Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 48
48 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞEIR BERJAST SVO
SANNARLEGA FYRIR
MÁLSTAÐNUM
ÞESSI DAGUR GETUR
EKKI ORÐIÐ MIKIÐ VERRI
ÍSBÍLLINN
ER MÆTTUR!
ÞETTA ER OF
LANGT GENGIÐ
ÞEGAR ÞÚ VERÐUR
ELDRI ÞÁ BORGAR SIG
FYRIR ÞIG AÐ SPARA
SMÁ PENING Í
HVERJUM MÁNUÐI
ÞAÐ MUN
KOMA ÞÉR AÐ ÓVART
HVERSU MIKLU ÞÚ
VERÐUR BÚINN AÐ
SAFNA Í LOK ÁRSINS
OG ÞÁ
GETURÐU HALDIÐ
SVALLVEISLU FYRIR
ÞIG OG VINI ÞÍNA
HVAÐ
ERTU AÐ
GERA?
ÉG ER AÐ
LÆRA
FÖRÐUN Í
GEGNUM
NETIÐ
ERTU VISS
UM AÐ ÞAÐ SÉ
SNIÐUGT FYRIR
ÞIG AÐ PRÓFA
MÁLNINGUNA Á
SJÁLFUM ÞÉR?
KANNSKI
GEFUR ÞAÐ
EKKI
ALVEG
RÉTTA
MYND
ÞESSI FARÐI
LÍTUR FREKAR
GÁLULEGA ÚT
Á MÉR
ÞÁ ERUM VIÐ NÆSTUM
ÞVÍ BÚIN AÐ MERKJA ÖLL
FÖTIN HENNAR KÖTU,
FYRIR ÚTILEGUNA
ÚFF!
ÞETTA
TÓK SINN
TÍMA
ÉG VERÐ AÐ
VIÐURKENNA AÐ MÉR
FINNST PÍNULÍTIÐ
ÓÞÆGILEGT AÐ SENDA
HANA BURTU Í 2 VIKUR
ER KATA
ENNÞÁ JAFN
SPENNT?
Ó,
JÁ
EFTIR ÁTÖKIN VIÐ IRON MAN ÞÁ FER
PETER AFTUR HEIM TIL M.J.
AF
HVERJU GEKK
IRON MAN
BERSERKS-
GANG Í
MIÐBÆNUM
HANN ER
VANUR AÐ
HJÁLPA FÓLKI
ÞAÐ ER
EITTHVAÐ
MJÖG SKRÍTIÐ
Á SEYÐI
OG ÉG MUN KOMAST
TIL BOTNS Í ÞESSU
Eftir fall íslensku bankanna ermargt talað um nauðsynlega
siðbót í viðskiptum. En hvert er sið-
ferði viðskipta? Vel var komið orð-
um að því fyrir röskum átta hundr-
uð árum í Árna sögu biskups (45.
kafla), þegar sagði frá kröfum ís-
lenskra bænda við lögtöku Jóns-
bókar, „að öll falslaus kaup skyldu
föst vera, þau sem einskis manns
rétti væri hrundið í“. Með þessu
voru þrjú skilyrði sett fyrir eðlileg-
um viðskiptum: 1) samningar
skyldu standa, 2) en ekki mætti
beita blekkingum 3) né brjóta í við-
skiptunum rétt á þriðja manni.
Siðferði viðskipta er lágmarks-
siðferði. Það kveður aðeins á um
þetta þrennt, en ekki hitt, að kaup-
menn og viðskiptavinir þeirra eigi
til dæmis að vera hugrakkir, örlát-
ir, fórnfúsir, góðgjarnir eða þjóð-
hollir. Þetta getur þó verið kostur
frekar en galli, því að það gerir
ólíkum mönnum kleift að vinna
saman. Þeir þurfa ekki að koma sér
saman um neitt annað en viðskiptin
sjálf. Kaupmaðurinn í Feneyjum í
leikriti Shakespeares orðaði þetta
skýrt, þegar hann sagði við kristna
viðskiptavini: „Ég vil semja við ykk-
ur, kaupa við ykkur, ganga með
ykkur, ræða við ykkur, og allt það;
en ég vil ekki snæða með ykkur,
drekka með ykkur, né biðja með
ykkur. Hvað er að frétta úr kaup-
höllinni?“
Í viðskiptum tengir gagnkvæmur
hagur menn saman. Greining
Adams Smiths í Auðlegð þjóðanna
frá 1776 (I. bók, 2. kafla) er sígild:
„Það er ekki vegna góðvildar slátr-
arans, bruggarans eða bakarans,
sem við væntum þess að fá máls-
verðinn okkar, heldur vegna þess
að þeir hugsa um eigin hag.“
Gagnkvæmur hagur getur tengt
ólíka menn og ókunnuga traustar
saman en margt annað: „Tilhneig-
ing okkar til að skjóta á útlendinga
minnkar stórlega, þegar við kom-
umst svo langt að sjá í þeim vænt-
anlega viðskiptavini,“ mælti John
Prince Smith á þriðja þýska við-
skiptaþinginu í Köln 13. september
1860.
