Morgunblaðið - 31.12.2011, Page 42
42 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
Messur á morgun
BORGARNESKIRKJA | Gaml-
ársdagur. Aftansöngur kl. 18. Org-
anisti Steinunn Árnadóttir, prestur er
Þorbjörn Hlynur Árnason.
FELLA- og Hólakirkja | Gaml-
ársdagur. Aftansöngur kl. 18. Prestur
er sr. Guðmundur Karl Ágústsson, kór
Fella- og Hólakirkju og Guðný Ein-
arsdóttir organisti leiða söng og ann-
ast tónlistarflutning. Nýársdagur.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Prestur
er sr. Einar Sigurbjörnsson, kór Fella-
og Hólakirkju og Guðný Einarsdóttir
organisti leiða söng og annast tónlist-
arflutning.
GRAFARVOGSKIRKJA | Gaml-
ársdagur. Aftansöngur kl. 18. Prestar
sr. Vigfús Þór Árnason og sr. Sigurður
Grétar Helgason, kór Grafarvogskirkju
syngur. Einsöngvari er Sigrún Hjálm-
týsdóttir „Diddú“. Organisti er Hákon
Leifsson. Nýársdagur. Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Prestur er sr. Lena
Rós Matthíasdóttir, kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Einsöngvari er Einar
Clausen. Organisti er Hákon Leifsson.
Morgunblaðið/Sverrir
Grafarvogskirkja
ORÐ DAGSINS:
Flóttinn til Egypta-
lands. (Matt.2)
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna
fráfalls föður okkar, tengdaföður, afa og
sambýlismanns,
KRISTJÁNS SIGFÚSSONAR,
Hálsvegi 5,
Þórshöfn.
Við óskum ykkur heillaríks nýs árs.
Helena Kristjánsdóttir, Sigurður Þórðarson,
Sigfús Kristjánsson, Lilja Ólafsdóttir,
Natalia Kravtchouk
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma
okkar og systir,
LAUFEY SIGURJÓNSDÓTTIR,
Mýrargötu 18,
Neskaupstað,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
föstudaginn 23. desember.
Hún verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju í dag,
laugardaginn 31. desember kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Fjórðungssjúkrahúsið
í Neskaupstað.
Magnús Halldórsson, Þóra Laufey Pétursdóttir,
Halldóra Sigurjónsdóttir,
Herdís Sigurjónsdóttir,
Anna Guðlaug Sigurjónsdóttir,
Ari Magnús Sigurjónsson
og barnabörn hinnar látnu.
✝
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, systir og
amma,
GÆFLAUG BJÖRNSDÓTTIR
leikskólakennari,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 19. desember.
Jarðarförin fer fram frá Safnaðarheimilinu
á Akranesi mánudaginn 2. janúar kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á LAUF - samtök
áhugafólks um flogaveiki.
Nína Margrét Andersen, Kristján Már Arnarson,
Daníel Örn A. Kristjánsson, Katrín Gæfa A. Kristjánsdóttir,
Björn Eiríkur Andersen, Íris Sigurðardóttir,
Þórdís Alda Hákonardóttir, Gréta Rún Björnsdóttir,
Auður Björnsdóttir, Valdimar Sæmundsson,
Fríða Frank.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG EGGERTSDÓTTIR,
Árskógum 6,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu laugardaginn
24. desember, verður jarðsungin frá Selja-
kirkju miðvikudaginn 4. janúar kl. 13.00.
Björgvin J. Jóhannsson, Sigríður Þórsdóttir,
Eggert Þ. Jóhannsson, Valborg Harðardóttir,
Hörður Jóhannsson, Anne Malene Skårberg,
Herdís Jóhannsdóttir,
Ingvar J. Jóhannsson, Árborg Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Við þökkum innilega mikinn hlýhug og vináttu
sem okkur var sýnd í veikindum og við andlát
og útför elsku mannsins míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
ERLENDAR BJÖRNSSONAR
prentara,
sem lést þriðjudaginn 1. nóvember.
Með einlægri ósk um gleðilegt nýtt ár.
Aðalheiður Jónsdóttir,
Laufey Erlendsdóttir, Björn Vilhelmsson,
Björn Erlendsson,
Vilhelm Bergmann Björnsson,
Aðalheiður Lind Björnsdóttir,
Björn Aron Björnsson,
Atli Viktor Björnsson.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURGEIRS INGVARSSONAR,
Geira í Múla,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Grænumarkar 5
og Ljósheima Selfossi.
