morgunsins
og syngja hástöfum: Avec la garde mont-
ante, — á suðurríkjamállýzku. Ósamstiga
og í götóttum buxum segjast þeir líka
vera nokkurs konar hermenn — bara réttu
megin við herbúðagirðinguna.
Oft hefur verið reynt að sameina þessi
listform, óperu og kvikmynd, en sjaldn-
ast tekizt með verulega góðum árangri. í
óperuútgáfu Hannnerstein er cfnið flutt
til vorra daga — og gert eins raunveru-
legt og |þess er kostur.
Tjaldið fer frá, og leiksviðið er ekki
Sevilla við Guadalquivir, heldur suður-
ríkjabær við Mississippi. Braggar verðandi
flugmanna af negrakyni í síðustu heims-
styrjöld. Don Jose er Joe liðþjálfi í khaki.
Smyglarakráin er drykkjubar Billy Pastor,
þar sem menn panta „tvöfaldan skota“ í
staðinn fyrir Manzanilla. Hetjan er ekki
heldur nautabani frá Granada, heldur
hnefaleikakappi, ekki Escamillo heldur
Husky Miller, sem ekki syngur „Söng
nautabanans“ heldur „Söng boxarans."
Og svarti villikötturinn Carmen býr til
fallhlífar í verksmiðju, lendir í slagsmál-
um við starfssystur sína, og er handtekin'
af liðþjálfa herdeildarinnar. Joe á að aka
henni til fangelsisins, en þegar Jeppinn
hoppar og skoppar eftir veginum, veitist
honum erfitt að varðveita dyggð sína og
tignarmerkin á handleggnum, meðan Car-
men berar undurfagra fætur sína og hellir
yfir hann gáska sínum. Hann lætur fallast
í freistni. Næst bregðum við okkur á bar-
inn hans Billy Pastor, þar sem dansinn
er stiginn við tryllta trumbumúsík. Car-
— Heitar dstriður. —
men vísar hnefaleikakappanum Miller frá
sér og hafnar tælandi tilboðum hans. Hins
vegar hjálpar hún Joe til þess að fela sig
eftir að honum hefur lent saman við her-
foringja sinn, og í Chicago lifa þau sam-
an bak við hulda glugga á peningum
hennar. Þegar taugar hans bresta og hann
dregur tryggð hennar í efa, verður Car-
men ofsareið, og hún yfirgefur hann. Hún
lcitar gamalla vinkvenna, sent eru í slag-
togi með hnefaleikameistaranum. Þær
spila um hann, og þegar Carmen hefur
tvisvar dregið óhamingjuspilið, álítur hún
sig feiga, og kastar sér í fang boxarans.
Kappleikurinn rnikli á sér stað í hnefa-
leikasal í New York, og Carmen fagnar
Husky sínum ásarnt mannfjöldanum.
Heill kappa vorra tíma: The big killer!
En í mannþrönginni fyrir utan biður
[oe, laumast að Carmen og myrðir hana.
Tveir hjálntklæddir lögregluþjónar leiða
hann á brott.
Stúlkan sem fer með hlutverk Carmen,
Iteitir Dorothy Dandridge og er frá Loui-
siana, lífsglöð, kolsvört stelpuhnyðra, sem
vakið hcfur almenna aðdáun fyrir túlkun
sína, og gegnir sama máli um Harry Be-
lafonte, sem leikur Joe, og Joe Adams,
sern leikur boxarann.
Kvikmyndin um Carmen, sem 20th
Century Eox lét gera, hefur farið sigur-
og hneykslunarför um helztu borgir Evr-
ópu, en vér höfum ekki heyrt þess getið,
hvort hún væri væntanleg hingað til
lands. Svo er þó vonandi.
6 — GESTUR