Morgunblaðið - 25.11.2011, Page 4

Morgunblaðið - 25.11.2011, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011 SÖGUR LIFNA VIÐ Sigurður dýralæknir holabok.is/holar@holabok.is Hér er meðal annars sagt frá mönnum og málleysingjum, skrýtnum og skemmtilegum karakterum, kyndugum körlum og kerlingum, bændum og búaliði, prestum og kvenleysingjum og kvennamönnum. Einnig af reimleik- um á Rauðalæk, ófúnu líki í kirkju- garðinum á Keldum, íhaldskoppi- num og úthrópuðum rottuskítssala. Útgáfuhátið vegna bókarinnar verður í Sunnlenska bókakaffinu í dag kl. 17. Stundum ber svo við að jól og áramót falla á helgar og þá eru færri frídagar en ella. Sumir at- vinnurekendur hafa brugðist við þessu með því að gefa frí í jólagjöf og hefur það mælst vel fyrir. Aðfangadag ber upp á laugardag í ár og því fá almennir launþegar hér á landi aðeins einn aukafrídag um jól og áramót, þ.e. mánudaginn 26. desember. Síðast var staðan eins árið 2005. Næsta ár er hlaupár og þá geta fríþegar aftur tekið gleði sína enda aðfangadagur á mánudegi sem og gamlársdagur. Síðan verður að- fangadagur á þriðjudegi 2013 og svo koll af kolli nema á hlaupári. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis eru engir fundir frá 17. desember til 16. janúar. Jólaleyfi skóla er yfirleitt 21. desember til 3. janúar. Þó að kennsla liggi niðri þarf starfsfólk gjarn- an að vinna. Þeir sem starfa við stjórnsýsluna í Háskóla Íslands hafa stundum fengið tveggja daga frí í jólagjöf. Sami háttur hefur viðgengist á Reykjalundi. Birgir Gunnarsson forstjóri segir að sjúklingar séu almennt ekki á Reykjalundi um jól og áramót og því hafi starfsmenn fengið einhverja frídaga á þeim tíma í jólagjöf. „Í fyrra gáfum við tvo daga og nú gefum við frí á milli jóla og nýárs,“ segir hann. Birgir bætir við að mikið álag sé á starfsfólkinu. Starfsemin sé óbreytt þrátt fyrir fækkun starfsfólks í óhjá- kvæmilegum niðurskurði og jólagjöfin sé ákveð- in umbun og viðurkenning á auknu álagi. Sumir launþegar fá frídaga í jólagjöf  Svokölluð atvinnurekendajól í ár en sannkölluð launþegajól á næsta ári  Almennir laun- þegar fá aðeins einn aukafrídag um jól og áramót en allt aðra sögu verður að segja að ári Morgunblaðið/Árni Sæberg Frí og vinna Verslunarfólk hefur nóg að gera fyrir jólin. Því fleiri í fríi þeim mun meira að gera. „Allir alsælir“ » Edda G. Björgvinsdóttir, fjár- málastjóri Þjóðarbókhlöð- unnar, segir að ekki sé hefð fyrir því að gefa starfsmönnum jólapakka en þeir hafi nokkrum sinnum fengið einn eða tvo frí- daga að eigin vali frá um 20. desember til um 7. janúar í staðinn. „Allir eru alsælir með þetta,“ segir hún og bætir við að frídagarnri séu gjarnan fleiri á atvinnurekendajólum. » Fleiri fyrirtæki og stofnanir hafa umbunað starfsfólki sínu með svipuðum hætti og í sum- um tilfellum er lokað. Hafnfirsk leikskólabörn hófu í gærmorgun að skreyta Jólaþorp bæjarins eins og venja er, en börnin hafa skreytt þorpið þau níu ár sem það hefur verið sett upp. Allir leikskólar bæjarins taka þátt og lýkur ekki skreytingum fyrr en um miðjan dag í dag. Jólaskrautið bjuggu börnin til sjálf, er það af ýmsum toga og víst að hugvitssemin réði för í skrautgerðinni. Hugvitssemi ræður för í gerð skrautsins Morgunblaðið/RAX Leikskólabörn skreyttu Jólaþorpið í Hafnarfirði Bresk heilbrigð- isyfirvöld hafa ákveðið að hætta að bólusetja stúlkur gegn leg- hálskrabbameini með lyfinu Cerv- arix, að sögn BBC. Frá næsta hausti verður þess í stað notað Gardasil sem er mun dýrara en virkar einnig gegn kynfæravörtum. Bólusett hefur verið hér á landi frá sl. hausti og notað Cervarix en Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir menn að sjálfsögðu stöðugt vega og meta hvort breyta skuli um lyf gegn sjúkdómum. Ekki megi gleyma að Gardasil sé mun dýrara. „Þetta er snúið mál vegna þess að Cervarix er sennilega öflugra krabbameinslyf en Gardasil,“ segir Haraldur. „Þetta var að sjálfsögðu allt metið hjá okkur, krabbameins- þátturinn og vörtuveirurnar og nið- urstaðan var að Cervarix væri miklu hagstæðara lyf. Fyrst og fremst er verið að bólusetja gegn krabbameini og vitað er að Cervarix er breiðvirk- ara og vinnur meira gegn forstigs- breytingum. Sjúkdómurinn byrjar sem forstigsbreytingar sem þróast yfir í krabbamein. Þótt vörturnar séu óþægilegar valda þær ekki krabbameini.“ kjon@mbl.is Cervarix er öflugra gegn krabbameini Haraldur Briem Aðeins ein ummæli í frétt Svavars Halldórssonar fréttamanns á RÚV um Pálma Haraldsson, kenndan við Fons, voru dæmd ómerk í Hæsta- rétti í gær, önnur standa. Svavari var gert að greiða Pálma 200 þúsund í miskabætur, en Pálmi dæmdur til að greiða tveimur öðrum sem voru ákærðir 600 þúsund í málskostnað. Pálmi kærði Svavar fyrir frétt sem hann skrifaði og var flutt í aðal- fréttatíma RÚV í mars í fyrra. Hann kærði einnig Maríu Sigrúnu Hilm- arsdóttur, sem las fréttina og Pál Magnússon útvarpsstjóra. Þau voru bæði sýknuð í héraðsdómi. Hæstiréttur taldi að þegar um- mæli þar sem segir „en þeir pen- ingar finnast hins vegar hvergi“ væru virt í samhengi við önnur um- mæli í fréttinni yrðu þau ekki skilin á annan veg en þann að með þeim væri verið að bera Pálma á brýn refsiverða háttsemi sem félli undir ákvæði almennra hegningarlaga. Svavar hefði ekki sýnt fram á að þetta ætti við rök að styðjast og við vinnslu fréttarinnar hefði hann ekki leitað eftir upplýsingum frá Pálma. Ummælin voru því ómerkt en ekki gerðar athugasemdir við önnur um- mæli sem Pálmi kærði. Í samtali við fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, segir Svavar dóminn mikil vonbrigði fyrir sig. „Staðreyndirnar eru þær að lánið sem fjallað var um í fréttinni er enn ógreitt. Ég skil ekki hvað varð af þessum peningum þó Hæsti- réttur þykist hafa fundið þá.“ Svavari var gert að greiða Pálma 200.000 krónur, en Pálma að greiða Maríu Sigrúnu og Páli hvoru um sig 300.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti. Að öðru leyti féll máls- kostnaður niður. kjon@mbl.is Ómerkti eingöngu ummæli Svavars um horfna peninga  Pálmi greiði málskostnað tveggja sem voru sýknuð Svavar Halldórsson Pálmi Haraldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.