Morgunblaðið - 15.11.2011, Síða 32
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Flóttagat tólf, Íranakál á Kanarí,
rassakalipsó-spilakassar og il á
mannamáli, hvað er nú það? Jú,
allt eru þetta samhverfur úr
smiðju hinna mjög svo hug-
myndaríku grínmeistara í
Baggalúti. Hópurinn ætlar
sem fyrr að taka jólin með
trompi og gefur út plötu og
tvær bækur enda hópurinn
„bestur í jólum“, að því er
fram kemur í fagmannlega
ritaðri fréttatilkynningu frá
hópnum. Hljómplatan nefn-
ist Áfram Ísland! og hefur
að geyma lög sem hafa
ekki verið gefin út áður,
m.a. afmælisóðinn „Gjöf“
sem saminn var handa
Vigdísi Finnbogadóttur,
gömul lög og tvö ný. Þá gefur
Baggalútur út bókina Týndu
jólasveinarnir, 24 minna
þekktir jólasveinar tíndir til
og má þar nefna Litlapung
og Reykjarsvelg. Í þriðja og
síðasta lagi er það svo sam-
hverfubókin Riddararaddir
sem hefur að geyma 33 íslenskar
samhverfur. Sú bók er sú fyrsta í röð-
inni Vísdómsrit Baggalúts, jóla-
sveinabókin er önnur í röðinni en
myndlistarmaðurinn Bobby Breið-
holt sá um að myndskreyta bæði vís-
dómsritin.
Baggalúturinn Bragi Valdimar
Skúlason bendir á þá skemmtilegu
staðreynd að á plötuumslagi Áfram
Ísland! sé ljósmynd frá Færeyjum,
færeyskt sauðfé í virðulegum stell-
ingum í færeysku landslagi. Platan
er sem sagt ekki öll þar sem hún er
séð. Á plötunni er allt undir hjá
Baggalúti, allur tilfinningaskalinn
tekinn fyrir í laga- og textasmíðum
og miklar stílæfingar á ferð, allt frá
kántríi til pönkrokks. „Svo er þarna
heill sumarsmellur, stílæfing sem
enginn fattaði og sérstaklega kvartað
yfir því við útvarpsstöð, hvern djöf-
ulinn væri verið að spila þetta drasl,“
segir Bragi kíminn og á þar við lagið
„Saman við á ný“. Guðmundur Páls-
son samdi megnið af textanum við
það lag og segir Bragi textann léleg-
an, þar af leiðandi.
15 ára samhverfuvinnsla
-Að samhverfum, það er varla neitt
grín að finna þær? Hefur þú legið yfir
þessu eða þið allir?
„Hún er nú ekki þykk, þessi bless-
aða bók og það er svo sem meira til að
moða úr á heimasíðunni okkar. Ég
held ég geti sagt að það liggi þrotlaus
vinna á bak við þessar samhverfur.
Ég held þetta hafi tekið u.þ.b. 15 ár í
vinnslu, félagi minn Örlygur Bene-
diktsson á nú mjög mikið þarna af
samhverfum, við vorum með þetta
gjörsamlega á heilanum í mennta-
skóla, vorum varla viðræðuhæfir
í samhverfuleit okkar,“ segir
Bragi. Hann hafi á tímabili varla
getað lesið bók þar sem hann var
í sífelldri leit að samhverfum.
„Mér skilst að þetta sé
ákveðin leit að geðveilu,
að vera svona aftur-
ábak og áfram. Við
köllum þetta ekki að
semja samhverfur heldur að finna
samhverfur, þær hoppa á mann þeg-
ar maður er í þeim gírnum.“ Bragi
segir leiðinlegt að segja frá því að
margar flottustu samhverfurnar séu
aðsendar. Þær séu fagurlega mynd-
skreyttar í bókinni af Bobby Breið-
holti og Baggalútssamsteypan sé að
hugleiða að ættleiða hann. Bragi
segir fleiri rit í vændum frá sam-
steypunni, fréttahefti og söngbók
og fleira gott.
Lítill í sér
-Svo eru það jólasveinarnir.
Litlipungur, hvað geturðu sagt
mér um hann?
Bragi hlær og segir Lit-
lapung dálítið lítinn í sér.
„Þessi nöfn eru raunveruleg.
Jóhannes úr Kötlum er nú
höfuðpaur þessara þrettán og
ég er með þá kenningu að hann
hafi ekki nennt að gera fleiri en
þrettán vísur. Hann hætti bara
og þá voru hundrað nöfn eftir.
