Morgunblaðið - 03.01.2012, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.01.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Tímapantanir 534 9600 Heyrn · Hlíðasmári 11 201 Kópavogur · heyrn.isHEYRNARÞJÓNUSTA „Útsölurnar fóru mjög vel í gang og margir hafa komið í dag. Þetta er metdagur,“ sagði Sigurjón Örn Þórisson, framkvæmdastjóri Kringlunnar, í gær, en þá hófst útsölutímabil í verslunum Kringlunnar. Af því tilefni var opið lengur í verslunum þar, eða til níu. Sigurjón segir mikið verslað. „Það er mín tilfinning að það sé nokkuð meira en í fyrra.“ Útsölur hófust einnig í allflestum verslunum Smáralindar í gær. Guðrún Margrét Örnólfs- dóttir, markaðsstjóri Smáralindar, segir þær hafa farið vel af stað. Útsölur hafi byrjað í ein- staka verslunum á milli jóla og nýárs, en formleg útsölubyrjun hafi verið í gær. „Útsalan stendur í um fimm vikur, eða fram í febrúar,“ segir hún. Útsölur eru hafnar í stóru verslunarmiðstöðvunum Morgunblaðið/Kristinn Á eftir áramótunum koma útsölurnar Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Ekki liggur fyrir hvenær þingsálykt- unartillaga um sameiningu atvinnu- vegaráðuneytanna verður lögð fram. Ljóst er að fækkað verður í stjórn- endastöðum í ráðuneytinu. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. „Við reynum að skoða þetta hratt og ætlum okkur fyrstu tvo mánuði ársins til að skýra þau mál. Tillaga gæti farið fyrir þingið seint á útmánuðum,“ segir Steingrím- ur. Hann segir að ekki sé búið að velja nýja ráðuneytinu nafn. „Það á eftir að koma í ljós. Menn eru að tala um mál- efni atvinnugreinanna, en auðvitað er margt fleira þar á ferðinni; t.d. er nú- verandi iðnaðarráðuneyti með byggðamál, nýsköpunarmál og fleira.“ Að sögn Steingríms er ekki búið að ákveða hvar ráðuneytið verður til húsa og hann segir að einhver fækkun starfsmanna fylgi sameiningunni. „Það fækkar í röðum yfirstjórnenda. Þegar ráðuneyti eru lögð saman fækk- ar auðvitað um ráðherra, aðstoðar- menn, ráðuneytisstjóra, bílstjóra og skrifstofustjóra. En almennt er ekki stefnt að fækkun starfsfólks, því verk- efnin hverfa auðvitað ekki. Það er alls ekki meginhugsunin í þessu heldur að búa til nýjar, öflugri og skilvirkari ein- ingar. Steingrímur segir að ekki sé búið að útfæra hvort Hafrannsóknastofnun færist yfir til umhverfisráðuneytisins eða heyri undir nýja atvinnuvegaráðu- neytið. „Þetta er eitt af því sem er vit- að að verður viðkvæmt, en auðvitað munum við setjast yfir það hvernig landamærin verða nákvæmlega dreg- in.“ Steingrímur segir að ráðherranefnd um fiskveiðistjórnarfrumvarp muni halda áfram störfum og vonast til að hún skili tillögum sem fyrst til ríkis- stjórnar þannig að við getum unnið úr því og unnið málið áfram. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa komið fram þær hug- myndir innan VG að Katrín Jakobs- dóttir taki tímabundið við iðnaðar- ráðuneytinu af nöfnu sinni Júlíus- dóttur, sem fer í fæðingarorlof innan skamms. Steingrímur vill ekki stað- festa þetta. „Það er út af fyrir sig hluti af samkomulaginu að ráðherra úr okk- ar röðum muni gegna ráðuneytinu. Það hefur alveg legið fyrir. En ná- kvæmlega hver það verður, við skul- um sjá til með það. Það hefur reyndar legið í loftinu að það yrði ég. En það er ekki víst að það sé það praktískasta, þannig að það er alveg opið að það verði Katrín eða einhver annar af okk- ar ráðherrum.