Morgunblaðið - 31.12.2011, Blaðsíða 47
DAGBÓK 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2011
Sudoku
Frumstig
8
1 7 5 4
9 3 1 8 5
1
4 6
7
1 7 6 4
5 8 9
3 1 4 5
7 8 1 5
6 9
5 7
9 4
8
4 6 5 8
7 9 1
9 8 3
3 6
3 8
7 6 4 5 9
9
2 7
8
5 8 4 6
5
2 4 7 6
8 7 9 5 3
9 3 2 7 8 5 1 4 6
6 8 5 1 4 3 2 9 7
1 7 4 9 6 2 8 5 3
3 6 8 5 2 4 9 7 1
4 9 1 8 7 6 3 2 5
2 5 7 3 9 1 6 8 4
5 4 6 2 1 8 7 3 9
8 1 9 4 3 7 5 6 2
7 2 3 6 5 9 4 1 8
2 8 1 6 7 3 5 4 9
3 6 5 9 1 4 8 2 7
7 4 9 2 5 8 1 6 3
6 2 4 1 8 9 7 3 5
1 9 3 5 4 7 6 8 2
5 7 8 3 6 2 4 9 1
4 5 2 7 3 6 9 1 8
9 1 6 8 2 5 3 7 4
8 3 7 4 9 1 2 5 6
2 7 4 9 8 3 6 1 5
9 8 1 6 5 2 3 7 4
5 3 6 4 1 7 9 8 2
3 6 9 2 7 5 1 4 8
1 2 5 8 3 4 7 6 9
7 4 8 1 6 9 2 5 3
8 9 2 7 4 1 5 3 6
4 5 7 3 9 6 8 2 1
6 1 3 5 2 8 4 9 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 31. desember,
365. dagur ársins 2011
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Víkverja varð um og ó að lendaí snjóbylnum og látunum sem
urðu í Reykjavík á fimmtudags-
morgni og svo aftur á föstudaginn.
Hann er óvanur svona sköflum og
er ekki með nógu gott bak til að
vera sífellt að ýta bílum. En Vík-
verji er búinn að lenda í því að ýta
annaðhvort sínum bíl eða annarra
manna bílum úr sköflum á hverj-
um einasta degi í vikunni.
x x x
Víkverji varð fyrir því óhappi aðmeiða sig í bakinu eftir að
hafa verið að ryksuga heima hjá
sér. Samt hefur hann, bakveikur
eftir þetta heimilisslys, þurft að
ýta mörg hundruð kílóa bílum úr
sköflum.
x x x
Á sumum vinnustöðum áfimmtudagsmorgun festu
bílar sig í öllum innkeyrslum og
um tíma komst enginn að vinnu-
stað sínum á meðan hjálpsamt fólk
gerði sitt til að bjarga bílunum úr
sköflunum.
x x x
Þegar Víkverji var að þusa umþetta fékk hann að heyra það
frá einum Akureyringi. Þeir norð-
anmenn eru vanir verri vetrum og
snjóhörku. Það sem meira er að
þeir sem voru upp á sitt besta á
níunda áratugnum muna líka eftir
tíðum slíkum látum í veðrinu. Þá
hafi komið árlega nokkurra vikna
og jafnvel nokkurra mánaða tíma-
bil þar sem daglega þurftu menn
að grafa sig út úr húsum og ýta
bílum sínum.
x x x
Þar sem Víkverji vill ekki ýtafleiri bílum úr snjósköflum
hefur hann ákveðið að færa sig á
hjólið eða jafnvel fara að nota
strætó. Hann lítur á það að ýta bíl
úr skafli sem stórhættulega iðju.
Hann hefur reyndar líka sett þá
hættulegu athöfn að ryksuga
heimilið sitt á lista yfir það sem
aðeins skal gera í ýtrustu neyð, en
það er önnur saga. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 fast tak, 8 gangi, 9
falleg, 10 tölustafur, 11
seint, 13 blómum, 15 reifur,
18 svívirða, 21 klók, 22 fetil,
23 endurskrift, 24 sifjaspell.
Lóðrétt | 2 kjör, 3 láta hér
og hvar, 4 fljót, 5 sterts, 6
asi, 7 veikburða, 12 tíni, 14
tryllt, 15 guðshúss, 16 kirtil,
17 vik, 18 kjaftæði, 19 áleið-
is, 20 sigaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 áþekk, 4 klapp, 7 útrás, 8 afmáð, 9 tík, 11 tíra, 13 frír,
14 meyra, 15 þrot, 17 rusl, 20 ódó, 22 tæmir, 23 dögun, 24 iðrar,
25 lærði.
