Morgunblaðið - 25.11.2011, Page 10

Morgunblaðið - 25.11.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011 HERRA KRINGLAN /DÖMU & HERRA SMÁRALIND Fullar verslanir af fallegum fatnaði Blazer 23.900 Kjóll 14.900 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við höfum fundið hælaháaskó, filmu og pening ogallskonar annað rusl semfólk hendir hér í skóginum í Heiðmörk. Okkur finnst ekki gott hvað margir ganga illa um úti í nátt- úrunni og henda rusli hvar sem er,“ segja vinkonurnar Alda Áslaug Unnardóttir og Þórdís Ólafsdóttir sem stofnuðu í fyrra félag sem heitir Græni krossinn. „Þetta er félag bæði fyrir börn og fullorðna sem vilja hjálpa náttúrunni. Okkur þykir vænt um náttúruna og hún er líka svo fal- leg. En sumir hugsa ekkert út í það hvar þeir henda frá sér rusli. Og full- orðnir eru ekkert skárri, til dæmis er mikið um sígarettustubba hér í skóginum. Í borginni eru tyggjó- klessur á götunum og allskonar rusl líka. Við viljum hvetja börn og full- orðna til að hjálpa dýrum sem þurfa hjálp,“ segja vinkonurnar sem eru í fjórða bekk Norðlingaskóla. Rusladagurinn haldinn í vor Alda á heima í Heiðmörkinni og er því í góðum tengslum við náttúr- una á hverjum degi. Hún býr við Mývatn á sumrin og þar gætir henn- ar ung stúlka sem heitir Hildur. „Hildur er mikil náttúrustelpa og hún er fulltrúi Græna krossins fyrir norðan. Við erum allt sumarið að taka til við Mývatn og hjálpa dýrum. Við förum mikið í fjöruna og hjálp- um ungum sem hafa villst frá mömmum sínum.“ Ýmislegt er á döfinni hjá Græna krossinum, þær vinkonurnar ætla að halda rusladag í vor með fullt af krökkum. „Þá verðum við með rusla- Við viljum hjálpa náttúrunni Þeim finnst fólk ekki ganga nógu vel um náttúruna og ákváðu að gera eitthvað í því til að berjast gegn ósómanum. Þær stofnuðu Græna krossinn, náttúruvernd- arsamtök fyrir börn, og þær hjálpa móðurlausum ungum og ætla að blása til ruslatínsludags í vor. Þær ætla að selja piparkökur til styrktar Græna krossinum. Ljósmynd/Unnur Jökulsdóttir Þrenning Alda, Hildur og Þórdís með kanínuunga í vösunum. Morgunblaðið/RAX Skreyta Í gær skreyttu þær piparkökurnar fyrir sunnudaginn. Þegar maður hlustar á skemmtilegt lag getur verið erfitt að syngja ekki með. Sumir textar eru einfaldir og ekki mikið mál að læra þá. Aðrir eru öllu flóknari og þá er ágætt að geta skoðað textann. Bara svo maður sé nú ekki að syngja einhverja vitleysu út í loftið. Stundum er það líka þann- ig að manni finnst lag enn betra þeg- ar maður sér hvað textinn er flottur. Á vefsíðunni metrolyrics.com má finna söngtexta við öll vinsælustu lögin í dag. Á síðunni má líka finna skemmtileg dæmi um það sem fólki hefur mis- heyrst í gegnum árin. Þannig hefur mörgum heyrst að sir Elton John syngi í laginu Rocket man „Rocket man, burning all the shoes I’ve ever known“ í stað „Rocket man, burning out his fuse up here alone“. Hafa þeir ekkert skilið í þessari illsku kappans út í skóna sína. Vefsíðan www.metrolyrics.com Misheyrn Nei, nei, hvaða misskilningur, Sir Elton John brennir ekki skóna sína. Elton hatar ekki skóna sína Nemendur Kvennaskólans verða með leiðsögn um sýninguna Kjarval snertir mig á morgun klukkan 14. Þar munu upprennandi sýningarstjórar og list- fræðingar taka þátt í spjalli um sýn- inguna Kjarval snertir mig: ungt fólk kynnist Kjarval, sem opnuð var á Kjar- valsstöðum á laugardaginn. Þetta eru Kvennaskólanemarnir Helga Lára Hall- dórsdóttir, Hjördís Lind Sandholt, Jenný Jónsdóttir, Karólína Klara Geirs- dóttir, Valdís Jörgensdóttir og Þórhildur Sigurðardóttir. Sýningarverkefnið var unnið í samvinnu við Önnu Jóa, mynd- listarmann, listgagnrýnanda og kenn- ara í áfanganum listasaga og listfræði. Endilega … … hittið unga sýningarstjóra Leiðsögn Á Kjarvalsstöðum. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Nú í vikunni kemur út bókin Rikka og töfrahringurinn í Japan sem er þriðja bókin eftir Hendrikku Waage um káta ferðalanginn Rikku. Í þessari bók ferðast Rikka um Japan með töfra- hring sem hún á og lærir með hans hjálp um menningu landsins, fallega staði og sögu þeirra. Með skarp- skyggni sinni og einlægni sýnir hún lesendum að þrátt fyrir ólíka staði, matseld og menningu á mannfólkið meira sameiginlegt en ekki, hvar sem við búum í heiminum. Hendrikka er skartgripahönnuður sem barist hefur sérstaklega fyrir réttindum barna og er forseti góð- gerðarsamtakanna Alþingis barna. Þau hafa m.a. það markmið að finna sjálfbærar skipulagðar lausnir á sviði mannréttinda. Hluti af tekjum bók- sölunnar rennur til góðgerðarsjóðs Alþingis barna. Barnabækur Töfrahringur Rikka fer til Japans. Káti ferðalang- urinn Rikka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.