Morgunblaðið - 15.11.2011, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2011
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði,
Stangarhyl 4, fimmtudaginn 10. nóvember.
Spilað var á 14 borðum. Meðalskor: 312 stig.
Árangur N-S:
Júlíus Guðmss. – Magnús Halldórss 422
Jón Þór Karlss. – Birgir Sigurðss. 358
Valdimar Ásmundss. – Björn Péturss. 353
Björn Svavarss. – Tómas Sigurjónss. 347
Árangur A-V:
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 360
Albert Þorsteinss. – Bragi Björnsson 355
Sigtryggur Jónss. – Jón Hákon Jónss. 354
Óli Gíslason – Einar Einarsson 351
Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 13/11 var fyrsta kvöldið í
fjögurra kvölda tvímenningskeppni. Spilað
var á tíu borðum. Hæsta skor kvöldsins í
N/S:
Vigfús Vigfúss. - Jakob Vigfússon 298
Ólöf Ólafsd. - Lilja Kristjánsd. 257
Ragnar Haraldss. - Berhard Linn 239
Austur/Vestur:
Björn Arnarson - Jörundur Þórðars. 280
Oddur Hanness. - Árni Hannesson 268
Snorri Markúss. - Ari Gunnarsson 242
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14,
á sunnudögum kl. 19.
Sveitakeppni eldri borgara í brids
Sveitakepni eldri borgara í Reykjavík og
Hafnarfiði var haldin í Hraunseli, húsnæði
eldri borgara í Hafnarfirði, 11. nóvember.
Spilað var á 20 borðum þar sem keppt var
um farandbikar sem Hafnarfjarðarbær gaf
til keppninnar í tilefni af 100 ára afmæli bæj-
arins 2007.
Að þessu sinni unnu Reykvíkingar með
157 stigum gegn 138 stigum Hafnfirðinga og
halda því bikarnum hjá sér næsta árið.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Elsku afi. Nú ert þú fallinn frá
en góðar minningar um þig og
okkar samverustundir lifa áfram.
Við minnumst ótal ferða með þér
um Ísland þar sem þú kynntir
okkur fyrir náttúru landsins eins
og þér var einum lagið. Þér tókst
með þessum ferðum að kenna
okkur að meta landið okkar og
fegurð þess, sem er arfleifð sem
við munum vonandi geta kynnt
afkomendum okkar.
Það var mikill dugnaður sem
einkenndi þig sem við bræðurnir
urðum vitni að og varð okkur til
fyrirmyndar til framtíðar. Sem
dæmi má nefna þegar þú og
pabbi byggðuð stóran hluta af
Sigurður Emil
Ágústsson
✝ Sigurður EmilÁgústsson
fæddist að Berg-
staðastræti 28 í
Reykjavík 29. jan-
úar 1921. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli 29.
október 2011.
Útför Sigurðar
fór fram frá Hall-
grímskirkju 11.
nóvember 2011.
æskuheimili okkar
nánast með berum
höndum.
Sem krakkar
langaði okkur alltaf
að vera jafn miklir
töffarar og þú þegar
þú varst í lögreglu-
búningnum á mót-
orhjólinu. Barátta
þín fyrir bættu um-
ferðaröryggi var
þér mikið hjartans
mál sem samfélagið mun njóta
góðs af til framtíðar. Til að lýsa
þér í nokkrum orðum eru það
orðin dugnaður, heilbrigt líferni
og reglusemi sem lýsa þér best.
Við horfðum alltaf mikið upp
til þín og erum þakklátir fyrir að
hafa átt þig sem afa og haft þig
sem fyrirmynd. Vonandi munum
við geta lifað okkar lífi eftir þeim
góðu gildum sem þú lifðir eftir.
Njörvasund og það heimili sem
þú og amma byggðuð upp mun
ávallt eiga sérstakan stað í okkar
hjarta.
Blessuð sé minning þín.
Sigurður Valgeir
Guðjónsson og Sveinn
Heiðar Guðjónsson.
Ég kveð hann afa minn Ósk-
ar eða Ó-a eins og hann var
gjarnan kallaður með söknuði
því mikið afskaplega þótti mér
vænt um hann. Það var alltaf
gott að koma til afa og ömmu
og þær eru margar skemmti-
legar minningarnar sem ég á
úr Ártúninu þegar ég dvaldi
þar í góðu yfirlæti. Margar
ferðirnar ferðaðist ég austur
yfir heiðina með þér, afi minn,
á mjólkurbílnum og alltaf var
maður kvaddur með „smá aur,
væni“.
Afi Ó-i var einstakur maður
sem var ávallt samur við sig,
hann hugsaði gríðarlega vel
Óskar
Böðvarsson
✝ Óskar Böðv-arsson fæddist
í Garðbæ í Grinda-
vík 26. mars 1923.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu
Kumbaravogi 4.
nóvember 2011.
