Morgunblaðið - 05.12.2011, Síða 21
✝ Helga DóraSkúladóttir
fæddist í
Reykjavík 23.
september 1941.
Hún lést á líkn-
ardeild Land-
spítalans í
Kópavogi 26.
nóvember 2011.
Foreldrar
hennar voru
Þuríður Auð-
unsdóttir, f. 6.6. 1900 á Ey-
vindarmúla í Fljótshlíð, d.
27.6. 1995, og Skúli Jón
Magnússon, f. 21.1. 1904 á
Fossi í Seyðisfirði, d. 13.9.
1963. Systur Helgu eru: Sig-
ríður Skúladóttir, f. 4.6. 1930,
Hallfríður Birna Skúladóttir,
f. 25.12. 1932, og Auður
Skúladóttir, f. 28.1. 1936.
Helga giftist eftirlifandi
dóttir, f. 1981, b) Margrét
Helga, f. 1988, sambýlis-
maður hennar er Andrés Við-
arsson, f. 1988. Barn þeirra
er Telma Svava, f. 2011, c)
Arnór Gísli, f. 1997. Börn
Gyðu eru: a) Heiðrún, f. 1983
b) Hildur, f. 1985, c) Óskar, f.
1990 d) Arnar, f. 1995 e) Guð-
mundur, f. 1999. 2) Kristinn,
f. 1.9. 1965, maki Ragna
Sigurðardóttir, f. 1965. Börn
þeirra eru: a) Helga, f. 1992,
unnusti hennar er Arnar Bogi
Jónsson, f. 1992, b) Alexand-
er, f. 1996.
Helga ólst upp í Reykjavík
hjá foreldrum sínum á Óðins-
götunni og á unglingsárunum
í Skipholtinu. Helga vann ým-
is verslunarstörf á sínum
yngri árum en hóf síðan störf
á leikskólanum Kvistaborg í
Fossvogi 1975, en þar starf-
aði hún í hartnær 25 ár m.a.
sem deildarstjóri yngstu
deildar.
Útför Helgu fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 5. des-
ember 2011, og hefst athöfnin
kl. 13.
eiginmanni sínum,
Alexander Jóhann-
essyni frá Reykja-
vík, hinn 26.11.
1960. Foreldrar Al-
exanders voru
Kristín Ketilríður
Alexandersdóttir
frá Frakkanesi á
Skarðsströnd, f.
27.8. 1898, d. 15.12.
1986 og Jóhannes
Steinn Ólafsson, f.
14.5. 1900 í Stóradal á Fells-
strönd, d. 11.5. 1979. Helga
Dóra og Alexander eignuðust
tvö börn. Þau eru: 1) Skúli
Þór, f. 25.5. 1960, maki Gyða
Breiðfjörð, f. 1965. Skúli var
áður í sambúð með Sigríði
Gísladóttur, f. 1960. Börn
þeirra eru: a) Elmar Björg-
vin, f. 1984, sambýliskona
hans er Linda Björk Péturs-
Elsku mamma mín, það er
erfitt að sætta sig við að þú
sért farin úr þessu jarðneska
lífi, en þú munt alltaf lifa í
hjarta mínu og fylgja mér
hvert sem ég fer. Það var mjög
mikið sjokk þegar þú greindist
með þennan illvíga sjúkdóm
sama dag og við pabbi vorum
að fara í nýrnaaðgerðina í byrj-
un september. Þú varst alltaf
mjög næm á allt, vissir alltaf ef
eitthvað bjátaði á í fjölskyld-
unni og var ekki hægt að leyna
þig því. Þú fylgdist alltaf vel
með okkur bræðrunum og ef
eitthvað var að þá var alltaf
hægt að leita til þín og pabba.
Þú fylgdist líka mikið með
barnabörnunum og spurðir allt-
af um þau og varðst mjög stolt
þegar þú varðst langamma í
apríl á þessu ári. Þú varst mikil
húsmóðir og snillingur að elda
mat og baka allskonar góðgæti
og aldrei fór neinn svangur frá
þér, enda passaðir þú vel upp á
það. Þú varst alltaf svo upp-
tekin að uppfarta gestina þína
að þú gleymdir oft sjálfri þér,
enda stríddi ég þér oft á því.
