Morgunblaðið - 05.12.2011, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 339. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Barnið einsamalt í brennandi bíl
2. Ólafur Þórðarson látinn
3. Játar frjálslegt kynlíf
4. Ofurfyrirsætur fitaðar með forriti
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Nýtt lag Páls Óskars Hjálmtýsson-
ar og Redd Lights, Megi það byrja
með mér, hefur vakið athygli – ekki
síst fyrir hjartnæman texta. Margir
hafa þó velt fyrir sér hvað orð hans
„tanky plenty“ þýða.
Að sögn upplýsingafulltrúa UNI-
CEF á Íslandi eru orðin úr kreóla-
málinu krio sem talað er í Síerra
Leóne, þangað sem Páll fór fyrir
UNICEF, og þýðir kærar þakkir. Með
laginu vonast Palli til að opna augu
fólks fyrir degi rauða nefsins og
starfi UNICEF.
Páll Óskar syngur
á kreóla-málinu krio
Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir
messósópran
syngur jólalög frá
Spáni, Austurríki,
Bandaríkjunum
og Íslandi ásamt
aríum úr óp-
erunni Carmen á
hádegistónleikum
Hafnarborgar á morgun klukkan
12.00.
Guðrún Jóhanna
syngur jólalög
Steingrímur Þórhallsson, nemi við
LHÍ, heldur útskriftar-
tónleika í Neskirkju á
morgun kl. 20 og
flytur Magnificat
eftir Bach og nýtt
verk sem hann hef-
ur samið og
byggist á
verki
Bachs.
Nýtt Magnificat
frumflutt
Á þriðjudag og miðvikudag Breytileg eða norðlæg átt, 3-10 m/s,
og léttskýjað að mestu sunnantil, annars skýjað með köflum. Dálít-
il él úti við sjóinn. Frost 5-22 stig, kaldast í innsveitum nyrðra.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 3-8 m/s, él norðantil en bjart-
viðri syðra. Dálítil él við suðurströndina í kvöld. Frost 4 til 20 stig,
kaldast í innsveitum, en mildast úti við sjóinn.
VEÐUR
Íslenska kvennalandsliðið í
handknattleik náði ekki að
fylgja eftir góðum sigri á
Svartfellingum á HM í
Brasilíu í fyrrakvöld þegar
það mætti Angóla í öðrum
leik sínum í keppninni í
gærkvöld. Ísland átti á
brattann að sækja allan
tímann og tapaði með fjög-
urra marka mun, 28:24.
Næsti leikur Íslands er
gegn Norðmönnum á
morgun. »4-5
Stelpurnar lágu
gegn Angóla
Ragna Ingólfsdóttir varð fyrir því
óláni að meiðast á læri og
varð af þeim sökum að gefa
úrslitaleikinn á alþjóðlega
velska mótinu í
badminton sem
lauk í gær. Ragna
fékk engu að síð-
ur dýrmæt stig í
baráttunni um
að komast á
ÓL. »1
Ragna neyddist til að
gefa úrslitaleikinn
Haukar sýndu bræðraliði sínu í Val
enga miskunn þegar þau áttust við
í átta liða úrslitum bikarkeppni
karla í handknattleik í gær. Hauk-
arnir kafsigldu ríkjandi bikarmeist-
ara og það á heimavelli þeirra en
Hafnfirðingar hrósuðu ellefu
marka sigri, 32:21. Haukarnir hafa
verið á mikilli siglingu og tróna á
toppi úrvalsdeildarinnar. »3
Haukarnir kafsigldu
bikarmeistarana
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Andri Karl
andri@mbl.is
Með frosthörkunum undanfarið hef-
ur tjarnir og vötn lagt og glaðbeittir
skautaáhugamenn getað skerpt
skauta sína og rennt sér að vild.
Kópavogsbúar telja sig ýmsir hafa
farið halloka þegar kemur að þess-
um gæðum og endurvakti bæjar-
fulltrúinn Hjálmar Hjálmarsson
gamla hugmynd á fundi fyrir helgi;
að fá skautasvell á Vallargerðisvöll.