Útför Óskars fór
fram frá Selfoss-
kirkju 11. nóv-
ember 2011.
um allt sitt og var
þá alveg sama
hvort það voru
fjölskyldan, skyld-
menni, vinir, hús-
ið, bíllinn eða
garðurinn. Alltaf
var hann að og
vinnusemin mikil.
Afi Ó-i var tilbú-
inn að hjálpa mér
og fór vel yfir
hvernig fara ætti
með „aurana sína“ og vera
ekki að bruðla í neinn óþarfa –
„bara rugl“ er orðasamband
sem hann gjarna setti fram
þegar honum fannst frjálslega
farið með fjármuni eða annað
sem var honum ekki að skapi.
Minningin um hann elsku afa
minn verður alltaf sterk og
ljúf. Ég votta ömmu Unnu
mína dýpstu samúð sem og
allri fjölskyldunni.
Þessi lína með Hjálmum er
mér ofarlega í huga þessa dag-
ana: „Vertu sæll, kæri vinur,
ég kveð þig nú með sorg í
hjarta og tár á kinn.“
Ingi Þór Steinþórsson.
Yndisleg kona er fallin frá og
langar mig til að minnast henn-
ar í fáum orðum.
Elsa tengdamóðir mín var
hörkukona, það var ekkert sem
stóð í vegi fyrir henni hvort
sem það var að leggja rafmagn,
steypa, smíða, mála og jafnvel
bílaviðgerðir, hún var með
ákveðnar skoðanir en samt svo
ljúf og blíð. Hún var mjög góð-
ur hlustandi og skipti þá engu
hvort það voru börn, tengda-
börn eða barnabörn sem leit-
uðu til hennar bæði í gleði og
eins í erfiðleikum – hún náði yf-
irleitt góðum tökum á málunum
og allir fengu að hafa sína
skoðun.
Maðurinn minn sagði mér
fyrir margt löngu að þegar þau
systkinin voru yngri og varð á
að missa það út úr sér að „þeim
Elsa Guðbjörg
Jónsdóttir
✝ Elsa GuðbjörgJónsdóttir
fæddist á Svalbarði
á Borgarfirði
eystra 7. september
1928. Hún lést á
Heilbrigðisstofn-
uninni á Egils-
stöðum 4. nóv-
ember 2011.
Útför Elsu var
gerð frá Bakka-
gerðiskirkju 12.
nóvember 2011.
leiddist“ þá sagði
Elsa: „Þá ert þú
bara ekki nógu
skemmtileg(ur)
sjálf(ur)“ því alltaf
er jú hægt að finna
sér eitthvað til
dundurs. Ég man
eftir atviki þar sem
ég minnti barna-
barn hennar á
þessa gullnu setn-
ingu – seinna
ræddi ég þetta atvik við Elsu,
sem sagði „Já, þetta er bara al-
veg rétt.“ Ég tók undir þetta
og sagðist alltaf muna eftir því
þegar hún sagði þetta við mig,
nú varð Elsa hissa og sagði:
„Ég trúi því nú ekki að ég hafi
sagt þetta við þig.“ Ó, jú það
gerði hún blessunin og hafði ég
bara nokkuð gott af því og ef
það örlar á því að mér leiðist í
dag þá hugsa ég alltaf um þetta
með bros á vör og hef ég reynt
að breiða út þennan boðskap
Elsu nokkuð víða.
Elsku Elsa, það er svo margt
sem mig langar að skrifa um
þig, af nógu er að taka, minn-
ingarnar streyma fram, en læt
þetta litla brot duga að sinni.
Hafðu þökk fyrir allt og ég
veit að það hefur verið tekið vel
á móti þér. Skilaðu kveðju.
Þín tengdadóttir,
Arna Soffía.
Árið 1980 byrjaði ég sem
matreiðslunemi í Múlakaffi
sem var þá rekið af þeim hjón-
unum Stefáni Ólafssyni heitn-
um og Jóhönnu R. Jóhannes-
dóttur og fjölskyldu af miklum
dugnaði og ástríðu fyrir góð-
um heimilismat, veislum og
heimsfrægum þorramat. Á
þessum rúmum 30 árum sem
ég hef verið matreiðslumaður
þar lærðum við að vinna og að
sjálfsögðu að elda alvöru
heimilismat. Þó svo Stefán
hefði meira um rekstur Múla-
kaffi að segja var Jóhanna
alltaf honum til halds og
trausts og mætti alla daga til
vinnu.
Á þessum árum bar ekki
mikið á Jóhönnu. Hún var jú
alltaf við hliðina á sínum
manni, en til að skilja tilgang
þess að hafa svo traustan lífs-
förunaut þarf maður sjálfur að
eldast til að sjá hversu mik-
ilvægt er að hjón vinni saman í
blíðu og stríðu. Og það vantaði
ekkert upp á það hjá Jóhönnu.
