Morgunblaðið - 25.11.2011, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2011
Jólin
2011
?
Jólablað Morgunblaðsins
kemur út næsta laugardag
Að vanda er það stórglæsilegt, 128 bls. og
stútfullt af skemmtilegu efni, m.a. uppskriftir,
föndur, jólasiðir, jólaundirbúningur með
börnunum og margt margt fleira.
Ert þú búin að tryggja þér áskrift?
Sími: 569 1122, netfang: askrift@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Niðurskurður framlaga til starfsemi
Hafrannsóknastofnunar virðist far-
inn að nálgast hættumörk. Þetta er
niðurstaða nefndarálits meirihluta
atvinnuveganefndar til fjárlaga-
nefndar vegna fjárlagafrumvarps
næsta árs.
Þingnefndir hafa unnið að álitum
sínum til fjárlaganefndar um fjár-
lagafrumvarpið 2012 að beiðni nefnd-
arinnar. Almennt er í fjárlagafrum-
varpinu gert ráð fyrir 3% samdrætti í
almennri stjórnsýslu og 1,5% í vel-
ferðarmálum.
Rekstur skipa í hættu
Í áliti meirihluta atvinnuvega-
nefndar kemur fram að sérstaklega
hafi verið rætt um vöktun nytja-
stofna og að um 70-80% ráðstöfunar-
fjár Hafrannsóknastofnunar fari í
slík verkefni. Stofnunin hafi skorið
niður umhverfis- og líffræðirann-
sóknir síðustu ár til að geta haldið
vöktun úti.
Komið er inn á að Hafrannsókna-
stofnun sé dugleg að sækja sér tekjur
í sjóði en í álitum minnihluta er bent á
að sá tekjugrunnur sé ótraustur.
Meirihlutinn bendir einnig á að 53%
hækkun á olíuverði frá 2009 sé langt
umfram verðlagsbreytingar og hafi
þýtt 80 milljóna króna hækkun
rekstrarkostnaðar rannsóknarskipa.
Í minnisblaði Hafrannsóknastofn-
unar kemur fram að stofnunin hafi
rétt haldið sjó fyrir hrun. Komi 3%
skerðing ríkisframlags til stofnunar-
innar til framkvæmda á næsta ári, sé
ljóst að ríkið hafi þá skert framlög til
hennar um 22-25% frá árinu 2009.
Ríkisframlag til hennar sé áætlað
1.332 millj. kr. á næsta ári en hafi ver-
ið 1.525,1 millj. árið 2009. Skerðing-
unni hafi verið mætt með fækkun
verkefna og færri úthaldsdögum
skipa.
„Með skerðingu hefur grundvelli
útgerðar tveggja rannsóknarskipa
verið stefnt í hættu á sama tíma og ný
verkefni, m.a. tilkoma nýrra nytja-
stofna (kolmunna og makríls) og
vegna breyttra umhverfisaðstæðna
kalla á aukið úthald skipanna.“
Áhyggjur af auknu álagi
Meirihluti atvinnuveganefndar
gerir einnig í áliti sínu til fjárlaga-
nefndar athugasemdir við að á sama
tíma og Matvælastofnun sé gert að
bæta við sig verkefnum, nemi vænt-
anlegur niðurskurður til hennar nær
því ríkisframlagi sem stofnuninni var
ætlað vegna aukins álags.
Einnig lýsir meirihlutinn áhyggj-
um af því tímabundna álagi sem er á
stjórnsýslunni vegna aðildarumsókn-
ar að Evrópusambandinu. Í umfjöll-
un meirihlutans var sérstaklega tekið
fram að mikið aukið álag væri bæði á
starfsmenn sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytisins og stofnanir
þess, svo sem Hafrannsóknastofnun
og Fiskistofu auk Matvælastofnunar.
Vilja skýrari línur í niðurskurði
Velferðarnefnd lýsir í áliti sínu til
fjárlaganefndar áhyggjum af því að
ekki verði gengið lengra í hagræðing-
arátt án þess að skerða þjónustu og
fækka störfum og kallar eftir að línur
verði skýrðar áður en fjárlagafrum-
varpið verði samþykkt. „Telur meiri-
hlutinn ljóst að áður en kemur að
lokaafgreiðslu fjárlaga þurfi að liggja
fyrir hvaða áhrif niðurskurðurinn
hefur á einstökum stofnunum, stöð-
um og landsvæðum.“
Velferðarnefndin varar einnig við
hættu á því að frekari niðurskurður í
heilbrigðisþjónustu geti leitt til minni
sparnaðar en lagt er upp með. Hætta
sé á stórauknum útgjöldum úr rík-
issjóði vegna sérfræðilækninga, sem
hafi aukist um 8% frá árinu 2008 á
meðan útgjöld til heilbrigðisstofnana
hafi dregist saman um 22%. Er mælt
með upptöku þjónustustýrðs tilvísan-
kerfis.
Til tekjuaukningar mælir meiri-
hlutinn með hækkun gjalda á áfengi,
tóbak og munntóbak sem geti nýst til
að draga úr niðurskurði í heilbrigð-
ismálum. Vísar hann til nefndarálits
síns til efnahags- og viðskiptanefndar
þar sem lagt er til í samræmi við til-
lögur ÁTVR að tóbak hækki um 7,5%
í stað 5,1% sem gert er ráð fyrir í
frumvarpinu.