Þú varst snillingur að halda
heimilinu hreinu og glansandi
enda var aldrei hægt að finna
eitt rykkorn hjá þér. Þú varst
glæsileg kona og leist ávallt vel
út og varst dugleg að skamma
mig ef þér þótti ég ekki nógu
snyrtilegur til fara.
Þér þótti mjög gaman að því
að ferðast bæði hér innanlands
og utanlands og allir veiðitúr-
arnir sem við fjölskyldan fórum
í lifa sterkt í minningunni um
þig.
Elsku mamma mín, þín verð-
ur sárt saknað en ég veit að ég
á eftir að hitta þig aftur og ég
veit að þú verður hjá mér það
sem ég á eftir ólifað hér á jarð-
ríki.
Mamma, elsku mamma,
man ég augun þín,
í þeim las ég alla
elskuna til mín.
Mamma, elsku mamma,
man ég þína hönd,
bar hún mig og benti
björt á dýrðarlönd.
Mamma, elsku mamma,
man ég brosið þitt;
gengu hlýir geislar
gegnum hjarta mitt.
Mamma, elsku mamma,
man ég lengst og best,
hjartað blíða, heita –
hjarta, er sakna ég mest.
(Sumarliði Halldórsson.)
Guð geymi þig, elsku
mamma mín.
Þinn sonur,
Skúli Þór.
Til minnar yndislegu tengda-
móður.
Ég kynntist þér fyrst fyrir
tveimur árum þegar ég kynnt-
ist honum Skúla mínum.
Ég man þegar Skúli kom
með mig fyrst í heimsókn til
þín og tengdapabba, ég var
með fléttur í rauðu úlpunni
minni og með tattó. Veit að þér
brá við og hélst ég væri eitt-
hvað gaga. En þú skynjaðir það
fljótt að svo var ekki. Þegar við
svo byrjuðum að búa, ég og
Skúli, hálfum mánuði eftir
kynni okkar hélstu að hann
sonur þinn væri endanlega
genginn af göflunum.
Frá fyrsta degi hefur þú
reynst mér og mínum börnum/
barnabörnum mjög vel og varst
bara yndisleg við okkur og
tókst þeim eins og þínum eigin.
Þú fylgdist vel með Arnari sér-
staklega og spurðir alltaf um
hann, og af og til spurðir þú um
Óskar elsta son minn sem býr í
Danmörku og eyddi síðustu jól-
um með okkur. Þú fylgdist vel
með okkur Skúla og varst mjög
ánægð að hann hafði loksins
fundið það sem hann vantaði,
mig, og ánægð varstu sérstak-
lega með það að nú yrði hugsað
vel um hann „Skúla minn“ eins
og þú sagðir ávallt.
Þú varst mér fyrirmynd og
þegar þú fórst að gefa mér föt
af þér og klæðaburður minn
breyttist urðu krakkarnir mínir
frekar hissa en ánægðir og
sögðu hvað mamman væri orðin
dömuleg, og er það allt þér að
þakka elsku tengdamamma mín
enda varstu stórglæsileg og
smekkmanneskja, og var ég
reyndar heppin að passa í fatn-
að þinn og jú skó, enda voru
það ófáir pokar sem ég fékk
heim með mér eftir næstum
hverja heimsókn til þín. Við
urðum mjög góðar vinkonur og
nánar þennan stutta tíma sem
við áttum saman. Töluðumst
við nánast daglega um allt og
ekkert og ég gat treyst þér fyr-
ir öllu. Mér fannst reyndar eins
og ég hefði verið í fjölskyldunni
miklu lengur en tvö ár.
Man sérstaklega með ykkur
Hildi og blingið sem þið gátuð
talað um og svo var ætlunin hjá
ykkur að fara saman í Kringl-
una í þessar bling bling búðir
sem náðist því miður ekki.
Gæti skrifað endalaust en
hef það bara í huga mínum.