Guðmundur Birnir Sigurgeirsson, Ágústa Traustadóttir,
Pálmar Sölvi Sigurgeirsson, Valgerður K. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar yndislega eiginkona, móðir, dóttir,
systir, tengdadóttir og mágkona,
BERGLIND MARÍA KARLSDÓTTIR,
Krossholti 12,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 4. janúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á Samtök sykursjúkra.
Kristinn Einarsson,
Bára Erna Lúðvíksdóttir,
Fanney Þórunn Kristinsdóttir,
Arna Lind Kristinsdóttir,
Bára Erna Ólafsdóttir, Ellert Pétursson,
Arnbjörg Eiðsdóttir, Helgi Kristjánsson,
Hörður Már Karlsson, Anna Lilja Guðjónsdóttir,
Einar Jónsson, Fanney Kristinsdóttir,
Magnea Sif Einarsdóttir, Einar Friðrik Brynjarsson.
✝
Innilegar þakkir fyrir hlýhug við andlát og
útför
KARLS JENSEN SIGURÐSSONAR
frá Djúpuvík
á Ströndum.
Nanna Hansdóttir,
Annþór Kristján Karlsson,
Þórunn Anna Karlsdóttir,
Friðrik Jensen Karlsson,
Arnfríður Wíum Sigurðardóttir,
tengdabörn, barnabörn og systkini hins látna.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA TRYGGVADÓTTIR,
Kirkjuvegi 4,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu, Boðaþingi
í Kópavogi að kvöldi miðvikudagsins
28. desember.
Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju mánudaginn 2. janúar
kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Tækjakaupasjóð
Hrafnistu í Kópavogi, bankareikningur 0545-04-254000,
kt. 480210-2040.
Bjarni Jónasson, Anna S. Guðmundsdóttir,
Tryggvi Jónasson, Kristín Hraundal,
Helga Jónasdóttir, Snæbjörn Geir Viggósson,
Jónas Jónasson, Eiríksína Kr. Ásgrímsdóttir,
Herdís Jónasdóttir,
Jóhanna Jónasdóttir,
Ásgeir Jónasson, Stanislava Toneva Jónasson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir minn, stjúpi, afi, langafi, langa-
langafi, bróðir, frændi okkar og vinur,
JÓN GUÐNI GUÐNASON,
Háagerði 63,
áður Landakoti á Vatnsleysuströnd,
andaðist á Landspítalanum föstudaginn
9. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hjartans þakkir þeim er heiðruðu minningu hans og veittu
okkur hlýhug, stuðning, samúð og ástúð.
Starfsfólki hjartadeildarinnar eru færðar alúðarþakkir fyrir
kærleiksríka og góða umönnun.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Hanna Heiðbjört Jónsdóttir,
Ólafur Bjarni Sigurðsson,
Magnús Jóhann Sigurðsson,
Margrét Guðmunda Guðnadóttir.
✝ Stefán Jónssonvar fæddur 18.
mars 1952. Hann
andaðist á krabba-
meinsdeild Land-
spítalans hinn 12.
desember 2011.
Kjörforeldrar
Stefáns voru hjónin
Jón Ragnar Finn-
bogason, látinn, og
Júnía Sumarrós
Stefánsdóttir, látin.
Foreldrar, Magnús Gunnarsson,
látinn, og Indíana Sigríður Jón-
asdóttir, f. 1932. Eiginkona
Stefáns var Halldóra Jóns-
dóttir, f. 1957. Þau giftu sig
1987 og eignuðust tvær dætur,
þær eru Elísabet. f. 1979, og
Helena Júnía, f. 1988.
Stefán ólst upp á Vífilsgöt-
unni fyrstu árin en síðar á
Kirkjuteig.