Hjálmar óskaði eftir því á bæjar-
ráðsfundi fyrir helgi að fá upplýs-
ingar um möguleika þess að koma
upp skautasvelli á Vallargerðisvelli
ásamt kostnaðaráætlun. „Þetta var
bara hugmynd um að starfsmenn
Kópavogsbæjar myndu sprauta
vatni á völlinn og láta frjósa þannig
að fólk gæti rennt sér þarna á
skautasvelli þegar aðstæða væri til
þess, og með sem minnstum til-
kostnaði,“ segir Hjálmar. Um er að
ræða malarvöll sem stendur nærri
Kársnesskóla, skammt frá Sundlaug
Kópavogs.
Yrðu á eigin ábyrgð
Hjálmar segist sjá þetta fyrir sér
líkt og um væri að ræða skautasvell
frá náttúrunnar hendi, þ.e. eins og
ísilagða tjörn eða vatn, og að ekki
þyrfti að girða það sérstaklega af
eða loka fyrir aðgang. „Ég hugsaði
mér þetta eiginlega með gamla lag-
inu, að hver væri á sína ábyrgð. Það
þyrfti ekki að loka fyrir frekar en
Tjörninni í Reykjavík þegar frystir.
Þá er bara handskafið til að búa til
svæði. Og þar er heitt svæði þar sem
krakkar geta lent ofan í tjörninni en
það er engin sérstök öryggisgæsla.“
Hugmynd Hjálmars verður varla
sögð ný af nálinni. Valdimar Kr.
Valdimarsson reyndi að hafa skauta-
svell við og á Vallargerðisvelli þau ár
sem hann sá um völlinn, þ.e. á ár-
unum 1966-1978. Sonur hans, Valdi-
mar Valdimarsson, segir hins vegar
að heimildir séu um skautasvell á
vellinum frá 1965. „Þá var svell á
vellinum fyrstu mánuði ársins og
næstu ár á eftir var reynt að hafa
svell á sjálfum vellinum á sama hátt
og sprautað var vatni á Melavöllinn.“
Lítill skúr stendur við Vallargerð-
isvöll og Valdimar segir að vatn hafi
verið leitt úr krana á útisalerni sem
þar stóð. „Þaðan var leidd slanga og
vatninu sprautað á svæðið. Salerni
og aðstaða til að skipta um skó og
fatnað var í baðhúsinu. Eins og ég
man þetta þá var mikil ánægja hjá
fólki með framtakið og fólk á öllum
aldri mætti og skemmti sér vel.“
Valdimar segir föður sinn hafa verið
mikinn áhugamann um skautaiðk-
un og barist fyrir því að sett
yrði upp aðstaða fyrir
skautasvell.
Hjálmar segir að vel
væri hægt að nota skúr-
inn litla ef vilji væri fyrir
því að koma upp lág-
marksgæslu. Um yrði að
ræða ódýra gamaldags
skemmtun.
Vill skautasvell á Vallargerðisvöll
Heimildir um skautasvell frá 1965
Rætt um stórtækari hugmyndir
Morgunblaðið/Ómar
Völlurinn Komið var upp skautasvelli við og á Vallargerðisvelli í Kópavogi á árunum 1966-1978, þegar aðstæður leyfðu. Nú vilja menn endurvekja þá hefð.
Skautafélagið Fálkar í Kópavogi
hefur barist fyrir því að und-
anförnu að byggð verði skauta-
höll í Kópavogi og sent formlegt
erindi þess efnis til borgarráðs.
Vilhelm Patrick Bernhöft, for-
maður félagsins, segir að verið
sé að skoða alls kyns mögu-
leika. Hann segist spenntur fyr-
ir skautasvelli á Vall-
argerðisvelli. „Við
áttum okkur á því að
einhvers staðar
verður að byrja.
Við viljum geta
byrjað – jafnvel
þótt það sé bara
garðslanga og
sprautað yfir völl!“
Fara fram á
skautahöll
SKAUTAFÉLAGIÐ FÁLKAR