Lóðrétt: 1 ágúst, 2 eirir, 3 kost, 4 klak, 5 aumur, 6 puðar, 10
ímynd, 12 amt, 13 far, 15 þótti, 16 ormur, 18 uggur, 19 lungi, 20
órór, 21 ódæl.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Bútaspil. A-AV.
Norður
♠KD
♥KD
♦D1082
♣KDG76
Vestur Austur
♠G9874 ♠Á53
♥Á964 ♥108732
♦K96 ♦G43
♣Á ♣95
Suður
♠1062
♥G5
♦Á75
♣108432
Suður spilar 3♣.
Hinn hollenski Simon de Wijs og
Bandaríkjamaðurinn Chris Willenken
voru með spil norðurs í úrslitaleik
þjóðanna á hugaríþróttamótinu í Beij-
ing. Sagnir voru lengst af samhljóða á
báðum borðum: austur og suður
sögðu pass, vestur opnaði á 1♠ og
þeir Simon og Chris komu báðir inn á
einu grandi. Austur sagði 2♠ og sú
sögn gekk til heiðursmannanna
tveggja í norður. Chris fannst nóg að
gert og sagði pass, en Simon bauð
upp á láglitina með 2G. Makker hans,
Bauke Muller, var með sama skilning
á stöðunni og tók út í 3♣. Þar dóu
sagnir og Muller fékk níu slagi með
því að hitta í tígulinn: 110 í NS.
Á hinu borðinu vann vestur 2♠ með
tveimur yfirslögum, enda legan sér-
lega hagstæð: 170 í AV og 7 IMPar til
Hollands.
31. desember 1791
Skólapiltar í Hólavallaskóla í
Reykjavík héldu áramóta-
brennu, þá fyrstu sem skráðar
sögur fara af hér á landi.
31. desember 1935
Vilhjálmur Þ. Gíslason, síðar
útvarpsstjóri, flutti annál árs-
ins í fyrsta sinn í Útvarpinu.
Hann flutti slíkt áramóta-
ávarp til 1967. „Mun ekkert
dagskráratriði útvarpsins fyrr
eða síðar eiga slíkum vinsæld-
um að fagna,“ sagði Steinn
Steinarr í Alþýðublaðinu 1956.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Rúnar Róbertsson, útvarpsmaður á Bylgjunni, er
45 ára gamall í dag, gamlársdag. Hann segir ekki
standa til að halda sérstaklega upp á það enda sé
ekki hlaupið að því að troða stóru afmælispartíi
inn á milli jólaboða þegar fólk sé komið með fjöl-
skyldu.
„Það hefur verið lítið um að það sé haldið upp á
afmælið hjá mér. Ég er yfirleitt bara í faðmi fjöl-
skyldunnar á gamlársdag. Við borðum öll saman,
svo er horft á skaupið og skotið upp. Það er engin
veisla að öðru leyti. En landsmenn skjóta upp fyrir
mér á hverju ári, ég tek því þannig. Mér er mikill
heiður sýndur,“ segir Rúnar og hlær.
Síðast segist Rúnar hafa haldið stórveislu þegar hann varð 25 ára
gamall en þá hélt hann heljarinnar partí í heimabæ sínum Keflavík.
„Það er ágætt að hafa þetta á aldafjórðungsfresti svo kannski held ég
næst upp á fimmtugsafmælið,“ segir hann.
