Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Síða 24

Vikublaðið Gestur - 01.02.1956, Síða 24
á álit lögregluforingjans. Ákærður er Iþví dærndur til bráðabirgða í sjö daga gæzluvarðhald". „Númer átta!“ kallaði réttarþjónninn. Hálfri klukkustundu síðar sat Mick Cardby í lögreglubifreið- inni á leið til Brixton, meðan Hall sagði föður hans alla söguna. Sir Wynnard, lögregluforingi, þakkaði dómaranum hans þátt í málinu. Herferðin gegn Maddick var hafin! 5. kafli. FLÓTTI OG ATVINNUTILBOÐ. Tveim dögum síðar kom Cross lögregluforingi inn á skrifstofu Cardby. Hann brosti. „Það hefur þá gerzt!“ sagði hann og settist á borðbrúnina. „Hvað þá?" „Fangelsisstjórinn í Brixton hringdi rétt í þessu til mín. Pete Borden er flúinn! Hann hlýtur að vera útsmoginn þrjótur, Cardby. Haíið þér annars nokkurn tíma hitt hann?“ „Ég man ekki eftir nafninu, en ég er nú líka farinn að tapa minni. Hvernig fór hann að því?“ „Eins og hann hafði sjálfur ráðgert. Honum heppnaðist að laumast út í heimsóknartímanum. Nú, það voru nú ekki lagðar neinar sérstakar hindranir í veg hans, auk þess var hann svo heppinn, að hundrað faðma frá útidyrunum stóð mannlaus bif- reið. Hann hlýtur að vera kominn góðan spöl írá Brixton núna“. „Þér hefðuð átt að vera varkárari. Hvað eigum við til bragðs að taka?“ „Ég fer og tala við blaðamennina. Það er sjaldan, að þeim veitist sá safasami lieiður að hitta mig sjálfan að máli, en ég vil gjarnan, að þessi sagan nái yfir forsíður blaðanna — svona á eitt skipti til tilbreytingar. Auk þess er bezt, að ég segi sjálfur söguna. Það má heldur ekki gefa allt of nákvæma lýsingu af strokumanninum. Honum verður að gefast tækifæri til þess að koma sér vel í skjól". „Það eina, sem ég óttast, er, að einhver klófesti hann áður en málið kemst á laggirnar. Og komi það fyrir, þá er ver farið en heima setið". „Við verðum að taka þá áhættu á okkur. Þér hafið vonandi sagt syni yðar, að honum sé fyllilega leyfilegt að lemja frá sér, ef liann kemst í hann krappan, þó með því skilyrði, að hann gera engan manna okkar að örkumlamanni". „Já, ég sagði honum, að ef einn lögregluþjónn reyndi að handsama hann, myndum við ekki segja neitt við því, þótt hann fengi rothögg, og glæpamaðurinn kæmist á flótta!" „Prýðilegt. Þetta er leiðinlegt fyrir lögregluþjóninn, en það er óþarfi að vera að gera sér grillur út af aumurn kjamma nú á dögum“. Það vakti ekki litla eftirtekt í blaðamannaherberginu, þegar sjálfur yfirforingi leynilögreglunnar birtist í dyrunum. Frétta- mennirnir voru orðnir því svo vanir að fá sínar upplýsingar frá fulltrúunum, að þeir höfðu gleymt jþví, að til væru aðrir em- bættismenn. „Góðan dag, herrar rnínir", sagði Cross. „Nú skuluð þið lá reglulega frétt“. Fréttamennirnir þyrptust utan um hann. „Ég er sjálfur ekki blaðamaður, svo að ég veit naumast, hvern- ig ég á að byrja. Þið munið sjálfsagt el'tir manninum í gæzlu- 24 — GESTUR varðhaldinu, scm slapp fyrir nokkrum vikum úr Brixton-fang- elsinu. Hann gekk sína leið rólegur í heimsóknartímanum". „Já“, svöruðu þeir einum rómi. Eins og sex lögreglufrétta- ritarar myndu gleyma strokufanga næstu mánuðina! „Þið munið sjálfsagt sömuleiðis eftir Pete nokkrum Borden, sem var dæmdur í sjö daga gæzluvarðhald fyrir bifreiðarþjófn- að?