“ Atvinnuráðuneyti í undirbúningi  Ekki liggur fyrir hvenær nýtt ráðuneyti tekur til starfa  Stjórnendum fækkar við sameiningu ráðu- neyta  Óvíst undir hvaða ráðuneyti Hafrannsóknastofnun fellur  Tekur Katrín við af Katrínu? Tekur við Jón Bjarnason afhendir Steingrími lykla að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Morgunblaðið/Ómar Skjárinn hefur keypt útvarpsstöðina Kanann af Einari Bárðarsyni. Skjár- inn rekur sjónvarpsstöðvarnar Skjá einn, Skjá golf, Skjá bíó og Skjá heim og ætlar með kaupum á Kan- anum að renna fleiri stoðum undir reksturinn að sögn Friðriks Frið- rikssonar, framkvæmdastjóra Skjásins. „Megintilgangurinn með kaupunum er að renna fleiri stoðum undir reksturinn. Okkar mat er að það henti mjög vel að spila saman sjónvarpi og útvarpi eins og dæmin sanna hjá samkeppnisaðilum okkar, það er það sem hvetur okkur áfram. Við erum að gera okkur gildandi víð- ar. Þetta er sóknaraðgerð,“ segir Friðrik. Engar breytingar eru ákveðnar á rekstri Kanans til að byrja með að sögn Friðriks. „Hann hefur sinn sess og farsælast að láta aðeins koma í ljós hvernig það spilast. Ein- ar Bárðarson kemur yfir á Skjáinn og leiðir útvarpssviðið hjá okkur. Það starfsfólk sem er á Kananum núna, dagskrárgerðarmenn og sölu- menn, kemur líka yfir. Það verða engar breytingar á Kananum til að byrja með en það á eftir að skoða hvernig við þróum það áfram.“ Spurður hvort fleiri aðgerðir séu á dagskrá hjá Skjánum útilokar Frið- rik ekki neitt. „Markaðurinn er ekk- ert í mikilli sveiflu svo það þarf að fara rólega en við útilokum ekki neitt. Það á örugglega margt skemmtilegt eftir að gerast á árinu.“ ingveldur@mbl.is Skjárinn kaupir útvarpsstöð- ina Kanann af Einari Bárðar  „Við erum að gera okkur gild- andi víðar“ Morgunblaðið/Ómar Útvarpsstjóri Einar Bárðarson. Engin breyting verður á vinnu- reglum um viðtöku IPA-styrkja frá ESB þegar nýtt ráðuneyti atvinnu- vega tekur til starfa. Þetta seg- ir Steingrímur J. Sigfússon, sem mun veita ráðu- neytinu forstöðu. Jón Bjarnason, forveri hans í landbúnaðar- og sjávarútvegs- ráðuneytinu, lýsti sig mótfallinn styrkjunum, en þeir eru stuðningur sem ESB veitir til landa sem eru í umsóknarferli að sambandinu. „Við höfum mótað okkur ákveðið verklag í sambandi við þessa styrki og munum halda okkur við það,“ segir Steingrímur. Við teljum ekki eðlilegt að taka við styrkjum sem eingöngu væri tekið við í því skyni að undirbúa okkur fyrir aðildina sem slíka. En ef um er að ræða verkefni sem tengjast innleiðingu EES-gerða eða eitthvað sem er beinlínis til að styðja við viðræðuferlið; efla okkur í getu okkar til að sinna viðræðunum vel, þá gegnir öðru máli.“ annalilja@mbl.is Ákveðnar reglur um IPA-styrki Evra ESB veitir löndum IPA-styrki.  Engin breyting frá tíð Jóns Bjarnasonar Þorleifur Gunnlaugsson í stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir óviðunandi hvernig staðið var að breyt- ingum á ráðherrastólum. „Það er ekki samstarfsflokksins að ákveða hverjir eru okkar fulltrú- ar inni í ríkisstjórn,“ segir Þor- leifur. Hann segir atburði und- anfarna daga óheppilega. „Þetta hefur veikt flokkinn.“ Þetta hefur veikt flokkinn STJÓRNARMAÐUR VG

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.