Morgunblaðið - 03.12.2011, Page 20
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Fimmtán stjórnarfrumvörp komu
fram síðasta daginn, sem þingmenn,
þingnefndir og ráðherrar höfðu til að
leggja fram ný þingmál svo þau kom-
ist á dagskrá fyrir jólahlé 16. desem-
ber nk. Fresturinn rann út á mið-
nætti á miðvikudagskvöld og þann
daginn komu einnig eitt nefndar-
frumvarp og eitt þingmannafrum-
varp. Frá því að Alþingi kom saman á
sínu 140. löggjafarþingi 1. október sl.
hafa 108 frumvörp komið fram, sem
er mun meira en á sama tíma í fyrra,
þegar 90 frumvörp höfðu verið lögð
fram fyrir 1. desember. Mun fleiri
komu hins vegar fram núna á síðustu
stundu.
Meðal frumvarpa sem lögð voru
fram á miðvikudag voru frumvörp um
siglingalög, sjúkratryggingar, eftirlit
með skipum, umboðsmann skuldara,
upplýsingalög, fjarskiptasjóð, tolla-
lög og skyldutryggingu lífeyrisrétt-
inda.
Af þessum 108 frumvörpum eru 50
stjórnarfrumvarp, 55 frumvörp frá
þingmönnum, þar af 42 frá stjórnar-
andstöðunni, og þrjú nefndafrum-
vörp. Aðeins tvö frumvörp af þessum
108 hafa verið samþykkt; fjáraukalög
fyrir árið 2011 og breyting á lögum
um fjármálafyrirtæki.
Miðað við sama tíma og á síðasta
löggjafarþingi, hinu 139. í röðinni, þá
hefur stjórnarfrumvörpum fækkað
lítillega á meðan frumvörpum þing-
manna hefur fjölgað. Þannig hafði
ríkisstjórnin lagt fram 54 frumvörp á
sama tíma í fyrra, 1. desember 2010,
en þingmenn lagt fram 34.
„Stöðvast í þingflokkunum“
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokksins,
segir skýringuna á fáum stjórnar-
frumvörpum hingað til á haust-
þinginu blasa við. Frumvörpin komist
ekki út úr ríkisstjórn „fyrr en eftir
dúk og disk vegna innbyrðis ágrein-
ings þar“. Loksins þegar málin kom-
ist út úr ríkisstjórn þá stöðvist þau í
þingflokkum stjórnarflokkanna, mis-
lengi eftir málaflokkum. „Flokkarnir
geta ekki komið sér saman um nokk-
urn hlut,“ segir hún.
Um fjölgun frumvarpa frá þing-
mönnum segir Ragnheiður Elín sjálf-
stæðismenn vera duglega að leggja
fram þingmál, hvort sem það séu
frumvörp, fyrirspurnir eða tillögur.
„Við höfum lagt okkur fram um að
vera ákveðin og ábyrg í stjórnarand-
stöðunni. Við viljum ekki aðeins vera í
því hlutverki að gagnrýna heldur
einnig að koma fram með tillögur að
lausnum, líkt og viðamiklar efnahags-
tillögur eru til vitnis um. Hvatinn með
þingmannafrumvörpunum er að
reyna að stíga inn í þetta úrræðaleysi
sem við öllum blasir og leggja gott til
málanna,“ segir Ragnheiður Elín.
Frumvörpum forgangsraðað
Oddný G. Harðardóttir, þing-
flokksformaður Samfylkingarinnar,
segir frumvörp hafa komið hægar inn
framan af þingi vegna anna í ráðu-
neytunum. Það sé af og frá að þau
stoppi í ríkisstjórninni eða stjórnar-
flokkunum. Oddný telur ólíklegt að
frumvörpin komist öll á dagskrá fyrir
jól, þó að þau hafi verið lögð fram.
„Þeim frumvörpum sem fela í sér
dagsetningar sem eru við það að
renna út verður raðað fremst í for-
gangsröðunina til að tryggja fram-
gang þeirra,“ segir hún.
Um aukinn fjölda þingmannafrum-
varpa segir Oddný það eðlilegt að á
síðari hluta kjörtímabilsins komi
mörg mál frá þingmönnum. Þeir vilji
koma þeim inn til umræðu nú og af-
greiðslu áður en kjörtímabilinu lýkur.
Átta stjórnarfrumvörp voru síðan
lögð fram á Alþingi í gær en þau kom-
ast þá ekki á dagskrá fyrr en eftir
jólafrí ef farið er eftir reglum þings-
ins.
Rigndi inn síðasta daginn
Ráðherrar með 50 af 108 frumvörpum það sem af er þingi Fimmtán komu inn
á lokafresti til að komast á dagskrá fyrir jól Aðeins tvö frumvörp verið afgreidd
Með flestu frumvörpin
» Það sem af er þingi hefur
innanríkisráðherra lagt fram
flest ráðherrafrumvörp, eða 19
talsins. Næstur kemur fjár-
málaráðherra með 10 frum-
vörp.