Þannig að við erum aðeins að
grynnka á þessum jólasveinum
sem voru skildir útundan. Þetta
eru allt nöfn úr þulum, þar með
talið Baggalútur og Litlipungur sem
er mjög áhugaverður sálfræðilega.“
Bragi orti vísur fyrir sveinana og seg-
ir dálítið migið utan í Jóhannes úr
Kötlum hvað stílinn varðar.
-Ert þú svo ekki á fullu í öðrum
verkefnum, Diskóeyju-söngleiknum
og öðru, svona aukaverkefnum?
„Jú, jú, jú, svona litlum, sætum
hliðarverkefnum, söngleikjum. Jú,
það er áætlað núna næsta haust,“
segir Bragi. Þeir Óttarr Proppé og
Kiddi Hjálmur eigi hugmyndina að
söngleiknum, hafi setið í sumar yfir
söguþræðinum og þessa dagana sé
verið að negla saman senur og panta
nógu mikið glimmer til að hægt verði
að setja söngleikinn upp. Þá er önnur
plata á leiðinni, framhald af Diskóeyj-
unni. „Diskóeyjuplatan dugar í svona
hálfan söngleik, efnislega, þannig að
við ætlum að gera seinni helminginn
núna,“ segir Bragi og telur að hún
komi út næsta haust.
-Verður það þá Diskóeyjan 2?
„Já, eitthvað í þá veru, kannski
með örlítið hressilegri titli,“ segir
Bragi baggalútur að lokum, hirð-
skáldið góða.
Samhverfur Myndskreyting við samhverfuna Írakabakarí úr bókinni
Riddararaddir. Platan Áfram Ísland! kom út samhverfudaginn 11.11.11.
Íranakál á Kanarí
Sprelligosarnir í Baggalúti gefa út plötu og tvær bækur fyrir þessi jól enda
bestir í jólum 33 samhverfur, 24 týndir jólasveinar og áður óútgefin lög
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2011
Hljómsveitin Pascal Pinon,
skipuð 17 ára tvíburasystrum,
Jófríði og Ásthildi Ákadætrum, er
komin heim á klakann eftir ævin-
týralega tónleikaferð um Kína og
hefur ritað ferðasöguna á netið, á
bloggsíðu sína pascalpinon.blog-
spot.com. Stúlkurnar staldra þó
stutt við því þær halda á föstudag-
inn í aðra tónleikaferð, til Þýska-
lands, Austurríkis og Ítalíu en tón-
listarsjóðurinn Kraumur styrkti
þær til tónleikaferðar í maí síðast-
liðnum. Í ferðasögunni kemur m.a.
fram að þær hafi verið í klukkutíma
að árita diska og sitja fyrir á mynd-
um með aðdáendum eftir vel
heppnaða tónleika í Hangzhou á
West Lake Festival.
Nýkomnar frá Kína
og á leiðinni út aftur
Hljómsveitin Contalgen Fun-
eral heldur í tónleikaferð um Norð-
urland vestra á fimmtudaginn, 17.
nóvember. Fyrstu tónleikarnir, í fé-
lagsheimilinu á Laugarbakka 17.
nóvember, hefjast kl. 20. Degi síðar
spilar hljómsveitin á Eyvindarstofu
á Blönduósi kl. 20. Kl. 23 sama
kvöld heldur hún tónleika í Kántrý-
bæ á Skagaströnd og á sunnudag-
inn kemur hún fram í Sauðárkróks-
kirkju kl. 20. Hljómsveitin flytur
blússkotið kántrírokk og var stofn-
uð í fyrra og hefur m.a. komið fram
á Iceland Airwaves.
Ljósmynd/Davíð Már Sigurðsson
Contalgen Funeral á
Norðurlandi vestra
Nokkrar vel valdar samhverfur,
fengnar af vef Baggalúts.
Nemar unnu nunnur - amen
Rassakalipsó-spilakassar
Illugi er allur, drullar ei gulli
Tregða, gón, reiði - er nóg
að gert?
Amma sá afa káfa af
ákafa á Samma
Snið rollu; fullorðins
Skólalóð Óla Lóks
Tiramísú-símarit
Málklám
Ryksuguskyr
RIDDARARADDIR
Bragi Valdimar
Skúlason
Samstarf þeirra Gylfa Æg-issonar, Rúnars Þórs ogMegasar sem GRM hefurverið óvenjulega farsælt og
hefur nú getið af
sér tvær plötur og
fjöldann allan af
tónleikum. Þessi
gerningur þeirra
verður að flokkast
sem ein óvæntasta
uppákoma síðustu ára hvað ís-
lenskri popptónlist viðvíkur og þeg-
ar ég segi „óvenjulega farsælt“ vísa
ég í það að maður hafði ekki mikla
trú á að þetta myndi endast eitt-
hvað. Þann hatt þarf ég nú að éta.