Hafró við hættumörk
Þingnefndir skila álitum til fjárlaganefndar Rekstrargrundvöllur tveggja
rannsóknarskipa í hættu Vilja skýrari línur í niðurskurði heilbrigðismála
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víðátta Aflaheimildir grundvallast á rannsóknum Hafrannsóknastofnunar á nytjastofnum við Íslandsstrendur.
Vegna fjárskorts hefur úthaldsdögum til rannsókna fækkað auk þess sem dregið hefur úr öðrum rannsóknum.
Velferðarnefnd
lýsir í áliti sínu
til fjár-
laganefndar
áhyggjum af
tannheilsu
barna, sem sé
„verulega
ábótavant,“ en
vísbendingar
séu um að foreldrar treysti sér
ekki til að greiða sinn hlut á móti
hlut ríkisins. Vill nefndin að fjár-
laganefnd og efnahags- og við-
skiptanefnd taki til skoðunar að
leggja „tappagjald“ á sykraða
gosdrykki í viðleitni til að draga
úr neyslu þeirra, sem gæti einnig
dregið úr offitu en Íslendingar
eigi met í neyslu slíkra drykkja.
Tekjur af slíku gjaldi gætu nýst
til að auka framlög til nið-
urgreiðslu tannlækninga og for-
varna.
„Tappagjald“ gegn
tannskemmdum
Meirihluti allsherjar- og mennta-
málanefndar gagnrýnir í nefnd-
aráliti sínu til fjárlaganefndar fyr-
irhugaða byggingu öryggis-
fangelsis á Hólmsheiði, nokkrum
tugum kílómetra frá Litla-Hrauni
og lýsir yfir efasemdum um hag-
kvæmni slíkrar byggingar. Frekar
eigi að byggja komu- og gæslu-
varðhaldsrými í Reykjavík í stað
fangelsisins á Skólavörðustíg og
kvennafangelsisins í Kópvogi og
byggja nýja öryggisálmu á Litla-
Hrauni. Byggir meirihlutinn álit
sitt á framkomnu kostnaðarmati
þessara kosta en hún hafði óskað
eftir því. „Hagkvæmni þess að reka
tvö öryggisfangelsi á sama vinnu-
svæði blasir ekki við og því er mik-
ilvægt að þessi áform verði end-
urmetin hið fyrsta,“ segir í álitinu.
Endurskoði bygg-
ingu nýs fangelsis
„Það sem við erum að vekja athygli
á, er sú staðreynd að Hafrannsókna-
stofnun fékk á þessu ári um fjögur
hundruð milljónir út úr Verkefna-
sjóði sjávarútvegsins, sem hefur haft
tekjur sínar af svokölluðum VS-afla.
Nú er það mat sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytisins að tekj-
urnar vegna þessa afla verði minni
og það mun því óhjákvæmilega hafa
áhrif á rekstrarstöðu Hafrannsókna-
stofnunar,“ segir Einar K. Guðfinns-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
sem situr ásamt Jóni Gunnarssyni,
þingmanni Sjálfstæðisflokksins, í at-
vinnuveganefnd en þeir skiluðu áliti
1. minnihluta til fjárlaganefndar.
Með VS-afla er átt við að menn
mega fiska upp að ákveðnu magni og
landa 5% umfram aflaheimildir og
selja þann fisk á fiskmörkuðum, 80%
renna til VS-sjóðsins en 20% til
skipta milli útgerðar og áhafnar.
Hugsunin á bak við þá aðferð er að
reyna að draga úr brottkasti.
Einar segir að þar sem tekjurnar
séu óvissar frá ári til árs, þýði það að
nokkur óvissa ríki í kringum rekstr-
arforsendur stofnunarinnar. Hann
bendir á að auk væntanlegrar tekju-
skerðingar úr sjóðnum sé stofnunin
að taka á sig hagræðingarkröfu eins
og aðrar stofnanir hjá ríkinu.
„Við erum að vekja athygli á því að
80% af rekstrarumfangi Hafrann-
sóknastofnunar eru verkefni sem
lúta að undirbúningi á stofnstærð og
slíku. Undan því verði ekki vikist.
Það er því alveg ljóst að samdráttur í
tekjum stofnunarinnar mun þá bitna
á öðrum verkefnum, eins og ein-
stökum mælingum.“
Hann bendir á að þessu til viðbót-
ar komi svo hækkun á olíuverði sem
er um 53% sem sé mikið vandamál
fyrir Hafrannsóknastofnun og fleiri
stofnanir, t.d. Landhelgisgæsluna,
Vegagerðina og lögregluna.
Í áliti 2. minnihluta atvinnuvega-
nefndar, Sigurðar Inga Jóhannsson-
ar, þingmanns Framsóknarflokks,
er einnig bent á ótraustar tekjur af
samkeppnissjóðum og sagt nauðsyn-
legt að fjármögnun Hafrannsókna-
stofnunar verði með beinum fram-
lögum frá ríkinu í stað sjóða.
sigrunrosa@mbl.is
Skortir fé til ann-
arra verkefna
Ekki gert ráð fyrir hækkun olíu
„… þar sem tekj-
urnar séu óvissar
frá ári til árs, þýði
það að nokkur
óvissa ríki“
Einar K. Guðfinnsson