Morgunblaðið - 03.01.2012, Síða 26

Morgunblaðið - 03.01.2012, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ámeðanhljóm-sveitin lék enn svo listavel fyrir dansinum í Hruna svo ótrúleg- ustu fyrirmenni fengu fiðring og slógu taktinn urðu nokkur merki þeirra tíma tákn. Bis- nessmenn urðu bindislausir. Enn eru margir þeirra með flakandi frá sér og þykir flott. Fyrirtæki spruttu upp eins og gorkúlur og flest voru þau „group“. Ríkidæmið sást hvar- vetna, en aðalmælikvarði þess var „viðskiptavildin“. Það var ekki bara huggunarríkt orð heldur lykillinn að nýjum lán- um og auknum arðgreiðslum. Endurskoðendur vítt og breitt töldu viðskiptavildina „gefa góða mynd“ af sterkri stöðu fyrirtækjanna. Og hún bólgnaði hraðar en sápukúlur geta og haldið var svipað. Við- skiptavildin var farin að mæl- ast í hundruðum milljarða samanlagt í stærstu fyrirtækj- unum. Hún varð til með göldr- um eins og sameiningum og skuldsettum yfirtökum fyr- irtækja. Og til hennar var ákaft vitnað þegar ný lán voru slegin og laun forsprakka hækkuð. Og þegar einhver af gamla skólanum, með hallærislegt bindi á búknum, lýsti efasemd- um um að „viðskiptavildin“ gengi upp, þótti það ótvírætt merki um að sá væri á skjön við nýja efnahagslífið. Raunar virðist ærin ástæða til að hafa vara á sér þegar „nýja“ er slengt fyrir framan gamalt nafn. „ Nýja“ efna- hagslífið og „nýju“ lögmál þess eru þekkt. „Nýi“ Verka- mannaflokkurinn í Bretlandi líka og nú er það „nýja“ Ísland, með skjaldborgum, norrænni velferð, umbótanefndum og rýnihópum. Og vorið 2009 tók „ný“ ríkisstjórn við af „gömlu hrunstjórninni“ og var for- ystuflokkur hinnar nýju sóttur í rústirnar á Hruna. Á þessum tæpu þremur ár- um „nýju“ stjórnarinnar er hún sífellt að gera breytingar á ráðherraliðinu Og í hvert sinn „styrkist ríkisstjórnin“, eins og Gunnar Helgi prófessor hefur ekki við að staðfesta. Þessar „styrkingar“ á rík- isstjórninni við hvern nýjan ráðherrakapal minna óþægi- lega á vaxandi viðskiptavild „group-fyrirtækjanna“. Ögmundur fór og Álfheiður kom og þá styrktist rík- isstjórnin. Álfheiður fór og Ög- mundur kom og þá styrktist ríkisstjórnin aftur. Gylfi, kon- súll Kúbu norðursins, kom og Ragna ráðuneytisstjóri og þá styrktist stjórnin rosalega, enda hafði ekki nokkur maður kosið þau. Svo fóru þau aftur án skýr- inga og enn styrkt- ist ríkisstjórnin. Hringlað var með ráðuneyti og stofn- anir og Guðbjartur Hannesson kom inn og þá gerðist að vísu ekki neitt nýtt nema að rík- isstjórnin styrktist mjög við það og eins þegar Kristján Möller fór út og styrkti rík- isstjórnina með því. Og nú er Árni Páll búinn að styrkja rík- isstjórnina með því að yfirgefa hana og Jón Bjarnason lagði sitt af mörkum með því að verða samferða Árna. Katrín Júlíusdóttir mun ekki styrkja ríkisstjórnina fyrr en eftir fáeinar vikur þeg- ar hún fer í frí. Katrín Jak- obsdóttir mun þá styrkja stjórnina um sinn með því að taka ráðuneytið yfir þar til að Steingrímur J. getur bætt því við hin fjögur og styrkt þar með stjórnina. Á meðan verður kona úr þingflokki Samfylk- ingarinnar fengin til að styrkja ríkisstjórnina með því að „verma ráðherrastólinn“ í fjár- málaráðuneytinu í einhverja mánuði þar til að Katrín Júl- íusdóttir kemur til baka til að verða fjármálaráðherra í fá- eina mánuði til að styrkja rík- isstjórna. Ef að „styrkingarvild“ rík- isstjórnarinnar er lögð saman er hún orðin magnþrungin og ekki minni en „viðskiptavild“ group þetta og group hitt var á góðárunum fyrir hrun. Það verður mikið að gera hjá Gunnari Helga og hinum fræðimönnunum við að gera grein fyrir þessum miklu styrkingum á ríkisstjórn á næstunni. Þær bætast við þá styrkingarvild sem varð þegar Lilja, Atli og Ásmundur Einar fóru úr þingflokki VG, en stjórnmálafræðingum bar ein- mitt saman um að sú fækkun stjórnarliðsins myndi styrkja ríkisstjórnina. Til þess að hugga Samfylk- inguna hafa fræðimennirnir upplýst að aldrei áður hafi einn flokkur í ríkisstjórn feng- ið að fara með