Þín verður svo sárt saknað
og munt þú vera í huga og
hjarta mér alla daga.
Þín tengdadóttir,
Gyða.
Elsku Helga, aldrei hefði
mér dottið í hug að þú kæmir
ekki aftur heim eftir að þú
varst lögð inn á Landspítalann.
Þú þoldir lyfjameðferðina illa
og varst orðin mikið veik. Þetta
var erfið átta vikna barátta og
þú kvaddir þennan heim á 51
árs brúðkaupsafmæli ykkar Al-
exanders.
Ég kynntist þér fyrir rúm-
lega 20 árum, þú reyndist mér
frábær tengdamamma og ekki
síður vinkona, það var eins og
við hefðum alltaf þekkst. Það
var alltaf gott að koma til þín
því við gátum alltaf talað sam-
an um allt. Þú varst snillingur í
öllu sem þú tókst þér fyrir
hendur, t.d. bakstri og prjóna-
skap. Þær eru ófáar peysurnar
sem þú hefur prjónað á fjöl-
skylduna. Ég verð líka að
minnast á ömmu Helgu nuddið
eins og það er alltaf kallað af
krökkunum því það var alltaf
besta nuddið sem þau fengu.
Ég á eftir að sakna þess núna í
desember að hafa þig með mér
í jólainnkaupunum en þau voru
alltaf fastur liður hjá okkur.
Þín verður sárt saknað, enda
frábær tengdamóðir, móðir og
amma í alla staði.
Ég kveð þig elsku Helga
með þakklæti fyrir allt. Guð
veri með þér.
Ragna.
Elsku systir, það er svo erf-
itt að trúa því að þú sért farin
frá okkur. Ég sakna þín óend-
anlega mikið. Þú varst 11 ára
þegar Skúli sonur minn fædd-
ist. Þið voruð mikið saman eins
og systkin enda bjuggum við í
sama húsi. Svo kom Siggi og þú
passaðir þá báða. Svona leið
tíminn, yndislegir dagar.
Svo kom að því að þú varst
orðin ung og falleg stúlka og
kynntist Adda þínum, yndisleg-
um manni og eignuðust þið
Skúla og Kidda. Enn vorum við
í sama húsi og oft var glatt á
hjalla, með þessa fjóra stráka.
En allt tekur enda. Þið fluttuð í
Kelduland og bjugguð ykkur
fallegt heimili þar og voruð svo
samtaka í því að gera allt fal-
legt í kringum ykkur. Snyrti-
mennskan var einstök. Síðustu
árin bjugguð þið í Ársölum í
Kópavogi og leið ykkur vel þar.
Elsku Addi minn, missir
þinn er mikill, en þú átt ynd-
islega fjölskyldu sem umvefur
þig.
Þökk fyrir allt, elsku Helga
mín.
Þín systir,
Sigríður.
Elsku amma mín. Það er svo
skrýtið að þú sért farin frá
okkur. Ég er svo þakklát fyrir
að hafa átt allar þessu góðu og
skemmtilegu stundir með þér.
Það var aðdáunarvert hversu
ungleg, fín og glæsileg kona þú
varst. Þú varst svo falleg og ég
var alltaf svo stolt af ömmu
minni. Heimilið þitt í Keldul-
andinu og svo í Ársölum var
alltaf svo glæsilegt og notalegt.
Ég á eftir að sakna jólaboð-
anna hjá þér og góða matarins.
Ég á líka eftir að sakna þess að
fá þig ekki til okkar á gamlárs-
kvöld og sitja við hliðina á þér
við matarborðið eins og alltaf.
Það verður skrýtið að við nöfn-
urnar sitjum ekki saman í
næsta jólaboði en þú munt
örugglega vera mér við hlið í
anda.
Ég á svo góðar minningar
með þér þegar ég var lítil í
pössun hjá ykkur og við hlust-
uðum alltaf á sama bláa diskinn
sem ég vildi alltaf hlusta á og
sérstaklega á uppáhaldslagið
okkar sem var lag númer 2.
