Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Hugmyndabók Ólafar Har-aldsdóttur, Í dag, erætlað til að gera lífið dá-lítið skemmtilegra. Bók-
in er sett upp eins og dagbók en er
þó ekki ársbundin og er því end-
urnýtanleg. Þannig er bæði hægt að
nota bókina til að skrifa niður góðar
hugmyndir og minningar.
Bókina handskrifaði Ólöf og
myndskreytti en hún vonast til að
fólk bæti einnig eigin hugmyndum
við bókina.
Allar hugmyndir góðar
„Þessi hugmynd var búin að
gerjast dálítið lengi í kollinum á
mér og endanlega útkoman er
nokkuð langt frá því sem ég var að
hugsa í fyrstu. Ég ætlaði t.d. að
hafa bókina upphleypta að hluta og
gera ýmsar svona kúnstir en maður
getur ekki gert allt í einu. Ein-
hverjar hugmyndir ætla ég því að
geyma til síðari tíma. Aðallega lang-
aði mig þó að gera bók sem gerði
lífið skemmtilegra. Við hvern dag
skrifaði ég ákveðna hugmynd eins
og t.d. að standa á höndum og
drekka vatn úr glasi með röri, drull-
umalla í moldinni eða tvista á stofu-
gólfinu. Á sumum síðunum eru líka
eyður þar sem maður getur fyllt inn
í hvað megi gera í dag. Ég reyndi
að hafa hugmyndirnar sem ólík-
astar og fjölbreyttastar. Í raun er
engin hugmynd fáránleg sem slík
þó einhverjum kunni að finnast það.
Ég vonast síðan til að fólk bæti sín-
um eigin hugmyndum við. En for-
síðan er líka alveg hvít og hug-
myndin að maður geti gert sína
eigin forsíðu,“ segir Ólöf.
Sækir í sveitina
Ólöf gaf bókina út sjálf og lét
prenta í 500 eintökum en hún hlaut
styrk frá Evrópu unga fólksins sem
Drullumallað
og tvistað
Mikilvægt er að njóta líðandi stundar og hversdags-
ins. Ólöf Haraldsdóttir gefur fólki ýmsar skemmti-
legar hugmyndir að því hvernig lífga megi upp á lífið
með litlum hlutum í bók sinni Í dag. Bókina hand-
skrifaði Ólöf og myndskreytti.
Auð Forsíðuna má skreyta að vild.
Við hvern dag skrifaði
ég ákveðna hugmynd
eins og t.d. að standa á
höndum og drekka vatn
úr glasi með röri, drullu-
malla í moldinni eða
tvista á stofugólfinu
Áramót eru tími grímanna og glens-
ins og þá er nú tilvalið að skemmta
sér við að skoða síðuna maskital-
ia.com. Þar eru gríðarlega gott úrval
handgerðra ítalskra gríma sem eru
hver annarri flottari, enda hefðin forn
og sterk þar í landi. Gersemar þessar
eru skreyttar fjöðrum og glitsteinum.
Vefsíðan www.maskitalia.com
Glæsileg Ekki væri amalegt að skarta þessari grímu við gott tækifæri.
Dásamlegar handgerðar grímur
Allir sem vettlingi geta valdið ættu
að skunda út í kvöld og taka þátt í
þeim góða og skemmtilega sið að
brenna gamla árið burt með því að
kveikja stórt bál og syngja Nú árið er
liðið í aldanna skaut. Fagna svo jafn-
harðan nýja árinu með gleðilegt nýtt
ár-faðmlagi og kossum. Fyrir þá sem
það vilja og hafa aldur til er svo um
að gera að skála í freyðandi veigum.
Skjóta upp flugeldum eða bara njóta
þess að horfa á dýrðina sem aðrir
skjóta upp, t.d. á Skólavörðuholtinu,
þar er ævinlega góð stemning og sýn.
Endilega …
… brennið
og skjótið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skólavörðuholt Dásamlegt í kvöld.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.