Þau hjónin voru yndislegustu
vinnuveitendur enda var
manni hrósað og maður ávítt-
ur eftir þörfum en ávallt leið-
beint til betri vegar. Múlakaffi
er staður sem hefur haldið
skildi yfir hefðum Íslendinga í
heimilismat og þorramat og
Jóhanna R.
Jóhannesdóttir
✝ Jóhanna R. Jó-hannesdóttir
fæddist 13. desem-
ber 1933 í Reykja-
vík. Hún lést á líkn-
ardeild
Landspítalans á
Landakoti 3. nóv-
ember 2011.
Útför hennar var
gerð frá Bessa-
staðakirkju 14.
nóvember 2011.
haldið sinni sér-
stöðu í mörg ár
þrátt fyrir nýjar
matreiðsluaðferðir
en hefðir eru eitt-
hvað sem við verð-
um að halda í.
Ég er viss um
að Stefán og Jó-
hanna eru mjög
stolt af fjölskyldu-
fyrirtækinu Múla-
kaffi sem hefur
verið leiðandi í veitingaþjón-
ustu til margra ára undir leið-
sögn Jóhannesar og hans fjöl-
skyldu sem hefur stækkað og
dafnað, enda er dugnaður og
elja vel þekkt í fjölskyldunni.
Það er satt með eplið og tréð.
Mig langar að kveðja þessi
sómahjón núna þó langt sé síð-
an Stefán féll frá og Jóhanna
núna nýverið. Jóhanna er kom-
in Stefáni við hlið aftur og
verða þetta miklir fagnaðar-
fundir hjá þeim. Þakklæti mitt
til ykkar. Þið og Múlakaffi
verðið alltaf í hjarta mér með
hlýju.
Elsku Jóhannes, Ingvar,
Kristín og fjölskyldur. Ég
sendi ykkur mínar innilegustu
samúðarkveðjur. Megi Guð
vera með ykkur.
Guðmundur
Viðarsson.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Gæði
Þjónusta
Gott verð
Úrval
Fagmennska
Kársnesbraut 98 | Kópavogur | S: 564 4566
www.solsteinar.is | sol@solsteinar.is
✝
Hjartans þakkir fyrir hlýhug, stuðning og
aðstoð í veikindum og við andlát og útför
HAUKS ÁSTVALDSSONAR
bónda
frá Deplum
í Fljótum.
Ástúð ykkar og vinátta hefur gert dagana
bærilegri og veitt okkur styrk. Guð blessi ykkur öll.
Innilegustu þakkir og kveðjur til starfsfólks Heilbrigðisstofnun-
arinnar á Sauðárkróki fyrir ómælda þolinmæði og alúð síðustu
mánuði.
Fjölskyldan frá Deplum og aðrir aðstandendur.
✝
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúðar-
kveðjur við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, stjúpföður okkar, tengdaföður,
afa, bróður, mágs og frænda,
ÓLAFS H. ÓSKARSSONAR
fv. skólastjóra,
Logalandi 16,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Björnsdóttir,
Vilhjálmur Þorsteinsson, Anna Ragna Magnúsardóttir,
Þorsteinn og Hlín,
Björn Þorsteinsson, Sigrún Sigurðardóttir,
Snædís, Matthildur og Lena Charlotta,
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir, Ásgeir Thoroddsen,
Tómas Jökull, Ingibjörg og Svanbjörn Orri,
Signý Þ. Óskarsdóttir og börn,
Anna H. Óskarsdóttir, Þorgrímur Ólafsson og synir,
Þráinn Sigurbjörnsson og synir,
Skarphéðinn P. Óskarsson, Valgerður G. Björnsdóttir
og dætur.
✝
Elskuleg móðir okkar,
KRISTJANA SAMÚELSDÓTTIR,
lést á öldrunardeild Fjórðungssjúkrahússins
á Ísafirði sunnudaginn 13. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Samúel Gústafsson,
Anna Lára Gústafsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR
úr Von,
Reykási 47,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn
11. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Lilja Sigurðardóttir,
Jón Gunnar Sigurðsson, Cheryl Jonsson,
Viðar Marel Jóhannsson,
Birgir Marel Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HÓLMFRÍÐUR V. KRISTJÁNSDÓTTIR,
Hæðargarði 29,
lést á heimili sínu sunnudaginn 13. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Helga Þorkelsdóttir, Andrés Þórðarson,
Kristján Þorkelsson, Sigurdís Sigurðardóttir,
Guðmundur Þorkelsson, Kristjana Guðmundsdóttir,
Guðríður Þorkelsdóttir, Guðmann Héðinsson,
Viðar Þorkelsson, Sigríður Svava Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.