Eftirminnilegasti afmælisdagurinn segir Rúnar að hafi líklega ver-
ið sá þrítugasti og fimmti. Þá ætlaði hann til Las Vegas með hópi fólks
en missti af því þar sem hann var að skipta um vinnu. „Ég sparaði
a.m.k. það sem ég hefði misst í spilavíti,“ segir Rúnar. kjartan@mbl.is
Rúnar Róbertsson er 45 ára á gamlársdag
Skotið upp honum til heiðurs
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Flóðogfjara
31. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.36 1,1 10.55 3,4 17.11 1,1 23.23 3,2 11.21 15.41
Ísafjörður 0.30 1,7 6.39 0,6 12.54 1,8 19.19 0,6 12.05 15.07
Siglufjörður 3.09 1,0 9.01 0,3 15.31 1,0 21.34 0,3 11.49 14.49
Djúpivogur 1.39 0,5 7.49 1,7 14.09 0,5 20.13 1,6 10.59 15.02
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú stendur á tímamótum og þarft að
gera upp hug þinn til nýrra verkefna. Hvíldu
þig á hinum stranga dómara innra með þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Í starfi þínu þarftu nú frekar að sýna
samstarfsvilja en sjálfselsku. Ef þú fæst ekki
við það sem þú hefur áhuga á getur lífið svo
sannarlega verið letjandi.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú lendir í ýmsum uppákomum,
sem munu þó, ef þú sýnir þolinmæði, snúast
að lokum þér í hag. Búðu þig undir snarpa
glímu við stríðnispúkann í þér.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það mun skila þér góðum árangri að
sinna góðgerðarmálum. Kannski verður þú
fyrir truflun sem þú áttir engan veginn von á.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það hefur ekkert upp á sig að rökræða
allt í drep í dag. Með nýjum vopnum gefst þér
kjörið tækifæri til að meta skuldastöðuna og
leggja drög að því að bæta hana.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér eru slegnir svo margir gullhamrar
að þú finnur þig knúinn/knúna til að hrósa
sjálf/ur. Taktu áskorun.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér er úthlutað verkefni sem allir hafa
gefist upp á. Þú kippir þér ekkert upp við það,
því vandamálin eru til að sigrast á þeim.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Látið það ekki slá ykkur út af
laginu þótt þið kynnist ýmsu ógeðfelldu í fari
annarra. Reyndu að ná jafnvægi – þú getur
ekki neitað þér um allt!
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú nýtur þess að ferðast þér til
ánægju á næstu vikum og mánuðum. Kíktu í
bókabúð, á söfn eða á aðra staði sem þú
leggur ekki í vana þinn að sækja.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Reyndu að halda þig sem mest við
dagskrána, því nú er ekki rétti tíminn til þess
að breyta út af. Lestu góða bók og láttu ekk-
ert verða til þess að trufla þig.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er mikilvægt að þú einfaldir
hlutina í lífi þínu. Nú ertu að pæla í því hvern-
ig þú getur orðið að enn meira gagni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Láttu ekki einhver aukaatriði leiða þig
frá þýðingarmestu hlutunum í áætlun þinni.
Farðu þér hægt, því þá eru líkur til þess að
þér takist ætlunarverkið, óðagotið skemmir.
Stjörnuspá
Hafdís Olga Emilsdóttir verður
sextíu og fimm ára á morgun, 1.
janúar, og systir hennar, Brenda
Darlene Pretlove, verður sextug
15. janúar. Í tilefni þess verða þær
með kaffi á Kleppsvegi 64 (kaffisal
hjúkrunarheimilisins Skjóls) milli
kl. 16 og 20 á morgun, 1. janúar.
Þeim þætti gaman að sjá sem flesta
vini og vandamenn.
65 og 60 ára
Á nýársdag eiga hjónin Kristín
Sturludóttir og Guðbjörn Björns-
son, Sléttuvegi 13, Reykjavík sext-
tíu ára brúðkaupsafmæli.
Demantsbrúðkaup
1. Rf3 c5 2. g3 Rc6 3. c4 g6 4. Bg2 Bg7 5.
O-O Rh6 6. Rc3 Rf5 7. e3 O-O 8. a3 b6 9.
Hb1 Bb7 10. b4 Hb8 11. Dc2 d6 12. Re2
Dc7 13. Bb2 Re5 14. Rxe5 dxe5 15. Bxb7
Hxb7 16. f4 exf4 17. Bxg7 Kxg7 18. Dc3+
Kg8 19. Rxf4 e6 20. d4 cxd4 21. exd4 b5
22. c5 Dc6 23. g4 Re7 24. De3 Hd7 25.
Hbd1 Rd5 26. De5 Hfd8 27. h4 Rxf4 28.
Dxf4 Dd5 29. Kh2 h5 30. gxh5 Dxh5 31. c6
He7 32. c7 Hc8 33. Hc1 Hd7 34. Hc5 Dh8
35. Hd1 e5 36. Hxe5 Hdxc7 37. Hc5 Hxc5
38. bxc5 Dh5 39. Hd2 Dd5 40. Dg5 De4 41.
h5 Hc6 42. h6 f6 43. Dg3 Kh7 44. Hg2 g5
45. Hd2 Kxh6 46. Df2 Kg6 47. He2 Dg4
48. He8 Hc7 49. Hg8+
Staðan kom upp í 1. deild Íslandsmóts
skákfélaga í Rimaskóla sl. haust. Stór-
meistarinn Héðinn Steingrímsson (2562),
svart, stóð eilítið betur gegn alþjóðlega
meistaranum Braga Þorfinnssyni (2427)
hefði hann ekki leikið 49…Kg6-f7?? í síð-
asta leik. Þetta nýtti Bragi sér: 50. Da2+!
Ke7 51. Hg7+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.