Morgunblaðið - 03.12.2011, Side 37
UMRÆÐAN 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. DESEMBER 2011
Í því fjárlaga-
frumvarpi sem nú ligg-
ur fyrir Alþingi er gert
ráð fyrir því að sókn-
argjaldið sem er meg-
intekjustofn safnaða
þjóðkirkjunnar, sem
og annarra trúfélaga í
landinu, verði skorið
niður fjórða árið í röð
og að þessu sinni um
3% frá krónutölu síð-
asta árs. Nú kann ein-
hverjum að þykja að 3% sé ekki
mikill niðurskurður. En þegar hon-
um er bætt við þann niðurskurð sem
átt hefur sér stað undanfarin fjögur
ár og tillit tekið til verðlagshækkana
sem orðið hafa á tímabilinu er nú
svo komið að starfsemi margra safn-
aða er alveg við það að lamast. Hafa
sumir þeirra jafnvel ekki einu sinni
lengur nægar tekjur, til að standa
undir afborgun langtímalána, jafn-
vel þótt ekki væri notuð króna til
safnaðarstarfsins eða í annan rekst-
ur.
Í áfangaskýrslu starfshóps, sem
innanríkisráðherra skipaði sl. haust,
til að meta áhrif niðurskurðar sókn-
argjalda á starfsemi safnaða þjóð-
kirkjunnar, kemur í ljós að nið-
urskurður á tekjum safnaðanna frá
árinu 2008 er rúmlega helmingi
meiri en meðaltalsniðurskurðurinn
hjá þeim stofnunum sem heyra und-
ir innanríkisráðuneytið. Kemur
þetta glögglega fram á meðfylgjandi
mynd sem fylgir áliti starfshópsins.
Á henni hafa þrír hagvísar verið
stilltir á 100 fyrir árið 2008 og síðan
er fylgst með þróun þeirra. Af
myndinni má lesa að forstöðumönn-
um stofnana sem falla undir innan-
ríkisráðuneytið er gert að glíma við
þann vanda að reka stofnanir sínar
á næsta ári fyrir fjárheimildir sem
mælast 105,44 meðan
kostnaðurinn, sem al-
mennt fylgir þróun
vísitölu neysluverðs er
kominn upp í 128,19.
Söfnuðum þjóðkirkj-
unnar er aftur á móti
boðið upp á það að
reka sig fyrir tekjur
sem nema 79,4 þótt
kostnaðurinn sé sá
sami, þ.e. 128,19. Nið-
urskurðurinn sem
söfnuðirnir standa
frammi fyrir, að teknu
tilliti til kostnaðarhækkana, (38,1%),
er því í raun rúmlega tvöfaldur sá
niðurskurður sem stofnanir ráðu-
neytisins hafa mátt sæta (17,7%).
Að óbreyttu munu því á næsta ári
renna um 530 milljónir króna í rík-
issjóð vegna skerðingar sókn-
argjalda umfram meðaltalsskerð-
ingu þeirra stofnana sem heyra
undir ráðuneytið.
Skýringin á þessum mikla mun
liggur í því að þess hefur ekki verið
gætt við niðurskurð sóknargjald-
anna að þau hafið verið verðbætt
eins og verið hefur um fjárframlög
til annarra aðila sem byggja rekstur
sinn á framlögum fjárlaga, heldur
hefur niðurskurðurinn jafnan verið
af krónutölu fyrra árs, óverðbættri.
Vegna þessa hefur sóknargjaldið því
lækkað um nálægt 25% umfram
fjárveitingar til reksturs annarra
aðila, sem sætt hafa skerðingu til
samræmis við almennan niðurskurð
frá fjárlögum ársins 2008.
Þetta hefur leitt til þess, sam-
kvæmt gögnum frá Ríkisend-
urskoðun, að árið 2010 náðu 92
sóknir ekki endum saman í rekstri
sínum og hafði slíkum sóknum fjölg-
að um liðlega 50% á þremur árum
og stefnir í að þær verða vel á annað
hundrað á yfirstandandi ári. Starfs-
hópurinn telur því ljóst að þjóð-
kirkjan muni með sama áframhaldi
neyðast til að leggja niður mik-
ilvægan hluta af kjarnastarfsemi
sinni á allra næstu árum til að forða
því að söfnuðirnir í heild komist í
þrot. Enda eru þess, eins og áður
sagði, jafnvel dæmi að einstakar
sóknir séu þegar komnar í þrot.
Staðan er því grafalvarleg og enn
alvarlegri verður hún þegar að því
er gætt að innheimta sóknargjald-
anna hefur ekkert lækkað á þessu
tímabili, heldur þvert á móti hækk-
að!