Svo virðist sem þessi félagsskapur,
sem hefur grallaraskap og kátínu á
dagskipuninni, hafi á einhvern hátt
losað um þessa þrjá meistara og
veitt þeim færi á að njóta sín frekar
en að vera eilíflega að mæta ein-
hverjum utanaðkomandi vænt-
ingum. Þetta skilar sér í skemmti-
legri plötu sem tekur sig aldrei
hátíðlega. Sérstaklega á fram-
angreint við um Megas og manni
verður óhjákvæmilega hugsað til
þátttöku Bobs Dylans í Travelling
Wilburys-ævintýrinu þegar maður
heyrir meistarann rúlla sér kank-
vísum í gegnum lög eins og „Stolt
siglir fleyið mitt“ eða „Fallerí, fall-
era“.
Megas nær reyndar að ljá fyrr-
nefnda laginu dýpt og tilfinningu
sem maður hefur ekki numið í því
fyrr. Megas er eins og Van Morr-
ison, gæti sungið símaskrána af
óhefluðum tilfinningaþunga ef því
væri að skipta. Platan flæðir annars
skemmtilega áfram, þríeykið skiptir
með sér söng í valinkunnum perlum
hvers um sig, græskulaust gaman
númer eitt, tvö og þrjú. Og hvað á
maður síðan að gefa svona verki?
Nú, auðvitað þrjár stjörnur …
„Allir kátir skemmta sér“
GRM - Þrjár stjörnur
bbbnn
ARNAR EGGERT
THORODDSEN
TÓNLIST
Gleði GRM snýst um fölskvalausa kátínu og heilnæmt kæruleysi.
Það er eitthvað við Balkan-skagamúsík sem gerirhana ómótstæðilega, ekkisíst fyrir unga hljóðfæra-
leikara eins og sannast á þessari
prýðisskífu Orphic Oxtra. Sveitina
skipa þrettán hljófæraleikarar og
var hún stofnuð á sínum tíma af
nemendum við Listaháskólann eða
skóla FÍH.
Það vakti athygli
við fyrstu skífu
sveitarinnar, sam-
nefnda henni sem
kom út fyrir ári, að
öll lögin á henni
nema eitt voru eftir
hljómsveitarmeðlimi, hér var ekki
verið að vinna úr gömlu efni heldur
að skapa eitthvað nýtt. Svo er og
með þessa skífu; öll lögin á henni eru
eftir hljómsveitarmeðlimi, en í einu
þeirra er þó listilega snúið út úr lagi
eftir rokksveitina Swords of Chaos.
Balkantónlist á við þá sem Orphic
Oxtra leikur er nýtt við gleðilegar
athafnir, en líka til að sefa sorg.
Þannig hentar hún jafn vel til að
skrúfa upp fjörið í brúðkaupi og að
þerra tárin í jarðarför. Það er helst
að menn stilli taktinn eftir því sem
viðeigandi þykir, en í því felst og
stundum galli á slíkri tónlist, þegar
menn keppast við að spila svo hratt
og nákvæmt að úr verður íþrótt en
ekki skemmtun, en hjá því sneiða
liðsmenn Orphic Oxtra vel; spila-
mennskan er frábær, en alltaf líf-
ræn, ef svo má segja, lifandi og sjóð-
andi heit.
Lög eru mörg framúrskarandi, til
að mynda einkar vel heppnuð „balk-
anísering“ á Swords of Chaos-laginu
Skeletons Having Sex on a Tin Roof,
en Maritsa eftir Hauk Þór Harð-
arson er líka frábært lag, vel saman
sett með mjög skemmtilega stíg-
andi. Hvað er næst? eftir Óskar
Kjartansson er líka forvitnilegt lag,
uppbygging þess snúin og stingur
skemmtilega í stúf við það sem á
undan er komið. Eins má nefna Or-
feus Brekonovitsjí polka! sem er
lunkin lagasmíð og mikið fjörlag.
Hér sé stuð!
Orphic Oxtra - Kebab Diskó
bbbmn
ÁRNI
MATTHÍASSON
TÓNLIST
Teikning/Bobby Breiðholt