Árið 1981 keyptu þau sér
íbúð á Hverfisgötu 92c, og
bjuggu þar til ársins 2007, þeg-
ar þau keyptu íbúð í Gnoð-
arvogi 80. Stefán byrjaði
snemma að vinna eins og al-
gengt var hér áður fyrr, 14 ára
var hann farinn að vinna ýmis
störf, hann réð sig til véladeild-
ar Garðyrkjustjórans í Reykja-
vík, og starfaði þar lengst af,
hann færði sig síðar yfir til
íþróttavallanna í Laugardal,
hann varð síðar starfsmaður
hjá Orkuveitu Reykjavíkur, og
vann þar uns yfir lauk. Stefán
var um margt sér-
stakur maður,
hann var vel lesinn
og fjölfróður, og
hafði afbragðsgott
minni, hann var
stórskemmtilegur
sögumaður og góð-
ur félagi, hann eins
og margur annar
góður drengur, var
mikill dellukarl, til
dæmis sem ung-
lingur þá var það fótboltinn og
komst þá fátt annað að. Hjá
Garðyrkjunni varð hann sjálf-
lærður garðyrkjumaður, stang-
veiðin átti til að mynda lengi
hug hans allan, og átti hann
þaðan stóran vinahóp. Stefán
greindist með Krabbamein í
nýra 1998, og var sýkta nýrað
fjarlægt, síðan liðu 11 ár og þá
greinist hann aftur með
krabbamein og núna í hinu nýr-
anu og í lungum, læknar gáfu
honum litla von, en lífsneistinn
var sterkur í Stefáni og sjaldan
kvartaði hann, hann sýndi þrek
og styrkleika í sínum veikindum
og lifði í tvö og hálft ár með
lokastig sjúkdómsins. Hann
mætti í hádeginu upp í Orku-
veitu og lék á als oddi við sam-
starfmenn sína til margra ára,
þannig kvaddi Stefán í raun alla
með því að sýna styrk alveg
fram á hinstu stund.
Jarðarför Stefáns fór fram í
kyrrþey 16. desember 2011.
Við vinnufélagar Stefáns
Jónssonar hjá Orkuveitu
Reykjavíkur minnumst hans
allir með virðingu og þökkum
fyrir ánægjuleg og skemmtileg
samskipti. Stefán var góður fé-
lagi sem kunni skil á ótal
skemmtilegum sögum og hafði
mikla frásagnar hæfileika.
Hann vitnaði í bækur sem hann
hafði lesið, sagði sögur af
mönnum sem hann kynntist við
veiðar eða á böllum í Glaumbæ
þar sem hann starfaði sem rót-
ari á sínum yngri árum,
skemmtilegar uppákomur hjá
fólki sem hann hafði kynnst, já
Stefán kom víða við þegar hann
hafði sínar „sögustundir“ sem
hann hélt stundum fyrir okkur
þegar búið var að klára ákveðin
verk eða verkhluta, þá hlustuðu
allir af andakt meðan kaffið var
drukkið.
Hann starfaði við jarðlínu-
lagnir hjá Orkuveitunni og var
snyrtimennska hans og frá-
gangur allur á verkum hans til
fyrirmyndar, bæði á yfirborði
þeirra svæða sem þurfti að fara
um og tækja og tóla sem hann
notaði við verkin.
Stefán var mikið náttúru-
barn og veiðimaður og bjó til
flugur sem hentuðu á hinum og
þessum stöðum við veiðar,
fræði og handbragð sem ekki
er öllum gefið. Hann gaukaði
oft að vinnufélögunum réttu
græjunum og ráðunum ef hann
frétti að fara ætti í veiði hvort
sem um vötn eða ár var að
ræða.
Stefán starfaði einnig sem
leiðsögumaður við stangveiðar í
mörgum laxveiðiám, meðal ann-
ars Rangánum.
Hann hóf störf hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur 1998
og starfaði þar og síðar hjá
Orkuveitu Reykjavíkur fram til
ársins 2011 er hann varð að
láta af störfum vegna veikinda
sinna. Stefán lét þó ekki af
tengslum við vinnufélagana og
heimsótti okkur flesta daga,
okkur til ánægju þó að honum
liði ekki alltaf sem best í sinni
hörðu baráttu í veikindum sín-
um. Hann barðist hetjulega og
bar höfuðið hátt fram á síðasta
dag.
Starfsmenn og stjórnendur
Orkuveitunnar minnast Stefáns
sem heiðarlegs og góðs félaga
sem varð að kveðja okkur ára-
tugum of snemma hinn 12. des-
ember 2011.
Fjölskyldu Stefáns sendum
við hlýjar kveðjur.
F.h. vinnufélaga og vina
Stefáns
hjá Orkuveitu Reykjavíkur,
Leifur Eyjólfur Leifsson.
Stefán Jónsson