forsætisráðu- neytið, utanríkisráðuneytið og fjármálaráðuneytið á sama tíma. En þeir telja auðvitað ekki Framsókn með flokkum enda er hann ekki í Samfylk- ingunni. Ólafur Jóhannesson, Halldór E. Sigurðsson og Ein- ar Ágústsson fóru með forsæt- isráðuneyti og efnahagsmálin, dómsmálaráðuneytið fjár- málaráðuneytið landbún- aðarráðuneytið og utanrík- isráðuneytið frá 1971-1973. En Jóhanna fékk að vísu kvenrétt- indi fyrir efnahagsmálin í heild, sem vissulega styrkti ríkisstjórnina. Vaxandi styrking- arvild ríkisstjórnar er styrkleikamerki} Styrkingarvild G leðilegt nýtt ár, nýtt ár sem byrjar með látum í stjórnmálum lands- ins. Uppstokkun í ríkisstjórninni var kynnt fyrir áramót og fyrsta dag nýs árs tilkynnti forsetinn að hann ætlaði ekki að bjóða sig fram til embætt- isins aftur. Eða ætlar hann kannski að gera það? Það fer eftir því hvernig orð hans eru túlk- uð. Ég kýs að rýna ekkert of djúpt í þau, trúi því að Ólafur Ragnar Grímsson hafi verið að segja okkur að hann ætli ekki að bjóða sig fram til forseta Íslands í fimmta sinn og það sé eng- inn vafi í því máli. Vissulega skil ég samt að fólk skuli hafa gaman af því að velta því fyrir sér hvað lá í raun og veru að baki orðum hans. Ég hef enga trú á því að Ólafur Ragnar nenni að vera á Bessastöðum í fjögur ár í viðbót. Mað- urinn verður sjötugur á næsta ári, hefur verið í stjórnmálastappi nærri alla sína tíð og horfir nú líklega löngunaraugum á jafnaldra sína sem lifa áhyggjulausu lífi á golfvellinum og fá sér lúr eftir hádegismatinn. Það virðist svolítið vera í tísku í stjórnmálaheiminum að hleypa ekki nýjum að, sitja sem fastast í sínum stól og treysta engum til að taka við. Leiðtogarnir halda að þeir séu svo æðislegir og einstakir að ný kynslóð muni aðeins skemma þeirra sögulegu verk. Því sitja þeir sem fastast, telja það öruggast og þjóðin lætur blekkjast með, heila- þvæst af þeim áhyggjum að enginn muni standast þeim gamla snúning. Ég er ekki að ýta undir æskudýrkun eða að segja að eldri borgarar megi ekki sitja í æðstu emb- ættum landsins, þeir hafa reynsluna sem er seint metin að verðleikum. En þeir eru kannski líka búnir með kraftinn og metnaðinn sem þarf að hafa í þessum embættum. Birtast mæddir í fjölmiðlum og fara með sömu gömlu, öruggu, tugguna aftur og aftur. Stokka svo upp í starfsstöðinni til að sýnast vera að gera eitthvað, líkt og barn sem hrærir í matnum á diskinum sínum svo það líti út fyrir að það hafi borðað eitthvað. Þeir eiga það til að þrjóskast við í embætti og horfa í eina átt eins og hross með augnhlífar, í þá átt sem þeir vonast til að muni bjarga þeim undan þeirri ábyrgð sem felst í starfi þeirra. Losa þá undan oki ábyrgð- arinnar sem fylgdi því embætti sem þeir tóku að sér. Svolítið eins og unglingur sem vonast til að með nægu kvarti og kveini verði hann los- aður undan skylduverkefnunum svo hann geti sest ábyrgðarlaus fyrir framan sjónvarpið á meðan aðrir vinna verkin sem hann átti að gera. Það er ljóst að það er spennandi ár framundan í stjórn- málum landsins og við eigum nú von á mörgum mánuðum af vangaveltum um hver muni bjóða sig fram til forseta og hvort ríkisstjórnin tóri í „nýjum“ búningi inn í Evrópu- sambandið. Það eina sem ég bið um er að nýtt ár færi okk- ur kraft og fjör og vilja til árangurs í starfi. Að í stólinn á Bessastöðum setjist einhver með spriklandi lífsneista, sem sér að í stólnum felast óendanleg tækifæri fyrir land og þjóð, en lítur ekki á hann sem ruggustól áhyggjulausra ævidaga. ingveldur@mbl.is Ingveldur Geirsdóttir Pistill Að þekkja sinn vitjunartíma STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fyrstu uppsjávarveiðiskipinleggja væntanlega úr höfnnú í morgunsárið og haldatil loðnuveiða fyrir norðan land. Á árinu eru væntingar bundnar við góða loðnuveiði miðað við síðustu ár. Aflaheimildir Íslendinga í kol- munna hafa á ný aukist, en hins veg- ar er 16% samdráttur í norsk- íslenskri síld miðað við nýliðið ár og óvissa er með íslensku sumargots- síldina vegna