Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Blaðsíða 18

Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Blaðsíða 18
MAÐUR OG KONA. Framh. af bls. 15. og tók á sig afbragðs gerfi. Heigi Skúlason var eðlilegur og fjörugur í hiutverki Finns vinnumanns og Valdimar Helgason stóð sig hreystilega í hlutverki Bjarna frá Leiti, enda þótt hann megnaði ekki að skipa Bjarna á þann sess, sem honum ber, — og slags- málin við feðgana er eitt liörmulegasta atriði leiksins, jafn hlátursvekjandi og það gæti verið. Ernilía Jónasdóttir átti auð- velt með Staðar-Gunnu, en eitthvað hlýtur að hafa verið ankanalegt við búninginn hennar í seinasta þætti. Nína iSveinsdóttir lék Grasa-Guddu vel á sínum tíma, en Guddan í' Hlíð var „merglaus og bein- skorin“. Ef Bessi Bjarnason ætlar sér að gera grínleik að sínu aðal-„l'agi“, verður hann að leggja Gvend smala alger- lega á hifluna í staðinn fyrir að leggja hann til grundvallar með smávægilegum breyting- um, eins og hann gerir í hlut- verki Egils, — temja sér fjöl- breytilegri limaburð og mál- róm. Því að Bessi á áreiðan- lega betra lilutskipti skilið en brauðstritið. Það mátti teljast furðulegt, að Sigurður bóndi í Hlíð skyldi lifa af fjóra þætti (sjö sýning- ar), jafn hrumur og hann var í meðförum Gests Pálssonar, og Anna Guðmundsdóttir rnætti vel leggja niður |)ctta eirðar- lausa flökt á setningum um sviðið, þótt hún gerði að vísu rnargt skörulega í hlutverki Þórdísar. Bryndís Pétursdóttir og Benedikt Árnason léku elsk- endurna, og tóku sig sæmilega út og föðmuðust innilega, en röddin verður Benedikt fjötur um fót, er á reynir og lætur þá jafnvel illa f eyrum. Regína Þórðardóttir er þarna í hlutverki prestsfrúarinnar á Stað. Setningarnar, sem henni eru lagðar í murin, er ekki 18 — GESTUR Anna Guðmundsdóttir. — Eirðarlaust flökt rögg- samrar húsfreyju. hægt að saka liana um, en þær sænta naumast prestsmaddömu, enda verður Regína harla ut- angarna og allt of unggæðis- leg. Endilega finnst manni skorta á virðuleikann. Og þá er farið að síga á seinni hlutann. Ævar R. Kvar- an, Klemenz jónsson og Þor- grímur Einarsson fara þarna nteð hlutverk. Ævar bregður gamalkunnri mynd úr Tópaz upp fyrir áhorfandann, fígúr- an þarna er að vísu skítugri og rifnari en fjárkúgarinn, en þáð þarf meira en lítið ímynd- uharafl til þess að þekkja Hjálmar tudda af þeim óskapn- aði. Klemenz býr sig í gerf-i Dofrans og bregður sér síðan á hliðarhoppi yfir í Ketil skræk, og er hvort tveggja jafn ólíkt Grími meðhjálpara og Jtugsazt getur. Þorgrímur leik- ur smalann. Og að lokum — séra Sig- valdi. Haraldi Björnssyni hefur vafalaust þótt svo, að þarna fengi hann skemmtilegt við fangsefni, sem „interessant" myndi verða að beina inn á aðrar brautir en þegar hafa verið troðnar. Árangurinn verður sá, að áhofandinn kann- ast ekki við þennan séra Sig- valda. Sigvaldi Haralds ber lymskuna og fláttskapinn utan á sér, þannig að öllum má ljóst verða, hvern mann hann hefur að geyma, og þarf meira en lítið auðtrúa mann til að trúa honum fyrir einhverju. Reynir Haraldur að bæta úr skák með lítt sannfærandi og við- vaningslegum (merkilegt nokk!) hláturvekjandi brögðum, en við það verður manngerðin í heild laus í reipunum og lilýt- ur tómlæti áhorfandans að launum. Áður var tekin samlíking við Marz, og þangað virðast leik- tjöldin hafa verið sótt, lág- kúruleg undir allt of bláum himni (útisviðin) og þilið á miðju sviðinu byrgir Iielmingi leikhússgesta sýn yfir Hjálmar tudda í dyragættinni — en það gerir máske ekkert til. ★ Margur lesandinn kann nú að hugsa sem svo, að hér sé óþarflega hart vegið að sýn- ingu og leikendum; í rauninni sé ekki ástæða til annars en feta í fótspor annara gagnrýn- enda, skamma leikritið, kenna því um mistökin, gera sem minnst úr göllunum, en reyna að finna hið góða. En mistök- Bryndís og Benedikt. — Utanaðlcerður tepruskapur. Bessi og Baldvin,, in eru ekki leikritsins sök, held- ur er það alvarleg staðreynd, að sýningin á Manni og konu í Þjóðleikhúsinu er óheillaþró- un, sem gæti endað með skelf- ingu, ef ekki er tekið fvrir hana í tíma. Okkur er það lítils virði að eiga glæsilegt leikhús, ef þar er aðeins hægt að túlka er- lendan hugsunarhátt og rnann- gerðir, svo að vel fari, en ís- lenzkt umhverfi afskræmt og bjagað. Fyrir þreni árum sýndi Þjóðleikhúsið Skugga-Svein, sem var nánast máttlaus skraut- sýning í stað hins magn- þrungna þjóðsöguleikrits Matt- híasar. Piltur og stúlka bar sömuleiðis glögg merki hnign- unarinnar. Þó gætti hins lé- lega naumast þar eins og hér, og verði um slíka afturför að ræða í framtíðinni hjá þessari stofnun, er víst kominn tími til að biðja guð að hjálpa sér. Forráðamenn leikhússins vita það, að til þess eru gerðar meiri kröfur en annara leik- húsa, það stenzt kröfurnar hvað snertir erlend leikrit, — en um íslenzku leikritin gegn- ir öðru máli. Það er skylda Þjóðleikhússins að varðveita þjóðlega mcnningu í stað þess að spilla henni með tepruleg- um gantaskap, sem vafalaust er hingað kominn erlendis frá og hefur ekki náð að frjósa í hel, sakir dálætis og aðhlynningar þeirra, sem hann fluttu. 27. jan. ’56.

x

Vikublaðið Gestur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.