Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 3 1. D E S E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 307. tölublað 99. árgangur
ÁRAMÓT
GETRAUNIR, STJÖRNUSPÁ, FRÉTTIR ÁRSINS, FÓLKIÐ Í FRÉTTUNUM, UMRÆÐAN Á
ÁRINU, BESTU TÓNLEIKAR, SÝNINGAR, KVIKMYNDIR OG PLÖTUR ÁRSINS
Morgunblaðið/Ómar
Gleðilegt nýtt ár
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
Hjörtur J. Guðmundsson
Anna Lilja Þórisdóttir
Þingflokkar stjórnarflokkanna sam-
þykktu á fundum sínum í gær tillögu
forsætisráðherra um breytingar á
ráðherraskipan. Jón Bjarnason og
Árni Páll Árnason eru á leið út úr
stjórn og Oddný Harðardóttir, for-
maður þingflokks Samfylkingarinn-
ar, tekur við fjármálaráðuneytinu.
Jón segir þróun mála tengjast aðild-
arviðræðunum við ESB.
Hvorugur þingflokkanna sam-
þykkti tillöguna samhljóða. Í VG
sátu Ögmundur Jónasson og Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir hjá við at-
kvæðagreiðsluna, auk Jóns. Þeir
Kristján Möller og Sigmundur Ernir
Rúnarsson greiddu atkvæði á móti á
fundi Samfylkingarinnar og Árni
Páll sat hjá.
Eftir að fundi þingflokks Samfylk-
ingarinnar lauk í gær tók við fundur
stjórnar flokksins. Þar voru heitar
umræður og skoðanir skiptar. Að
lokum voru tillögur forsætisráð-
herra samþykktar með 77 atkvæðum
af 105.
Eftir þessar breytingarnar á ráðu-
neytunum gerist það í fyrsta skipti,
svo vitað sé, að sami flokkurinn fari
með þrjú stærstu ráðuneytin: For-
sætis-, fjármála- og utanríkisráðu-
neytið. „Þetta er mjög sögulegt,
hreint út sagt,“ segir Grétar Þór Ey-
þórsson, prófessor í stjórnmálafræði
við Háskólann á Akureyri. „Þetta
hefur aldrei gerst áður, a.m.k. aftur
til stríðs eftir því sem ég hef getað
rakið. Nú er þjóðin að vinna sig út úr
efnahagshruni og sækja um aðild að
ESB og sami stjórnmálaflokkurinn
með þau ráðuneyti auk forsætisráðu-
neytisins. Það er því einsdæmi í
stjórnmálasögunni að flokkur hafi
svo sterka stöðu í samsteypustjórn
og hlýtur á margan hátt að koma á
óvart.“
Atburðarás beintengd ESB
En telur hann stöðu VG veikari
eftir breytingarnar? „Flokkur sem
gefur þetta mikið frá sér í ríkis-
stjórnarsamstarfi hlýtur að vera að
senda frá sér merki um að hann sé í
veikari stöðu en áður,“ segir Grétar.
„Hins vegar megum við ekki horfa
framhjá því að VG er núna með alla
atvinnuvegina og umhverfismálin.“
Jón Bjarnason segir atburða-
rásina beintengda Evrópumálunum.
„Þeir gleðjast í Brussel og þeir sem
vilja hér hraðast ganga inn í Evrópu-
sambandið, þeir gleðjast yfir þessu.“
MÁrni og Jón út »4
„Þeir gleðjast í Brussel“
Árni og Jón út, Oddný fer inn Samfylkingin með þrjú stærstu ráðuneytin
Hlýtur að vera merki um veikari stöðu Vinstri grænna, segir stjórnmálafræðingur
Morgunblaðið/Ómar
Breytingar Jón Bjarnason og Árni Páll Árnason eru ekki lengur ráðherrar.
Búast má við
að verð á al-
gengum síg-
arettum fari
víða yfir
1.000 krónur
pakkinn á
nýju ári.
Verð er þó
mismunandi
á milli verslana. Það mun því kosta
yfir 50 krónur að brenna einum
vindlingi.
Vegna hækkana á tóbaksgjaldi
hækkar heildsöluverð á sígarettum
um 4,87%. Það þýðir að pakki af al-
gengri tegund sem nú kostar 743
kr. fer í 780 kr. frá ÁTVR.
Ef smásalar halda hlutfallslegri
álagningu fer pakki sem kostaði í
gær 960 í 1.007 krónur, og pakki
sem kostaði 979 krónur fer í 1.026
krónur. Hins vegar mun sígar-
ettupakki sem kostaði 940 krónur í
gær fara í 986 kr., þannig að ein-
hvers staðar verður hægt að fá síg-
arettur undir þúsundkallinum. »14
Sígarettu-
pakkinn yfir
1.000 krónur