» Af einstökum þingmönnum
hafa Eygló Harðardóttir, Fram-
sóknarflokki, og Árni Johnsen,
Sjálfstæðisflokki, oftast verið
fyrstu flutningsmenn, eða sjö
sinnum hvort.
Morgunblaðið/Kristinn
Alþingi Þingmenn hafa verið duglegir að leggja fram frumvörp, ekki síst þingmenn stjórnarandstöðunnar, eða 42 af 55 það sem af er þingi.
Fjöldi frumvarpa á Alþingi 1. desember
á 138. þingi 2009-2010, 139. þingi 2010-2011 og 140. þingi 2011-2012
138. þing 139. þing 140. þing
Frumvörp frá: Ríkisstjórn Nefnd Þingmönnum
55 54 50
13
34
55
1 2 3
Samtals:69
Samtals:90
Samtals: 108
H
ei
m
ild
:A
lþ
in
gi
30
.n
óv
20
11
120
100
80
60
40
20
0
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Þórhallur Örn
Guðlaugsson
varði nýlega
doktorsritgerð
sína „Þjón-
ustustjórnun:
markaðs- og
þjónustuáhersla í opinbera
geiranum“ við viðskiptafræði-
deild Háskóla Íslands. Rit-
gerðin samanstendur af fjór-
um ritrýndum greinum sem
birst hafa eða hafa verið sam-
þykktar til birtingar í rit-
rýndum tímaritum. Að auki
er upphafsgrein, þar sem gef-
ið er fræðilegt yfirlit yfir við-
fangsefnið, og lokagrein þar
sem fjallað er um niðurstöður
og frekari rannsóknir á svið-
inu.
Þórhallur Örn Guðlaugsson er
fæddur árið 1962. Hann lauk
MS-prófi í viðskiptafræði frá HÍ
árið 2001. Hann er kvæntur
Dagbjörtu Sveinsdóttur fé-
lagsfræðingi og eiga þau þrjú
börn, Svein Guðlaug, Hafdísi
Söru og Rebekku. Foreldrar eru
Guðlaugur Þorgeirsson og Haf-
dís Þórhallsdóttir.
» FÓLK
Doktor í við-
skiptafræðum
Þórunn Ásta
Ólafsdóttir hefur
varið dokt-
orsritgerð sína
„Ónæmissvör
nýbura við bólu-
setningu – Nýir
ónæmisglæðar og ónæm-
isvakar til verndar gegn
pneumókokka- og inflúensu-
sjúkdómum“ við læknadeild
HÍ. Bólusetningar nýbura eru
álitlegur kostur til að fá fram
verndandi ónæmissvar
snemma á ævinni og víða um
heim er fæðingin eini tíminn
sem börn fá örugglega þjón-
ustu heilbrigðiskerfisins.
Rannsóknirnar sýna að ný-
burabólusetningar gegn S.
pneumoniae og inflúensuveiru
eru raunhæfur kostur.
Þórunn Ásta Ólafsdóttir er
fædd árið 1978. Hún lauk MS
prófi í heilbrigðisvísindum við HÍ
2005. Hún er dóttir hjónanna
Ólafs Oddssonar og Guðríðar
Steinunnar Jónsdóttur. Eig-
inmaður hennar er Árni Ingvar
Bjarnason og eiga þau dótturina
Ólöfu Höllu.
Doktor í heil-
brigðisvísindum
Ásdís Helgadóttir
varði nýlega
doktorsritgerð
sína við véla-
verkfræðideild
University of
California í
Santa Barbara í Kaliforníu.
Í doktorsritgerðinni hannaði
Ásdís tölulegar aðferðir fyrir
þrjár hlutafleiðujöfnur sem
lýsa eðlisfræðilegum fyr-
irbærum. Aðferðirnar eru allar
einfaldar í framkvæmd, rand-
skilyrði eru nákvæm jafnvel
fyrir óreglulega jaðra og aðlag-
anlegt ferningstré/átthyrn-
ingatré. Hnitanetið er fínast
þar sem nákvæmni er mest
þörf svo veruleg töluleg hag-
kvæmi næst.
Ásdís fæddist 1982 og lauk
meistaraprófi frá háskólanum í
Santa Barbara árið 2007 en þar
hefur hún starfað undanfarið.
Doktor í véla-
verkfræði
ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
ILVA Korputorgi, 112 Reykjavík
sími 522 4500 www.ILVA.is
25% AF ÖLLUM
SÓFUM OG SÓFASETTUM
1. - 4. DESEMBER
Jólabasar
Verður haldinn á vinnustofu Hrafnistu í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 6. Desember
Opið milli 10:00 - 15:00
Við hvetjum alla til að koma og skoða fallegt handverk
heimilismanna. Tilvalið að versla jólagjafirnar á góðu verði.
Einnig er hægt að versla hér allt árið.
Kveðja
Starfsfólk iðjuþjálfunar og félagsstarfs.