Þennan disk mun ég alltaf
varðveita og spila fyrir mig og
börnin mín þegar að því kemur.
Ég og Alexander gleymum
heldur aldrei „kósýkvöldunum“
og sumarbústaðarferðunum
með þér og afa.
Það var alltaf yndislegt að
vera í kringum þig. Þú vildir
alltaf að það færi svo vel um
okkur. Ef manni var kalt á fót-
unum var sko strax brugðist
við og manni hlýjað. Nuddið
var alltaf það besta hjá þér
enda rifumst við Alexander um
þig og þú þurftir stundum að
nudda okkur bæði í einu. Ég á
eftir að sakna sérstöku knús-
anna þinna og spjalla við þig
um lífið og tilveruna. Alltaf
þegar ég kom illa upplögð til
þín sást þú til þess að ég fór
heim endurnærð.
Ég vildi að við hefðum kom-
ist í stelpuferðina okkar til út-
landa sem ég, þú og mamma
vorum byrjaðar að skipuleggja.
Það var draumur okkar. Ekki
datt mér í hug þegar við töl-
uðum síðast um ferðina að þú
ættir svona stutt eftir.
Elsku amma, ég kveð þig
með miklum söknuði og þakk-
læti fyrir allt. Guð geymi þig og
varðveiti.
Helga Kristinsdóttir.
Helga móðursystir okkar er
nú fallin frá eftir stutt veikindi.
Eftir standa margar góðar
minningar úr Skipholtinu, Kel-
dulandinu og úr silungsveiði-
ferðum á sumrin svo eitthvað
sé nefnt. Það var oft mikið
hlegið, því alltaf var stutt í fliss
og hlátrasköll þar sem Helga
fór. Helga var barngóð og hlý.
Hún hafði lag á að róa lítil kríli
með faðmi og strokum. Margt
ungviðið hefur fengið að njóta
hlýju hennar og erum við og
dætur okkar þar á meðal. Við
þökkum fyrir allar góðu stund-
irnar og kveðjum Helgu með
söknuði. Elsku Addi, Skúli,
Kiddi, og fjölskyldur, ykkur
sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Þuríður, Auður og
fjölskyldur.
Helga Dóra
Skúladóttir
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Gvendur dúllari
Fornbókabúð á vefnum
www.gvendur.is
Gisting
Gisting allt árið í notalegum
bústöðum
Heitir pottar og notalegheit.
Þú átt það skilið að slappa af fyrir
jólin. Fjölskyldur og hópar.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Upplýsingar í síma 868 3592.
Heilsa
Vilt þú bæta heilsuna þína?
Auka orkuna eða koma þér í form?
Prófaðu Herbalife!
Hafðu samband:
774 2924, Baldur.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Tómstundir
Fjarstýrðar innanhússþyrlur og
margt fl.
Mikið úrval af fjarstýrðum innanhúss-
þyrlum á góðu verði. Netlagerinn slf.
Verslun í Dugguvogi 17-19, 2. hæð.
Sími 517-8878. Vefsíða Tactical.is
Frí heimsending til jóla.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi. fannar@fannar.is
s. 551-6488.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Málarar
Málarar Alhliðamálningarþjónusta.
Getum bætt við okkur verkefnum, til-
boð eða tímavinna. Vönduð vinnu-
brögð, hagstæð verð í boði og góðir
greiðsluskilmálar.
Sími 823 8547 og 659 9676.
Bílaþjónusta
SÖLUSKOÐANIR BIFREIÐA
Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn
greina ástand hans áður en þú
gengur frá kaupunum. Skoðunin
kostar frá kr. 9.900. Ekki þarf mikið
til að hún borgi sig margfalt. Fáðu
aukna vissu í bílakaupin með
söluskoðun Frumherja.
Tímapantanir í síma 570 9090.
Frumherji –
örugg bifreiðaskoðun.
Hjólbarðar
Kebek vetrardekk
Hönnuð og prófuð í Kanada.
Frábær dekk á góðu verði.
Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '11.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Auris '11.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i.
8921451/5574975.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2011