Morgunblaðið - 15.11.2011, Side 16

Morgunblaðið - 15.11.2011, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2011 Hörður Ægisson hordur@mbl.is Við endurmat á eignum viðskipta- bankanna þriggja hafa 76 milljarðar króna runnið til erlendra kröfuhafa hinna föllnu banka á meðan aðeins um 30 milljarðar króna eru eftir sem virðisaukning í nýju bönkunum. Þetta kom fram í máli fulltrúa Fjármálaeft- irlitsins, á fundi efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis í gær. Þetta þýðir með öðrum orðum að endurheimtur á lánasafni viðskipta- bankanna renna í miklu meira mæli – um 70% – til erlendra kröfuhafa held- ur en til hinna nýju endurreistu banka, að sögn Guðlaugs Þórs Þórð- arsonar, sem situr í efnahags- og við- skiptanefnd fyrir Sjálfstæðisflokkinn. „Stærstur hluti hagnaðarins af bætt- um endurheimtum á lánasafni bank- anna skilar sér ekki til íslenska hag- kerfisins heldur fer beint til útlendinga.“ Á fundi nefndarinnar var jafnframt upplýst að vogunarsjóðir væru stærstir í eigendahópi skilanefnda Kaupþings og Glitnis, en samkvæmt mati FME eiga sjóðirnir meira en 60% af öllum skuldabréfum bankanna tveggja. Guðlaugur tekur undir það sem fram kom hjá FME, að það sé mikið áhyggjuefni að „aðilar sem hafi aðeins skammtímasjónarmið að leið- arljósi séu meirihlutaeigendur að Ar- ion banka og Íslandsbanka“. Sú stað- reynd gerir það að verkum að mun torveldara en ella er að ráðast í skuldaafskriftir hjá heimilum og fyr- irtækjum, segir Guðlaugur. „Það er hagur neins, ekki heldur bankanna, að heimilin og fyrirtæki séu föst í skuldaspennitreyju til lengri tíma.“ Guðlaugur segir að fulltrúi FME hafi sagt að mikil pressa væri frá kröfu- höfum að bankarnir greiði út arð- greiðslur til þeirra. Guðlaugur segir það vekja upp áleitnar spurningar um hversu æski- legir eigendur vogunarsjóðir séu að íslenskum bönkum og bendir á að í lögum um fjármálafyrirtæki eru gerðar mjög miklar kröfur til eigenda banka. Endurmat eigna fer til erlendra kröfuhafa  Vogunarsjóðir eiga meira en 60% í Arion og Íslandsbanka Endurheimtur Vogunarsjóðirnir sem keyptu kröfur á gömlu bankana eftir fall þeirra hafa hagnast mikið á þeim viðskiptum. Kröfuhafar njóta hagnaðarins » 76 milljarðar af endur- heimtum á lánasafni bankanna fara til erlendra kröfuhafa á endanum. » Aðeins 30 milljarðar til nýju viðskiptabankanna » FME segir það áhyggjuefni að vogunarsjóðir séu meiri- hlutaeigendur að Arion og Ís- landabanka Bæði Landsbank- inn og Íslands- banki hafa lagt inn tilboð í Spari- sjóð Norðfjarðar. Þetta staðfestu talsmenn bank- anna í samtali við Morgunblaðið í gær. Landsbank- inn hefur þar að auki sent inn til- boð í Sparisjóð Svarfdæla. Arion banki hefur hins vegar ekki lagt fram tilboð í sjóðina. Í skriflegum svörum frá Íslands- banka kemur fram að bankinn hafi „áhuga á að efla þjónustu og styrkja starfsemi sína á Austfjörðum og hef- ur sent umsjónaraðilum söluferlisins á Sparisjóði Norðfjarðar tilboð um kaup á stofnfé í sjóðnum.“ Allt stofnfé Sparisjóðar Norð- fjarðar var auglýst til sölu í liðnum septembermánuði. Bankasýsla rík- isins fer með 49,5% af stofnfé sjóðs- ins fyrir hönd ríkissjóðs. Í sama mánuði var auk þess tilkynnt að 90% stofnfjárhlutur ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla, sem Bankasýsla ríkisins fer með, hefði verið settur í opið söluferli. Fjárhagslegri endurskipu- lagningu Sparisjóðs Svarfdæla lauk í desember 2010 og er 90% stofnfjár- hlutur ríkisins 382 milljónir króna að nafnvirði. hordur@mbl.is Bankar bjóða í sparisjóði Bitist um Sparisjóð Norðfjarðar Landsbankinn býður í sparisjóði. Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Jón Daníelsson, hagfræðingur við London School of Economics, segir að gjaldeyrishöftin á Íslandi eigi ekkert skylt við þær aðgerðir sem menn hafa ráðist í í ríkjum á borð við Suður-Kóreu og Brasilíu til þess að spyrna við raskandi áhrif- um mikils fjármagnsflæðis. Höftin hér á landi líkist fyrst og fremst hinum víðtæku höftum sem voru hér á landi á sjötta áratug síðustu aldar og þau hafi gríðarlega skað- leg áhrif á efnahagslífið. Engin ástæða hafi verið til þess að setja höftin á í upphafi og réttara hefði verið að feta þá leið sem lögð var til af sumum íslenskum sérfræðingum að leggja í þeirra stað tímabundinn skatt á útflæði fjármagns. Jón skrifar ásamt Ragnari Árna- syni, prófessor í hagfræði við Há- skóla Íslands, grein um skaðleg áhrif gjaldeyrishaftanna sem birt- ist á vefritinu Vox í gær. Í greininni kemur fram sú skoðun að útlend- ingar hafi tilhneigingu til þess að misskilja inntak og eðli þeirra hafta sem eru í gildi. Erlendir hagfræð- ingar líti á gjaldeyrishöftin hér á landi sem skammtímaúrræði til að koma í veg fyrir raskanir á raun- hagkerfinu vegna mikils fjár- magnsflæðis til og frá landinu. Þeir Jón og Ragnar segja hins vegar þetta vera fjarri veruleikanum þar sem nánast öll gjaldeyrisviðskipti eru háð leyfi Seðlabankans rétt eins og tíðkaðist á sjötta áratugn- um. Samkvæmt mati þeirra Jóns og Ragnars þá nemur efnahags- legur kostnaður hagkerfisins við höftin um einu prósenti af lands- framleiðslu á hverju ári. Jón og Ragnar telja ólíklegt að höftin verði afnumin í fyrirsjáan- legri framtíð og þar af leiðandi mun þjóðhagslegur kostnaður vegna þeirra stigmagnast. Engin ástæða til þess að grípa til gjaldeyrishafta Ennfremur kemur fram í grein þeirra að engin ástæða hafi verið til þess að setja gjaldeyrishöftin á á sínum tíma. Vissulega stóð íslenska hagkerfið frammi fyrir snjóhengju erlends fjármagns veturinn 2008 og hætta var talin á því að tilvist henn- ar gæti leitt til gengishruns krón- unnar þegar það myndi leita úr hagkerfinu. En þessi hætta var of- metin að mati Jóns og Ragnars en þeir benda á að íslenska krónan hafi farið niður í jafnvægisgengi sitt eftir bankahrunið og þar af leiðandi hafi eigendur að óbundnu erlendu fjármagni hér á landi haft ákveðinn hvata til þess að bíða eftir því að hagkerfið rétti úr kútnum áður en þeir færu með fé sitt úr hagkerfinu. Íhuguðu að setja skammtímaskatt á fjármagnsflutninga Í greininni segir að skynsam- legra hefði verið að setja skamm- tímaskatta á fjármagnsflæði úr landinu á þessum tíma en það hefði að mati Jóns og Ragnars dugað til þess að koma í veg fyrir tímabundið undirskot á gengi íslensku krón- unnar. Þeir segja ennfremur í greininni að íslensk stjórnvöld hafi viljað fara þá leið að skattleggja fjármagnshreyfingar frá landinu í stað þess að grípa til gjaldeyris- hafta en hinsvegar hafi sérfræðing- ar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins krafist þess að almenn gjaldeyrishöft yrðu sett