Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011 Kaupfélag Skagfirðinga óskar starfsfólki, félagsmönnum, viðskiptavinum svo og landsmönnum öllum velfarnaðar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Kaupfélag Skagfirðinga Kristján Jónsson kjon@mbl.is Fullyrt er að um 250 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælum gegn stjórn Bashar al-Assads Sýr- landforseta á bænadegi múslíma í gær. Athygli vakti að tugþúsundir söfnuðust saman í Douma, einu úthverfa höfuðborgarinnar Damaskus, og reyndu að leggja undir sig ráðhúsið en annars hef- ur lítið borið á mótmælum í borginni. Eftirlits- menn Arababandalagsins eru nú í landinu til að rannsaka ástandið og kanna hvort Assad hafi stað- ið við loforð um að beita ekki hervaldi gegn stjórn- arandstæðingum. Mótmælendur krefjast þess að Assad forseti fari frá og verði sóttur til saka en yfir 5.000 manns hafa fallið í átökum hers og stjórnarandstæðinga síðan í marsmánuði, að sögn fulltrúa Sameinuðu Fjölmenn mótmæli í úthverfi Damaskus  Öryggissveitir Assads sagðar hafa fellt minnst 13 manns á bænadeginum  Gagnrýnt að súdanskur hershöfðingi skuli stýra eftirliti Arababandalagsins þjóðanna. Langflest fórnarlömbin eru óvopnaðir borgarar, þar á meðal fjöldi barna. Talið er að her- menn hafi orðið minnst 13 manns að bana í gær. „Við hvetjum ykkur til að greina skýrt á milli morðingjans og fórnarlambsins,“ sögðu samtökin Sýrlenska byltingin 2011, sem birtu yfirlýsingu á Facebook í gær. „Byltingin okkar, sem byrjaði fyrir níu mánuðum, er friðsamleg“. Umdeildur yfirmaður eftirlitsmanna Hart hefur verið deilt á Arababandalagið fyrir að láta formann eftirlitshópsins vera Mustafa al- Dabi, hershöfðingja frá Súdan. Forseti landsins, Omar al-Bashir, er eftirlýstur hjá stríðsglæpa- dómstólnum í Haag vegna atburðanna í Darfur- héraði. Þar var Dabi leyniþjónustufulltrúi en hundruð þúsunda manna hafa fallið í héraðinu í árásum hrottalegra vígamanna sem stjórn al-Bas- hirs gerir út. Fyrstu yfirlýsingar Dabis eftir kom- una til Sýrlands í vikunni þóttu einnig benda til þess að hann væri hliðhollur Assad. Eftirlitið hjálpar » Rami Abdel Rahman, tals- maður samtakanna Eftirlits- stöðvar mannréttinda í Sýr- landi (SOHR), með bækistöð í Bretlandi, segir mótmæl- endur ekki munu láta hrotta- leg viðbrögð sýrlenskra ráðamanna þagga niður í sér. » Rahman segir að eftirlits- nefnd Arababandalagsins geri gagn þrátt fyrir gagn- rýni á hana. ,,Frumkvæði Arababandalagsins er eini ljósgeislinn sem við sjáum núna,“ segir hann. Reuters Mótmæli Börn í borginni Amude í Sýrlandi mynda sigurmerkið á fundi gegn Assad forseta. Fylgi forsetaframbjóðenda repú- blikana hefur sveiflast mikið til en svonefnt forval fer fram í Iowa 3. janúar og síðan eru raunverulegar forkosningar í New Hampshire viku síðar. En síðustu kannanir benda til þess að Mitt Romney, fyrr- verandi ríkisstjóri í Massachusetts, muni sigra naumlega í Iowa og með yfirburðum í New Hampshire. Romney getur státað af mikilli reynslu og draga fáir í efa að hann hafi staðið sig vel sem ríkisstjóri. En hann er vellauðugur og það er óspart notað gegn honum. Rifjað er upp að fyrirtæki í hans eigu hafi sagt upp fjölda starfsmanna og þeir eru dregnir fram í dagsljósið til að lýsa þrengingum sínum. Romney gengur oft illa að ná sambandi við venjulega kjósendur. Einnig eru sumir tortryggnir vegna trúar hans en Romney er mormóni. Frambjóðandinn hefur síðustu vikurnar tekið upp alþýð- legan fatastíl, gallabuxur og striga- skó. Og minnt á að faðirinn, George Romney, hafi unnið sig upp úr fá- tækt, byrjað sem trésmiður en orð- ið forstjóri bílaverksmiðju og síðar vinsæll ríkisstjóri í Michigan. kjon@mbl.is Reuters Romney efstur í könnunum Hljóð! Þingmaðurinn Ron Paul frá Texas er næstefstur í Iowa, hér eru stuðningsmenn á kosningafundi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.