Morgunblaðið - 05.12.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
SKINNY handsturtuhaus
verð kr. 1.990.-
SPRING sturtuhaus
kringlóttur 20 cm verð kr. 9.450.-
ESPRITE CARRÉ
ferkantaður 20 cm verð kr. 12.400-
EMOTION sturtuhaus
kringlóttur 10 cm verð kr. 3.990.-
STURTUHAUSAR Í ÚRVALI
GÆÐI,ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ
- ÞAÐ ER TENGI
www. tengi.is
Fuglalífið við Tjörnina aldrei verra
Ekkert kríuvarp við Tjörnina í sumar Þær fáu andartegundir sem eru eftir eru við það að deyja út
Fá egg klekjast út og enn færri ungar komast á legg vegna fæðuskorts Skýrslu skilað fyrir áramót
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
„Fuglalífið við Tjörnina var mjög lé-
legt í ár og varpið líka. Það er það
versta sem við höfum séð síðan við
hófum að vakta hana árið 1973,“ segir
Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræð-
ingur en hann og Ólafur K. Nielsen
vistfræðingur hafa árlega gert úttekt
á fuglalífinu við Reykjavíkurtjörn.
Þeir eru nú að leggja lokahönd á
skýrslu fyrir árið 2011 og ráðgera að
skila henni til borgarinnar fyrir ára-
mót en slæm staða fuglalífsins í fyrra
vakti mikla athygli í sumar.
„Það var ekkert kríuvarp við
Tjörnina í sumar og varp allra anda
var lítið auk þess sem fáir ungar
komust upp,“ segir Jóhann Óli.
„Gæsin er eini fuglinn sem virðist
pluma sig nokkuð vel þarna.“
Hann segir að mikil uppbygging
hafi verið í tengslum við fuglalífið á
Tjörninni á sjötta áratugnum. Þá hafi
verið flutt þangað hundruð anda af
nokkrum tegundum og hafi ræktunin
staðið fram undir 1970. Nú séu hins
vegar aðeins örfáar tegundir eftir og
þær séu að deyja út. „Við viljum að
þessari þróun verði snúið við og
reynt að rækta aftur upp fuglalífið
þarna,“ segir Jóhann Óli en að hans
mati er þrennt sem útskýrir lélegt
varp.
Í fyrsta lagi þurfi að gera friðland-
ið í Vatnsmýrinni fýsilegra fyrir
fuglana. Hins vegar séu uppi áætl-
anir hjá Norræna húsinu um að end-
urheimta votlendið og girða svæðið
af með síkjum og ætti það að auka
varp á svæðinu. Í öðru lagi sé mikill
fæðuskortur. Ungarnir lifi aðallega á
rykmýi fyrstu vikurnar en minna sé
af því við Tjörnina en áður. Fá egg
klekist út og enn færri ungar komist
á legg. „Við höfum stungið upp á því
að það verði reynt að fæða fuglana en
það hefur ekki gengið upp. Það þýðir
ekki að gefa þeim brauð því það er
ekki nógu næringarríkt fyrir ungana,
þeir þurfa próteinríka fæðu en ekki
kolvetni,“ segir Jóhann Óli.
Þriðja ástæðan sé ásókn mannsins
í svæðið og almennar þrengingar fyr-
ir fuglana, eins og hvönnin í Þorfinns-
hólma sem gerir það nær ómögulegt
fyrir kríuna að hreiðra um sig þar og
verpa. „Þetta eru allt smáatriði sem á
að vera hægt að leysa.“
„Við erum búin að hafa samband við Nubo og bjóða hon-
um að fara með honum í gegnum fjárfestingaumhverfið á
Íslandi,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. „Við
töldum að hann hefði farið ansi torvelda leið með því að
ætla að fara í jarðakaup sem eru samkvæmt lögum ekki
heimiluð. En það eru aðrar leiðir sem eru heimilaðar
enda eru erlendar fjárfestingar ekki lokaðar á Íslandi,
nema í ákveðnum geirum sem eru orkugeirinn, sjávar-
útvegurinn og síðan jarðakaup,“ segir Katrín.