á, meðal annars vegna þess að sértæk skattlagning myndi fyrst og fremst bitna á erlendum fjármagns- eigendum. Ísland í viðjum sömu hafta- stefnu og á sjötta áratugnum  Jón Daníelsson og Ragnar Árnason segja kostnað vegna gjaldeyrishaftanna nema um 1% af landsframleiðslu á ári hverju  AGS vildi höft frekar en skatt Morgunblaðið/Sverrir Förumenn Nánast öll gjaldeyrisviðskipti Íslendinga um þessar mundir, þar með talin þau sem tengjast ferðalögum, eru háð leyfi Seðlabankans. ● Gengi hlutabréfa Unicredit, stærsta banka Ítalíu, lækkaði mikið í gær eftir að bankinn tilkynnti að tap á þriðja árs- fjórðungi hefði numið 10,64 milljörðum evra, um 1700 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi. Stjórn bankans til- kynnti, að eigið fé bankans yrði aukið um 7,5 milljarða evra og til stæði að fækka störfum um 5200 fram til ársins 2015. Á sama tíma lauk ítalska ríkið við útgáfu skuldabréfa til fimm ára á hæstu ávöxtunarkröfu í fjórtán ár. Ítalska ríkið seldi skuldabréf fyrir 3 milljarða evra á kröfunni 6,29%. Í síðasta útboði stjórn- valda í Róm á fimm ára skuldabréfum í október var krafan 5,32% þannig að krafan er búin að hækka um ríflega 100 punkta á einum mánuði. Slæm tíðindi berast enn af ítalska hagkerfinu ● Atvinnuleysi mældist 6,8% í október samkvæmt mælingum Vinnu- málastofnunar. Að meðaltali voru 10.918 atvinnu- lausir í október og fjölgaði atvinnu- lausum um 159 að meðaltali eða um 0,2 prósent frá september.Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi í nóvember verði á bilinu 6,9% -7,2%. Atvinnuleysið var 7,7% á höfuðborgarsvæðinu í október en 5,2% á landsbyggðinni. Mest var það á Suðurnesjum, 11,5%, en minnst á Norð- urlandi vestra, 2,2%. Atvinnuleysið var 6,5% meðal karla og 7,2% meðal kvenna. 6,8% atvinnuleysi 11 þúsund voru án vinnu í október. ● Skuldabréfavísitala Gamma lækkaði um 0,2% í gær en heildarveltan á mark- aðnum nam ríflega 4 milljörðum. Verð- tryggða vísitala Gamma lækkaði um 0,2% í 900 milljóna króna viðskiptum en óverðtryggða vísitalan hækkaði lít- illega, eða um 0,1%, í viðskiptum fyrir um 3,2 milljarða króna. Skuldabréfa- vísitala Gamma hefur hækkað um 10,8% frá áramótum en þróunin hefur verið dregin áfram af verðtryggðu vísi- tölunni sem hefur hækkað um 15,2%. Rólegt í skuldabréfum Stuttar fréttir…                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +0/-,1 ++2-./ 1+-10. 13-/.+ +4-/1, +10-+1 +-,311 +0+-5/ +,0-/, ++,-51 +0/-54 ++2-54 1+-2/0 13-,1+ +4-/4. +10-/0 +-,3.. +01-/0 +,0-05 1+/-1540 ++.-1 +0,-/1 ++/-2 1+-/+ 13-,0+ +4-,14 +10-0/ +-,++ +02-31 +,5-22 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Do- hop hefur gert samning við SEA á Ítalíu, rekstraraðila Malpensa- flugvallarins í Mílanó, um þróun og rekstur sérsniðinnar flugleitar fyrir vef flugvallarins. Flugleitin á vef Malpensa er sérsniðin þannig að hún finnur ferðir með millilendingu í Mílanó, sem gerir flugvöllinn að nokkurs konar gátt til og frá Evrópu. Dohop var stofnað á Íslandi árið 2004. Fyrirtækið hefur aðsetur í Reykjavík og þar starfa í dag átta manns við þróun, rekstur og markaðssetningu ferðaleitarvélarinnar Dohop.is. Á vefnum er boðið upp á flugleit, leit að hótelgistingu og að bílaleigubílum. Dohop semur við Mal- pensa-flugvöllinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.