Morgunblaðið - 03.01.2012, Page 48
Bíólistinn 30. desember 2011 – 1. janúar 2012
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
Sherlock Holmes 2
Mission Impossible : Ghost Protocol
New Year’s Eve
Alvin og íkornarnir 3
Puss In Boots
The Girl with the Dragon Tattoo
Sitter, The
Fjörfiskarnir (SeeFood)
AVery Harold And Kumar 3D Christmas
Artúr bjargar jólunum
Ný
2
5
1
4
6
Ný
Ný
7
3
1
3
2
3
4
2
1
1
4
5
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Tekjuhæsta kvikmynd nýliðinnar
helgar var Sherlock Holmes 2 en
þar bregða stórstjörnurnar Robert
Downey Jr. og Jude Law sér aftur í
gervi félaganna Sherlock Holmes
og doktor Watson. Líkt og í fyrri
myndinni sér Guy Ritchie um leik-
stjórn en í þessari mynd er ný kven-
persóna kynnt til sögunnar og fer
sænski Íslandsvinurinn Noomi
Rapace með það hlutverk.
Í öðru sæti var spennumyndin
Mission Impossible: Ghost Protocol
með Tom Cruise í aðalhlutverki en í
myndinni leikur einnig Michael
Nyqvist sem öðlaðist heimsfrægð
eftir leik sinn í Millennium þrí-
leiknum með áðurnefndri Rapace.
Fast á hæla henni kemur myndin
New Year’s Eve sem segir frá
nokkrum pörum og einstaklingum
og hvernig líf þeirra fléttast saman
á gamlárskvöldi. Myndin skartar
ótalmörgum þekktum stjörnum,
líkt og Halle Berry, Jon Bon Jovi,
Ashton Kutcher, Zac Efron, Hilary
Swank, Sarah Jessica Parker og
Jessica Biel.
Bíóaðsókn helgarinnar
Spæjari og njósnari
Sherlock Noomi Rapace og Robert
Downey Jr. í hlutverkum sínum.
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2012
AF LISTUM
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Í samantekt íslenskra fjöl-miðla á bestu skífu nýliðins árssást óvíða My Head is an Ani-
mal, plata hljómsveitarinnar Of
Monsters and Men. Ég var til að
mynda spurður að því af hverju plat-
an var ekki á mínum árslista og
hafði ég þó verið ófeiminn við að
mæra sveitina við hvern þann sem
heyra vildi.
Skýringin er sú að val á slíkanlista ræðst stundum af því hvað
sé forvitnilegast frekar en best (að
því slepptu hversu óvísindalegt það
er að segja eina plötu betri en aðra –
slíkt mat er persónulegt og breytist
dag frá degi). Þegar þessi orð eru
skrifuð er ég til að mynda að hlusta
á El tren fantasma sem Chris Wat-
son setti saman úr upptökum á lest-
arhljóðum sem hann hljóðritaði á
ferðalagi um Suður-Ameríku. Frá-
bær plata, en er hún betri en Wild
Beasts-platan Smother sem ég hlust-
aði á á leið í vinnuna í morgun eða
Nology með Nolo sem sett var á er
ég mætti í vinnuna eða Afsakið með
Þóri Georg sem hljómaði sem undir-
leikur undir bóklestur í gærkvöldi?
My Head is an Animal er fram-úrskarandi skífa, tónlistin
hrífandi og grípandi í senn, ein
besta poppplata/rokkplata ársins.
Það hve Of Monsters and Men hefur
verið lítt áberandi í íslensku tónlist-
arlífi, þó lög af My Head is an Ani-
mal séu mikið spiluð og platan hafi
selst mjög vel, skrifast að einhveru
leyti á það hvernig sveitin varð til,
því Nanna Bryndís Hilmarsdóttir
Utan við meginstrauma
Hrífandi Of Monsters and Men; fullmótuð og ein af hljómsveitum ársins.
upphafskona sveitarinnar var ekki
hluti af Reykjavíkursenunni, heldur
bjó hún suður með sjó og sendi hún
frá sér fyrstu lögin á Rokk.is fyrir
mörgum árum undir listamanns-
nafninu Josie og síðar sem Josie
Anima. (Viðtal við Nönnu / Josie má
finna á vefsetri mbl.is, sjá: http://
goo.gl/qRzuG). Þegar hún svo birt-
ist með fullmótaðri hljómsveit á
Músíktilraunum fyrir tveimur árum
vissu fáir aðrir en þeir sem þekktu
til Josie hvað væri í vændum og enn
færri höfðu fengið að sjá og heyra
að ekki væri um að ræða sólóverk-
efni með undirspili, heldur væri til
orðin fullmótuð og slípuð hljómsveit.