sýkingar. Þá var það eitt af síðustu embættisverkum Jóns Bjarnasonar sem sjávarútvegsráð- herra að gefa út svipaðan heildar- kvóta í makríl og var á síðasta ári. Reiknað er með að um fimmtán loðnuskip haldi til veiða í dag og á leiðinni á miðin munu tíu þeirra kort- leggja tiltekin svæði samkvæmt for- skrift Hafrannsóknastofnunar. Það einfaldar verkefni rannsókna- skipsins Árna Friðrikssonar sem jafnframt heldur í loðnuleiðangur í dag. Loðnu gæti verið að finna hvar sem er út af Norðurlandi, en líkleg- asta veiðisvæðið gæti verið norður af Melrakkasléttu. Upphafsheimild á loðnuvertíð- inni var 181.269 lestir af loðnu til ís- lenskra skipa og veiddust rúmlega átta þúsund tonn fyrir áramót. Mæl- ingar á loðnustofninum gengu illa í haust, en eigi að síður er vonast til að hluti íslenskra skipa af heildinni verði um hálf milljón tonna. Miðað við hagstæða samsetningu loðnuafl- ans í bræðslu, frystingu og hrogna- vinnslu áætlaði sjávarútvegsráðu- neytið í haust að heildarverðmæti úr sjó gæti orðið 20 til 30 milljarðar. Aðalsteinn á kolmunna Meðan bróðurparturinn af upp- sjávarflotanum heldur á loðnumiðin hyggst Eskja á Eskifirði senda frystiskipið Aðalstein Jónsson á kol- munnaveiðar við Færeyjar. Þar hef- ur oft fengist ágætur afli í janúar þegar kolmunninn er á suðurleið. Í ár koma um 63.477 tonn af kolmunna í hlut Íslendinga samkvæmt sam- komulagi strandríkja, en samið var um að heildaraflinn yrði 391 þúsund tonn. Í fyrra var aðeins heimilt að veiða alls 40 þúsund tonn af kol- munna. Leyfilegur heildarafli á norsk- íslenskri síld er í ár 833 þúsund tonn, en það er 16% samdráttur milli ára. Samkvæmt samkomulagi strand- ríkja er íslenskum skipum heimilt að veiða 120.868 tonn í ár. Aflamark í makríl Eins og áður sagði var það eitt af síðustu embættisverkum Jóns Bjarnasonar að gefa út heildar- aflamark í makríl á þessu ári. Ráð- herra tilkynnti ákvörðun sína um 145 þúsund tonna heildarafla 30. desem- ber, en benda má á að í fyrra lá sam- bærileg ákvörðun fyrir 17. desem- ber. Það er hins vegar nýs sjávar- útvegsráðherra að útfæra hvernig veiðunum verður háttað. Fram- undan er viðræðufundur strandríkja um makríl í Bergen í lok mánaðarins. Makrílveiðar skiluðu þjóðar- búinu yfir 25 milljörðum í fyrra. Þær sköpuðu yfir 1.000 ársverk á sjó og landi, að afleiddum störfum með- töldum. Alls komu íslensk skip með um 156 þúsund tonn að landi eða 16% af allri veiði úr stofninum, skv. frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu. Skipuleg makrílveiði í íslenskri lög- sögu hófst fyrst á þessari öld og fór fyrst yfir þúsund tonn árið 2006. Loðnuleit og veiðar fyrir Norðurlandi Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Vertíð Kap VE í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum í gær. Uppsjávarskipin halda flest í dag og næstu daga til loðnuveiða fyrir norðan land. Spurningar hafa vaknað um vetursetu makríls í lögsögunni, en nokkuð hefur verið um að ungur makríll hafi ánetjast síðustu vetur og fundist í mögum annarra fiska. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofna- sviðs Hafró, segir að makríls hafi orðið vart í hlýsjónum undan Suðaust- urlandi og allt vestur undir Snæfellsnes. Aðspurður hvort þessi makríll sé með íslenskt ríkisfang, segir Þorsteinn að líklegt sé að hann hafi eitt- hvað klakist út í lögsögunni síðastliðið vor líkt og staðfest var með rann- sóknum að gerðist árið 2010. „Við erum að rannsaka sýni sem við höf- um fengið í vetur til að reyna að meta hvenær hann klaktist út. Í klak- rannsóknum sumarið 2010 sáum við að klakið teygði sig inn í íslenska lögsögu djúpt suðaustur af landinu og miklu norðar en áður hafði verið. Aldursgreiningar á makrílseiðum við landið haustið 2010 og veturinn 2011 bentu jafnframt til þess að sá makríll hefði klakist út á svipuðum tíma og vart varð við hrygninguna, þ.e. í júní,“ segir Þorsteinn. Með íslenskt ríkisfang? VETURSETA MAKRÍLS Í LÖGSÖGUNNI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.