Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Síða 8

Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Síða 8
Hann vildi og láta brúa Stakks- gljúlur á Hemruheiði, sem er bæði breitt og hrikalegt. Vörður margar hlóð hann víðsvegar um haga, og götur bjó hann í bröttum giljum, en sjaldnast þóttu þær öðrum færar. Stöðul byggði hann uppi í hlíðarbratta, þar sem ómögu- legt var að konta kúm að, og var stöðullinn því aldrei not- aður. Uppi á Hlíðarhciði byggði Gunnsteinn sauðabyrgi um hcllisskúta einn, en það var einmitt þar, sem fannfergi var mest, svo að fé var aldrei haft í hellinum. Giftusamleg björgun. Gunnsteinn jþótti hrapallega slysinn, en stundum jafnframt hundheppinn. Eitt sinn var hann í hvannaleit uppi á Hemruheiði, en á henni eru gljúfur mörgv óg sumjsstaðar hrikaleg, en stæðilegar hvann- ir á syllum og stöllum. Gunnsteinn 'var svo klæddur í jjessari hvannaleit sinni, að hann var léttklæddur og í ull- arnærbuxum' einum að neðan- verðu. Seildist hann þannig af einni syllunni á aðra og reií upp hvönnina, sem víða var trénuð og traust sem tré. En skyndilega varð Gunn- steini fótaskortur, og hentist hann endilangur fram á gljúf- urbrúnina. En þá vildi svo til, að á vegi hans varð gamall og stinnur hvannnjóli, sem rakst í gegnum brækur Gunn- steins og beina leið upp í énda- þarminn. Sat Gunnsteinn jtannig fastur á heljarþröminni þar tii honunr barst mann- björg. En hefði njólinn eigi stöðvað ferð hans, hefði honum verið bráður bani búinn, því að fyrir neðan hann var flug- berg og árflúðir. Gunnsteinn þótti trúrækinn og guðhræddur alla ævi. Hann kunni rnargt úr Grallaranum, og Passíusálmana kunni hann því nær alla. Söngrödd hafði hann laglega á yngri árum, en þótti kjökurraddaður á efri árum. í orðfari var hann hjákát- legur og öðrum frábrugðinn. Stundum talaði hann eingöngu með fláum samstöfum. Sagði hann þá, að slíkur talandi væri einn réttur. Sagðist hann hafa snúið öllu Faðirvorinu eftir þeim reglum. Stundum fékkst hann líka við orðaskýringar, og hefur ein þeirra varðv.eitzt, nefnilega, að orðið biskup væri komið af býskopp, sem merkti: sá, sem skoppar um bý! Með illu skal illt út drífa. Hestaheilsu hafði Gunn- steinn alla ævi, og mátti segja, að honum yrði aldrei misdæg- urt. Þakkaði hann það lækn- ingum sínum með saur og þvagi, sem hann hafði trölla- trú á. Koppinn sinn lét hann jafnan standa við höfðalag rúmsins, sem hann svaf í, og lagði síðan nefið fram á rúm- stokkinn til þess að njóta lykt- arinnar sem bezt, en hana kvað hann svo makalaust góða fyrir brjóstið. í koppinn gerði hann jafnan öll sín stykki, og þótti mikið miður, ef innihaldinu var fleygt áður en það var dægurstaðið. Við bakstingjum bjó liann sér bakstra þannig, að hann vafði saur sinn innan í klút eða rýju, og kvað hann ráðið óbrigðult. Þessum bökstrum sínum gleymdi Gunnsteinn oft undir koddanum á bæjum, þar sem hann gisti, og þótti lítill þrifnaður að. En Gunnsteinn stóðst ekki reiðari en ef talað var um sóðaskap í sambandi við lækningar hans, sem oft bitnuðu á öðrum, sér í 'lagi meiddum skepnum. Sóttist Gunnsteinn eftir að skíta eða bera saur sinn í sárin, svo að hafa varð gát á honum. Eirplötu hafði Gunnsteinn uppi í sér og jóðlaði í sífellu. Kvað hann þetta óviðjafnan- lega heilnæmt fyrir brjóstið. Það kom fyrir, að platan hrökk niður í hann. En ekkert kippti hann sér upp við það, heldur beið jrangað til hún skilaði sér, og stakk lienni þá upp i sig að nýju. Var hann olt að Jrví spurð- ur, hvort ekki væri skítabragð að plötunni, en hann varð hvumsa við og þótti spurn- ingin með eindæmum heimsku- leg. Oft hafði hann uppi í sér eirlitaða skinnpjötlu, en við litunina var eirinn látinn liggja í stækri keitu. Þetta ráðlagði Gunnsteinn hverjum manni, og kvað hánn sér jretta hafa reynzt með ágætum. Eng- ar tennur missti hann, en sein- ustu aíviár hans voru tennurn- ar orðnar svo lágar, að þær stóðu naumast upp úr tann- holdinu. Hefur eirinn vafa- laust átt sinn ríka jaátt í þvi. Gunnsteinn átti hund, sem hann kallaði Lodda. Lét hann hundinn sleikja á sér andlitið, og kvað það afar styrkjandi fyrir hörundið. Hundinum var lógað fjörgömlum, og féll Gunnsteini það afar þungt. Ævilok. Seinustu tólf ár ævinnar var Gunnsteinn niðursetningur að Hlíð í Skaftártungum. Sótti blinda á hann í ellinni, og svo grálúsugur var hann, að ógern- ingur reyndist að hafa af hon- unt varginn. A helmingi jarðarinnar bjó jjá Ragnhildur Gísladóttir, komin í kör, en hafði mikla raun af karlinum og kenndi í brjósti um hann. Lét hún hlynna að honum á allan hátt, énda hændist karlinn að henni, vildi helzt hvergi annarsstaðar vera en hjá henni, og borðaði mat úr hennar búi eingöngu. Þá voru gamalmenni helzt lát- in leita sér hita í fjósum, og undu þau gantlingjarnir Jrar löngum. Vorið 1866 gekk jtung kvef- sótt eystra, og dóu úr henni mörg gamalmenni. Um hvíta- sunnuleytið lézt Ragnhildur gantla. Féll Gunnsteini Jtað svo þungt, að hann náði sér alclrei eftir jjað, og lagðist á miðjunt túnaslætti, enda orðinn fjör- gamall. Lá hann hér um bil viku áðtir en hann andaðist, og mun hafa verið rumlega hálf tfræður. 8 — GESTUR

x

Vikublaðið Gestur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.