Of Monsters and Men varð þvítil utan við meginstrauma í ís-
lenskri dægurtónlist, utan við ball-
spilamennskuna og utan við krútt-
indítilraunalistasúpuna. Fyrir vikið
hættir mönnum til gleyma sveitinni
og þá um leið að gleyma því hve góð
hún er og hversu vel heppnuð My
Head is an Animal er og fyrir vikið
sést hún ekki á listum þó hún eigi
kannski heima þar. Það breytir því
þó ekki að Of Monsters and Men á
skilið að vera talin hljómsveit ársins,
eða í það minnsta ein af hljóm-
sveitum ársins með Sólstöfum, adhd,
Náttfara, Ham, FM Belfast, Dead
Skeleton, Samaris o.s.frv.
»My Head is anAnimal er fram-
úrskarandi skífa, tón-
listin hrífandi og gríp-
andi í senn, ein besta
poppplata/rokkplata
ársins.
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
Það er óhætt að segja að það sé afar
spennandi tækifæri fyrir 10 ára
stúlku, sem dreymir um að verða
söngkona og leikkona þegar hún
verður stór, að fá að syngja lokalagið
í sjálfu Áramótaskaupinu. Það er
heldur ekki verra þegar um er að
ræða íslenskan texta við lag söng-
konu sem er í miklu uppáhaldi, í
þessu tilviki Rolling In The Deep
með hinni bresku Adele.
„Það var rosalega gaman að fá
þetta tækifæri og ég held líka mikið
upp á Adele,“ segir Ísold Ylfa S. Jak-
obsdóttir, nemandi í 5. bekk í Víð-
istaðaskóla í Hafnarfirði. „Það var
gaman að taka upp atriðið og fólkið
sem var að vinna þarna var frábært.“
Æfir söng og djassballett
Spurð hvernig það kom til að hún
fékk hlutverkið segir hún að móðir
sín, Erla Rut Harðardóttir, leikkona
og kennari hjá Sönglist, hafi verið
beðin um að velja fimm stelpur, sem
hún taldi að myndu treysta sér til að
syngja lagið, til að koma í prufu. Þær
sungu lagið á ensku og úr varð að Ís-
old, sem segist þekkja lagið út í
gegn, var valin en tvær aðrar voru
fengnar til að syngja bakraddir.
Spurð hvernig hún hafi brugðist við
þegar hún frétti að hún hefði hreppt
hlutverkið, viðurkennir Ísold að það
hafi verið blendnar tilfinningar. „Ég
var spennt en pinkulítið stressuð.“
Ísold hefur æft söng hjá Sönglist
síðan hún var 6 ára en hún leggur
einnig stund á djassballett. „Af því
að mamma er leikkona þá langaði
mig að verða leikkona og söngkona.
Þess vegna byrjaði ég í Sönglist,“
segir hún en það er nóg framundan
hjá henni því bráðlega hefjast æfing-
ar fyrir nemendasýningu Sönglistar.
Skaupið mjög skemmtilegt
Aðspurð segist Ísold hafa fengið
afar jákvæð og góð viðbrögð við
frammistöðu sinni í Áramótaskaup-
inu. Þau lýsi sér helst í því að vinkon-
ur hennar hafi hringt í hana og vinir
og ættingjar hrósað henni á Facebo-
ok. En ætli það sé ekki skrýtið að sjá
sjálfan sig í Áramótaskaupinu, þætti
sem þorri Íslendinga horfir á? „Ég
beið spennt eftir að horfa á Skaupið,“
segir hún „en mér fannst rosalega
skrýtið að sjá sjálfa mig syngja.“
Fólki verður iðulega tíðrætt um
Skaupið dagana eftir að það er sýnt
og virðast flestir hafa skoðanir á því
hvernig til tókst að skemmta land-
anum. „Mér fannst Skaupið mjög
skemmtilegt. Það var gaman að sjá
alla krakkana í hópatriðinu, eins og
t.d. bróður minn Alex Elí.“
Skrýtið að sjá sjálfa sig í Skaupinu
Ísold Ylfa S. Jakobsdóttir söng lokalagið í Áramótaskaupinu „Spennt en pinkulítið stressuð“ að
hreppa hlutverkið Langar að verða söngkona, leikkona og dansari þegar hún verður fullorðin
Morgunblaðið/Kristinn
Ísold Ylfa „Það var rosalega gaman að fá þetta tækifæri,“ segir hún um að hafa tekið þátt í Áramótaskaupinu.
Ísold fékk ekki langan tíma til
að læra textann við lokalagið í
Áramótaskaupinu því daginn
eftir að hún fékk að vita að
hún hefði hreppt hlutverkið
átti hún að mæta í stúdíó og
syngja lagið. „Ég lærði text-
ann á þriðjudegi og fór svo í
stúdíóið á miðvikudegi. Svo
voru upptökur fyrir sjálft
Skaupið á fimmtudegi.“
Hún fékk aðstoð hjá Ragn-
heiði Hall, söngkennara hjá
Sönglist, við að undirbúa sig
og þegar Ísold skildi textann
ekki nægilega vel leitaði hún
til móður sinnar sem útskýrði
og leiðbeindi dóttur sinni.
Fór strax
í stúdíóið
Ljósmynd/Skjáskot úr Skaupinu
ÍSOLD YLFA