Morgunblaðið - 15.11.2011, Síða 36

Morgunblaðið - 15.11.2011, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 319. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Lést af völdum ofkælingar 2. Andlát: Páll Heiðar Jónsson 3. Farþegi stal frá flugþjóni 4. Sævald er fundinn »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Aron Hannes Emilsson er fyrsti sig- urvegari Jólastjörnu N1 og Stöðvar 2. Mun hann koma fram á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar 3. des. Aron er frá Grundarfirði og hefur sungið og komið fram frá 5 ára aldri. Aron Hannes er Jólastjarnan 2011  Danstvíeykið Steinunn Ketils- dóttir og Brian Gerke vinnur nú að verkinu „The Bodies“ sem frumsýnt verður næsta haust hér á landi sem og er- lendis. Verk þeirra „Steinunn and Brian DO art; How to be Original“ hefur fengið góðar við- tökur erlendis og framundan sýning- ar á því í Svíþjóð og í Bandaríkjunum. The Bodies verður frumsýnt á næsta ári  Von er á framhaldi barnaplötunnar Diskóeyjunnar, í flutningi Prófessors- ins og Memfismafíunnar, á næsta ári. Laga- og textahöfundur Diskóeyj- unnar, Bragi Valdimar Skúlason, greinir frá þessu en hann er þessa dagana að semja söngleik upp úr Diskóeyjunni með Óttari Proppé og Kristni Jónssyni úr Hjálmum. »32 Framhald Diskóeyju væntanlegt 2012 Á miðvikudag og fimmtudag Suðaustan og austan 5-10 m/s með vætu, en hægari og úrkomulítið norðanlands. Hiti 5 til 12 stig. Á föstudag Hæg, breytileg átt, skýjað að mestu en úrkomulítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir með morgninum, sunnan 3-10 eftir hádegi. Vætusamt sunnanlands, annars úrkomulítið. Hiti 7 til 14 stig. VEÐUR Þormóður Árni Jónsson júdókappi úr Júdófélagi Reykjavíkur lagði mikið á sig til að komast á heims- bikarmótið í Samoa-eyjum þar sem hann komst í úr- slitaglímuna. Eftir tveggja sólarhringa ferðalag frá Prag í Tékklandi komst Þor- móður á keppnisstaðinn en hafði sem betur fer fimm nætur til að jafna sig fyrir átökin og það dugði, enda var árangurinn frábær. »4 Ferðaðist í tvo sólarhringa Sigurbergur Sveinsson, leikmaður Basel í Sviss, verður ekki með ís- lenska landsliðinu í handknattleik þegar það fer á Evrópumótið í Serbíu í janúar. Hann hefur glímt við meiðsli í hné, fór í aðgerð og verður frá keppni í átta til tíu vikur. „Það varð ekki hjá því kom- ist að fara í þessa aðgerð núna,“ sagði Sigurbergur við Morgunblaðið. »1 Sigurbergur verður ekki með á EM í Serbíu Hjálmar Jónsson frá Egilsstöðum er sá íslenski knattspyrnumaður sem hefur verið lengst samfleytt atvinnu- maður hjá sama félaginu. Hjálmar er að hefja sitt ellefta tímabil sem leik- maður IFK Gautaborg í Svíþjóð. „Auðvitað hef ég stundum leitt hug- ann að því að breyta til en mér hefur liðið vel allan tímann hérna,“ segir Hjálmar. »1 Leikur sitt ellefta ár með IFK Gautaborg ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Ég fæddist svona og þetta uppgötv- aðist fljótlega,“ segir Hafdís Erla Helgadóttir, 18 ára, en hún er með svokallaðan þríblöðkulokugalla í hjarta. Hafdís Erla á heiðurinn af jólakorti samtakanna Hjartaheilla í ár. Hún segir hjartasjúkdóminn lítið há sér í leik og starfi, en í frí- stundum sínum æfir hún og kennir karate. „Ein hjartalokan er aflöguð og á röngum stað, hún er þremur senti- metrum ofar en hún á að vera,“ segir Hafdís Erla. Að sögn móður hennar, Helgu Arnardóttur, veldur þessi tegund hjartagalla einnig því að of mikið blóðflæði fer inn í hjartalok- una og það getur valdið miklu álagi á hjartað. Hafdís Erla segir sjúkdóminn hafa haft lítil áhrif á líf sitt. Þegar hún var yngri fékk hún hjartsláttar- truflanir, en eftir hjartaþræðingu í Boston fyrir fjórum árum finnur hún ekki fyrir þeim lengur. Alltaf verið þátttakandi í lífinu Helga, móðir Hafdísar Erlu, segir að þau foreldrarnir líti nokkuð öðr- um augum á sjúkdóminn og heilsu- far Hafdísar. „Við höfum aldrei hlíft henni og alltaf leyft henni að vera þátttakandi í lífinu. En hún var oft mjög veik þegar hún var yngri, en ég held að hún sé búin að gleyma því,“ segir Helga. Hafdís Erla hefur æft karate frá tíu ára aldri og æfir nú þrisvar í viku. Að auki þjálfar hún hóp barna á aldrinum 6-10 ára. Hún stundar nám á náttúrufræði- braut í Fjöl- brautaskóla Vesturlands og á að sögn tvær annir eftir til stúdentsprófs. „Vin- ir mínir eru ekkert sérstaklega að velta því fyrir sér að ég sé með hjartasjúkdóm. Sjálf tala ég lítið um það og það er fyrst og fremst vegna þess að ég er ekkert alltaf að hugsa um þetta. Þetta er ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég fer að segja frá sjálfri mér.“ Jólasveinar á ferð og flugi Myndlist hefur lengi verið áhuga- mál Hafdísar Erlu. Á jólakortinu getur að líta nokkra glaðværa lopa- peysuklædda jólasveina bregða á leik, þar sem einn sveinninn sveiflar sér í ljósakrónu. „Mig langaði ekki til þess að teikna týpískt jólakort með jólasveini á sleða. Ég vildi hafa einhverja hreyfingu á myndinni,“ segir Hafdís Erla. Með hjartaloku á röngum stað  Fæddist með hjartagalla  Æfir og kennir karate Morgunblaðið/Árni Sæberg Hjartaheill Hafdís Erla, sem er 18 ára, á heiðurinn af jólakorti samtakanna Hjartaheilla í ár. Hún segir hjartasjúk- dóminn lítið há sér í leik og starfi, en í frístundum sínum æfir hún og kennir karate. Samtökin Hjartaheill voru stofnuð árið 1983. Markmið þeirra er m.a. að gæta réttar hjartasjúklinga, afla fjár til velferðarmála þeirra og að efla rann- sóknir og fræðslu varð- andi hjartasjúkdóma. Ein helsta fjáröfl- unarleið samtakanna er jólakortasala og að auki berast Hjartaheill áheit og ýmsar gjafir. Fénu er m.a. varið til að styrkja hjartadeildir Landspítalans við Hringbraut, endurhæfingarstöð hjartasjúklinga á Reykjalundi og HL-stöðvarnar í Reykjavík, Ak- ureyri, Neskaupstað og Vest- mannaeyjum, en einnig til að styðja efnaminni hjartasjúklinga. Frá stofnun hafa samtökin gefið ýmis tæki til sjúkrastofnana að andvirði mörghundruð milljóna króna. Jólakortasalan mikil tekjuöflun HAFA SAFNAÐ HUNDRUÐUM MILLJÓNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.