Það sem hinsvegar hefur gerst er
það að ríkið hefur sem inn-
heimtumaður haldið eftir sífellt
stærri hluta sóknargjaldsins sem þó
er í raun ekkert annað en fé-
lagsgjald safnaðarmeðlimanna, en
ekki fjárveiting á fjárlögum eins og
sumir virðast hafa misskilið.
Í þessu sambandi skal það rifjað
upp að þegar undirritaður hóf störf
sem sóknarprestur í Vík í Mýrdal
árið 1982 tíðkaðist það enn að gjald-
keri sóknarnefndar gekk fyrir hvers
manns dyr til að innheimta sókn-
argjaldið. Ég gekkst þess vegna
fljótlega fyrir því að semja við sýslu-
manninn, sem á þeim tíma var inn-
heimtumaður opinberra gjalda, um
að hann annaðist þessa innheimtu
svipað og gjaldheimtan í Reykjavík
gerði þá fyrir söfnuðina í höfuðborg-
inni. Á þessum tíma vissu allir
hverjum þessar tekjur tilheyrðu.
Þegar staðgreiðsla skatta var tek-
in upp vildi ríkisvaldið útrýma öllum
„nefsköttum“. Því var kirkjunni og
öðrum trúfélögum gert það tilboð,
að ríkið skyldi taka að sér að inn-
heimta og síðan skila sókn-
argjöldum til réttra aðila, sem til-
tekið hlutfall af tekjuskatti. Var það
fyrirkomulag síðan fest í lög með
gildandi lögum um sóknargjöld o.fl.
nr. 91/1987.
Í greinargerð með frumvarpi til
þeirra laga segir að það meginsjón-
armið hafi verið haft við tillögugerð-
ina að trúfélögin haldi tekjustofnum
sínum óskertum, miðað við það sem
þau hafi áður haft. Jafnframt sé
mikilvægt að reglur sem settar
verði tryggi stöðugleika á tekju-
stofnum þeirra. Þá segir í grein-
argerðinni að kostir þeirrar leiðar,
sem valin var við að reikna út og
skipta umræddum gjöldum, séu
einkum þeir að hún sé einföld í
framkvæmd, hún tryggi til fram-
búðar stöðugleika á umræddum
tekjustofnum og fylgi tekjubreyt-
ingum. Þetta auðveldi trúfélögunum
að áætla tekjur sínar og byggja fjár-
hagsáætlanir á þeim.
Nú blasir hins vegar við að við
þetta hefur ekki verið staðið heldur
allir samningar brotnir og loforð
svikin. Staðreyndin er sú að skil rík-
isins á innheimtum sóknargjöldum
hafa verið skorin þannig niður að
ríkið stendur trúfélögunum aðeins
skil á tæplega tveimur þriðju þeirra
sóknargjalda sem innheimt eru. Af-
gangurinn er látinn renna í rík-
issjóð. Verður það að teljast nokkuð
rausnarleg innheimtuþóknun, svo
ekki sé fastar að orði kveðið. Sumir
vildu jafnvel taka sér í munn mun
sterkari orð um þetta framferði og
halda því fram að farið hafi verið
ófrjálsri hendi um sjóði trúfélag-
anna. Hlýtur það því að vera ský-
laus krafa þeirra að sú skerðing,
sem orðin er, verði leiðrétt. Því vart
verður því trúað að stjórnvöld ætli
sér í alvöru að leggja starfsemi trú-
félaganna í rúst eins og nú virðist
stefna í.
Eftir Gísla Jónasson
» Staðreyndin er sú að
skil ríkisins á inn-
heimtum sóknargjöld-
um hafa verið skorin
þannig niður að ríkið
stendur trúfélögunum
aðeins skil á tæplega
tveimur þriðju þeirra
sóknargjalda sem inn-
heimt eru. Afgangurinn
er látinn renna í rík-
issjóð.
Gísli Jónasson
Höfundur er prófastur
í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Ætla stjórnvöld að leggja
starfsemi trúfélaganna í rúst?
Þjóðkirkjan, tekjur af
sóknargjöldumm.v.með-
alfjölgun milli ára 2010
– 2012 og án úrsagna
Þróun fjárveitinga, önnur
gjöld en laun,meðaltal
stofnana IRR sem hlutu
almennar verðbætur
fjárlaga
Þróun vísitölu neyslu-
verðs (áætluð fyrir 2012)
130
120
110
100
90
80
70
2008 2009 2010 2011 2012
100
128,19
105,44
79,4
Í fannhvítri borg Töluverður snjór er á götum og gangstéttum Reykjavíkur og því eiga bæði bréf- og blaðberar höfuðborgarinnar talsvert erfiðara með að komast leiðar sinnar.
Kristinn