Katrín segir að Fjárfestingastofa sjái um slík sam-
skipti fyrir ríkisvaldið en slíkar ráðgjafarstofur um fjár-
festingar starfi hjá öllum ríkjum heims. Telur Katrín að
það hafi einfaldlega verið eðlilegt að bjóða honum þessa
þjónustu. Segir ráðherra að Nubo hafi ekki sóst eftir
því að tala við hana persónulega en að hún muni ekki
neita að hitta hann ef þess verður óskað. mep@mbl.is
„Erlendar fjárfestingar
ekki lokaðar á Íslandi“
Mun ekki neita að hitta
Nubo ef þess er óskað
Átján sjálfboðaliðar á vegum Veraldarvina (e. World Wide Friends) frá
Japan, Kóreu, Taívan, Rússlandi, Póllandi og Ítalíu heimsóttu jólaþorpið í
Hafnarfirði í gær. Að sögn Malgorzötu Myl frá Póllandi, sem hefur umsjón
með hópnum, var vilji fyrir því að kynna þeim hvernig Íslendingar halda
jólin, enda hefur hópurinn mikinn áhuga á íslenskri menningu. „Þeim þótti
jólaþorpið mjög notalegt og voru hrifin af tónlistinni og andrúmsloftinu
sem myndaðist í þorpinu. Þau voru þó sammála um að aðeins of kalt væri í
veðri,“ segir Malgorzata. „Mér finnst persónulega mjög áhugavert hversu
snemma Íslendingar byrja á því að setja upp jólaskreytingar og ég myndi
vilja taka siðinn um íslensku jólasveinana þrettán upp í Póllandi.“
Nutu andrúmsloftsins og undirbúnings jólanna
Morgunblaðið/Ómar
„Það sem við þurfum að gera fyrst og fremst er að
vita hvers lags fjárfestingu hann er hugsa
um að ráðast í og svo ráðleggjum við
honum út frá því, hvar takmarkanir
eru í lögum og hvar ekki,“ segir
Katrín Júlíusdóttir.
Í samtali við Ríkisútvarpið í gær
sagðist hún undrast ummæli Ög-
mundar Jónassonar innanrík-
isráðherra og að hann skuli dylgja
um að menn ætli sér að leið-
beina fjárfestum fram hjá ís-
lenskum lögum.
Undrast ummæli
NUBO TÓK JÁKVÆTT Í VIÐRÆÐUR
Katrín
Júlíusdóttir
Ólafur K. Nielsen segir
borgaryfirvöld hafa verið skeyt-
ingarlaus í garð Tjarnarinnar
undanfarin ár og verið lítt um-
hugað um að þar
þrífist fjölskrúð-
ugt líf, líkt og
eitt sinn var.
„Tjörnin er ekki nátt-
úrulegt kerfi heldur
er eins og blóma-
garður sem þarf að
sinna. Það vantar allt
ræktunarstarf og eftir-
lit þarna og hefur það í rauninni
skort í áratugi,“ segir hann.
Ólafur bætir við að hann og
Jóhann Óli séu orðnir lang-
þreyttir á að tala fyrir daufum
eyrum. Þeir muni í nýju skýrsl-
unni koma með tillögur að
endurbótum, líkt og í fyrri
skýrslum. „Aðalatriðið er það að
ef við viljum hafa þarna fjöl-
breytt lífríki, fjölbreytta fugla-
fánu, þá þurfum við rækt-
unarstarf. Það þarf að hlúa að
þessu ef þetta á að dafna.“
Ræktunarstarf aðalatriðið
SKORT HEFUR EFTIRLIT Í ÁRATUGI
„Alþjóðlegir ráðgjafar sem hafa
gert úttekt á starfsemi FME hafa
bent okkur á að það sé mikilvægt
að launakjör og starfsumhverfi sé
með þeim hætti að okkur haldist á
starfsfólki í samkeppni við eftirlits-
skylda aðila,“ segir Aðalsteinn
Leifsson, stjórnarformaður Fjár-
málaeftirlitsins, en eins og greint
hefur verið frá fóru heildarlaun
stjórnarmanna úr 13,5 milljónum
króna í 24 milljónir kr. þegar þau
voru hækkuð á síðasta ári.
Aðalsteinn segir að samkeppni
um starfsfólk sé nokkuð sem öll
fjármálaeftirlit í heiminum þurfi að
glíma við og tíðar breytingar hafi
verið á stjórn FME eftir hrun.
„Það eru mörg mál sem þarf að
vinna og ákvarðanir sem við þurf-
um að taka og fást við lögum sam-
kvæmt eru íþyngjandi fyrir þá sem
málið varðar. Um er að ræða erf-
iðar og alvarlegar ákvarðanir sem
krefjast mjög mikillar yfirlegu.
Gríðarlega mikill tími og hugsun
fer í þessa vinnu.“
Miklar breytingar eru fyrirhug-
aðar á starfsemi eftirlitsins á næst-
unni. Verið sé að leggja niður þau
svið sem hafa verið og stofna þrjú
ný í staðinn sem á að endurspegla
nýja stefnu eftirlitsins. mep@mbl.is
Helst illa
á stjórnar-
mönnum