Morgunblaðið - 27.01.2012, Síða 1

Morgunblaðið - 27.01.2012, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 7. J A N Ú A R 2 0 1 2  Stofnað 1913  22. tölublað  100. árgangur  LÆRÐUR ÁHÆTTU- LEIKARI AFREK Í 100 ÁRA SÖGU ÍSÍ RIFJUÐ UPP ÆVINTÝRIN GERAST Á SUNDANCE ÁTTA SÍÐNA AUKABLAÐ KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í UTAH 39VILHJÁLMUR ÞÓR 10 Það horfði brosandi á ökumanninn parið sem lá makindalega á sólbökuðum sandinum á auglýsingaspjaldi við Kolaportið. Ökumaðurinn sat fastur í skaflinum og var hugsi. Hann var ekki einn um að eiga í vandræðum vegna ófærðar því ökumenn á þriðja hundrað bifreiða skildu þær eftir á Suðurnesjum aðfaranótt fimmtudags í vitlausu veðri. Veðurstofan spáði hægu veðri í nótt en fylgst er með svæð- um þar sem rigningar geta valdið snjóflóðum. Hellisheiðin var ófær í gærkvöldi og færð erfið víða um land. »2, 4, 12 Skaflarnir leiða hugann að sólarströndum Morgunblaðið/Kristinn  Alþingi fer með ákæruvaldið í landsdómsmálinu og getur hvenær sem er afturkallað ákæruna gegn Geir H. Haarde. Skyldi Alþingi ákveða að falla frá ákærunni á hend- ur Geir fæli það ekki í sér íhlutun í dómsmál. Þetta kom fram í máli Sigríðar J. Friðjónsdóttur, saksóknara Alþing- is, á fundi með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins í gær. Kveðið var á um það í úrskurði Landsdóms 3. október 2011 að for- ræði málsins væri í höndum Alþingis og þar með talið ákæruvaldið. »14 Ákæruvaldið ótví- rætt hjá Alþingi Ingveldur Geirsdóttir Helgi Bjarnason „Við fórum eins lágt og við gátum og skoðuðum hvern hlut vel. En við sáum aðeins um hundrað metra frá okkur. Eftir um hálftíma sáum við manninn sem bjargaðist, hann var í björgunarfatnaði sem lýsti af og veif- aði höndunum,“ segir Olve Arnes, flugmaður þyrlunnar sem bjargaði skipverja af Hallgrími SI-77, í samtali við Morgunblaðið. Arnes segir að mikil rigning hafi gert það að verkum að innrauð myndavél þyrlunnar nýttist ekki og því hafi björgunarmenn þurft að reiða sig á mannsaugað, ljós þyrlunnar og nætursjónauka. Líklega lengsti tími í sjónum Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, segir að þetta sé líklega lengsti tími sem ís- lenskur sjómaður hafi verið í sjó í björgunarbúningi en maðurinn var í tæpar fjórar klukkustundir í köldum sjónum og mikilli ölduhæð. Maður í slíkum búningi eigi að geta verið í sex tíma í 0°C heitum sjó án þess að líkamshiti hans falli um meira en eina gráðu. Dæmi séu um að er- lendis hafi menn verið í átta tíma í sjó í búningnum. Verða að fljúga tvær saman Íslenska landhelgisgæslan hefði ekki getað farið til bjargar skipinu hefði það sokkið innan íslenska leitar- og björgunarsvæðisins. Reglur Flug- málastjórnar kveða á um að þyrlum Gæslunnar megi ekki fljúga meira en tuttugu sjómílur frá strönd landsins nema þær fari tvær saman. Hjalti Sæmundsson, aðalvarðstjóri í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, segir að Gæslan hafi leitað til norsku standgæslunnar um björgun, þótt skipið hefði ekki verið komið út af ís- lenska leitarsvæðinu. Ávallt sé leitað til björgunaraðila sem eru í bestu að- stöðunni til að koma til bjargar. Ekki hefði verið hægt að kalla til þyrlu frá Færeyjum til björgunar því flugþol þyrlunnar þar er ekki nægi- lega mikið. M„… hann ætlaði að lifa“ »16 „Við sáum aðeins um 100 metra frá okkur“  Gæslan hefði ekki getað sent þyrlur  Geta lifað í sex stundir í 0°C heitum sjó „Svona búhnykkur skiptir umtals- verðu máli. Það er tiltölulega fljót- reiknað að þetta getur slagað upp í eitt prósent í aukinni lands- framleiðslu, ef við berum mögu- lega bestu út- komu úr þessari vertíð saman við þá í fyrra,“ segir Steingrímur J. Sigfússon sjávar- útvegsráðherra, spurður um þjóð- hagslegt mikilvægi loðnukvótans sem Hafrannsóknastofnun leggur til 556.000 tonn í Íslands hlut. Er útflutningsverðmætið áætlað á bilinu 25-30 milljarðar króna. »6 Búbót fyrir ríkissjóð og hagkerfið í heild Steingrímur J. Sigfússon Skipverjarnir þrír sem fórust þegar Hallgrímur SI-77 sökk við Noreg á miðvikudag hétu Magn- ús Þórarinn Daníelsson, skip- stjóri, Gísli Garðarsson, stýri- maður, og Einar G. Gunnarsson, vélstjóri. Magnús fæddist árið 1947 og var til heimilis á Mávatjörn 17 í Reykjanesbæ. Hann lætur eftir sig eiginkonu, þrjú uppkomin börn og fimm barnabörn. Gísli fæddist árið 1949. Hann var til heimilis í Vatnsholti 26 í Reykja- nesbæ. Gísli lætur eftir sig eig- inkonu. Einar fæddist árið 1944. Hann bjó í Logafold 29 í Reykja- vík. Einar lætur eftir sig eigin- konu, fjórar uppkomnar dætur og eitt barnabarn. Maðurinn sem bjargað var heitir Eiríkur Ingi Jóhannsson. kjartan@mbl.is Einar G. Gunnarsson Gísli Garðarsson Magnús Þórarinn Daníelsson Þrír fórust þegar Hallgrímur SI-77 sökk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.