Matarástin er að minnsta kosti
ekki eins brigðul og náungakær-
leikurinn, enda orti Örn Arnarson:
Vinsemd brást og bróðurást,
breyttist ást hjá konum.
Matarást var skömminni skást,
skjaldan brást hún vonum.
Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar
Hannes H. Gissurarson
hannesgi@hi.is
Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð
Falslaus kaup
Hannes S. Blöndal (1863-1932)skáld var blaðamaður vest-
anhafs um skeið en vann síðast við
Landsbankann eftir að hann sneri
aftur heim.Um hann var sagt, að í
æsku hefði skáldskapur hans ein-
kennst af græskulausu gamni en
flest verið alvarlegs efnis í síðari
kvæðum hans. Á gamlárskvöld
1881 héldu skólapiltar á Möðruvöll-
um í Hörgárdal brennu allmikla.
Nokkrir bjuggust sem álfar, stigu
þeir dans og sungu kvæði það, er
hér fer á eftir:
Göngum háum hólum úr,
höldum dans í kveld,
látum aðra lýði
leika sér við eld.
Stígum, stígum vorn dans,
stynur freðin grund,
silfurrúnir ritar máni ránar á sund.
Horfum á, og horfum á,
höldar kveikja eld
upp á háum hólum
á heilagt gamlárskveld.
Stígum stígum vorn dans o.s.frv.
Sjá þeir ei, og sjá þeir ei
svartan álfafans,
sem á hálu hjarni
harðan stígur dans.
Stígum, stígum vorn dans o.s.frv.
Verum kátir, kveðjum ár,
kveðum snjallt og hátt,
allir álfar dansa
ávallt þessa nátt.
Stígum, stígum vorn dans o.o.frv.
Allir flytja álfar sig
áramótin við,
hlaupa þá í hópum
um hóla og klettarið.
Stígum, stígum vorn dans o.s.frv.
Kveðjum dag, og kveðjum ár,
kveðum álfasöng,
undir rámum rómi
rymur fjallaþröng.
Stígum, stígum vorn dans o.s.frv.
Höldum vora hóla í,
hættum nú í kveld,
látum aðra lýði
leika sér við eld.
Stígum, stígum vorn dans o.s.frv.
Þessa átthendu kallar Stephan G.
Stephansson „Gamlárs-skeggið“.
Brýni legg að oddi og egg,
ætla að sneggja kjaft á segg,
gróft sem vegg og grátt sem hregg
gamlárs-skeggið af mér hegg.
Guðmundur skáld á Sandi sendi
þessa nýjárskveðju árið 1938:
Sólargang lengir, sunnanblærinn hlýn-
ar.
Svellrunnið hjarn í brekkuslakka dvínar.
Uppi á himni opnar hallir sínar
eilífðin. – Heyrðu! Kysstu varir mínar!
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Allir flytja álfar
sig áramótin við
Ást er…
… að stoppa eftir
langan akstur til að
knúsast og kyssast.
Þjóðvegasjoppa
Velvakandi
Strætó bregst yfir hátíðirnar
Mér finnst það svei mér þá skjóta skökku við
að um leið og fólk er hvatt til að nota almenn-
ingssamgöngutæki meira, þá hefur þjónustan
lítið batnað. Núna um stórhátíðirnar er þetta
mjög bagalegt, en bæði á aðfangadag og núna í
dag á gamlársdag, hætta flestir strætisvagn-
arnir að ganga um klukkan tvö að deginum til.
Hvernig á það fólk að fara að sem á ekki bíl og
þarf að komast leiðar sinnar? Margir þurfa ein-
mitt að fara í matarboð í kvöld og ekki er fýsilegt
fyrir þá sem eru ekki ungir og hraustir að fara
um á tveimur jafnfljótum í þessu fannfergi og
hálku. Þeir sem hafa ekki efni á að reka einkabíl
hafa ekki efni á taxa á hátíðartaxta.
Fótafúin bíllaus kona í Vesturbænum.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is