“ „Þessi, sem lögreglan elti í hálftíma?" spurði einn fréttaritar- inn. „Einmitt — sá sem var handtekinn í Regent-garðinum. Gott — og hann hefur sömuleiðis stungið af. Hann gekk út úr Brixton- fangelsinu í dag í heimsóknartímanum, nákvæmlega á sama hátt og fyrri strokumaðurinn. Nei, bíðið andartak með símtalið, ég hef ekki lokið máli mínu. Flóttinn komst ekki upp fyrr en fimrn mínútum síðar, og við höfum komizt að því; að hann stal mann- lausri bifreið, sem stóð nokkur hundruð metra frá fangelsinu. Ökusveitum lögreglunnar var þegar gert viðvart, og þær leita hans nú, en ég er hræddur um, að honum hafi gefizt tími til þess að koma sér undan. Ég mælist til þess við ykkur alla, að eins mikið sé gert úr fréttinni og unnt er, því að við kostum kapps um að ná ná- unganum sem fyrst. Nú, er hann leikur aftur lausum hala, get ég gjarnan upplýst, að okkur var meiri fengur í handtöku lians en okkur var unnt að greina frá í réttarhöldunum. Hann er slyngur, hættulegur og afar djarfur afbrotamaður. Ég skal gefa ykkur lýsingu á honum, svo að þið getið farið að harnra á sög- unni. Aldur h. u. b. 26 ár, hæð: 5 fet og 10 þumlungar; þyngd h. u. b. 150 pund; hárið jarpt, gráeygur; var seinast klæddur dökkgráum jakkafötum, með hvítan, stífaðan flibba og hvítdepl- ótt hálsbindi. Hann er álitinn hafa leitað hælis annað hvort í Balham, Mitcham, Camberwell eða East End. Jasja — þá megið þið rífast um símana. Nei, annars, eitt atriði enn: nefnið mig ekki á nafn í sam- bandi við þetta mál. Segið aðeins, að þið hafið fengið opinbera tilkynningu rannsóknarlögreglunnar. Það er nóg. Þið muntið fá frekari fregnir strax og eitthvað gerist. Verið þið sælir“. Fréttaritararnir voru komnir að símunum, þegar lögreglufor- inginn yfirgaf herbergið. Hann blístraði fyrir munni sér á leið- inni til skrifstofu sinnar. Öll þessi athöfn var hin mikilfengleg- asta og í fyllsta ósamræmi við fyrra liáttalag lögieglunnar. Til þessa hafði allt gengið samkvæmt áætlun. Maddick hafði aldrei skeytt um neinar leikreglur, og hvers vegna skyldi ekki lögreglan mega beita sömu brögðunum? Það var engin ástæða fyrir Nýja Scotland Yard að kæfa starfsemi sína í hefðbundnum venjum. Cardby sogaði pípu sína í gríð og erg og las skýrslu þrisvar sinnum yfir, áður en hann gerði sér ljóst innihald hennar. Hugs- anir hans voru annars staðar. Þær dvöldu hjá syni hans, sem nú var brennimerktur afbrotamaður, eltur at lögieglunni og á leið inn í gin ljónsins. Síðan varð honum hugsað til konu sinnar. Hún vissi ekkert um áformin, en hélt, að Michael sinn, blessunin, væri í fríi í Luzern, áður en hann fetaði í fótspor föður síns. Henni fannst slíkar ódýrar sumarferðir ágætasta dægiastytting! Mick Cardby varp öndinni léttar, þegar hann beygði fyrir vegginn, sem umgirti fangelsið, og ráfaði niður götuna. Augu lians leiftruðu af ánægju, þegar hann sá bifreið standa við gang- stéttarbrúnina. Það virtist ekki einber tilviljun, ékki sízt þegar hann sá, að enginn maður var nálægur bifreiðinni — og vélin var í gangi. Fimm mínútum síðar ók hann fyrir Kensington hornið og hélt áfram niður veginn að Westminsterbrúnni. Skömmu síðar beygði hann inn í Lambeth Lower Marsh, stöðv- aði bifreiðina og skildi hana eftir á götuhorni og gekk í áttina

x

Vikublaðið Gestur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið Gestur
https://timarit.is/publication/1067

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.