Morgunblaðið - 27.01.2012, Side 2

Morgunblaðið - 27.01.2012, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Miele þvottavélar og þurrkarar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. „Forsetinn sagði tvö lauf fyrir Jón Baldursson, landsliðsspilara og einn heimsmeistaranna 1991,“ sagði Jaf- et S. Ólafsson, forseti Bridge- sambands Íslands, um setningu Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, á alþjóðlegu bridsmóti í Reykjavík í gær. Jafet segir mótinu vaxa ásmegin. „Þetta er stórt alþjóðlegt mót með 300 spilurum, þar af rúmlega 100 er- lendum. Mótið er því það stærsta til þessa. Það er spilaður tvímenningur í kvöld og á morgun [í dag] og síðan tekur við sveitakeppni á laugardag og sunnudag. Mótinu lýkur með verðlaunaafhendingu klukkan þrjú á sunnudag.“ Alþjóðlegt bridsmót í Reykjavík það fjölmennasta til þessa Forsetinn sagði tvö lauf Morgunblaðið/Árni Sæberg Forsetinn setur mótið Á bak við hann stendur Jafet en honum á hægri hönd eru Jón Steinar Kristinsson, Jón Baldursson og Svíinn Peter Fredin. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Nú er dómur Hæstaréttar kominn og niðurstaða fengin. Málinu er lokið hvað ríkið varðar. Hæstiréttur hafði þar síðasta orðið. Þetta er enda- punkturinn gagnvart ríkinu. Það hef- ur ekki verið fallist á að ríkið beri ábyrgð á þessu tjóni,“ segir Hilmar Gunnlaugsson, lögmaður hóps sem átti fé í peningamarkaðssjóðum gamla Landsbankans og höfðaði mál gegn ríkinu vegna tapaðra inni- stæðna. Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn- aði ríkið af kröfunni, sem var tvíþætt; annars vegar að viðurkennd yrði sjálfskuldarábyrgð en til vara einföld ábyrgð ríkisins á tjóni fólksins. Var tjónakrafan byggð á mismun á verð- mæti hlutdeildarskírteina í peninga- markaðsbréfunum við lokun markaða 3. október 2008 og við uppgjör til hlutdeildarskírteinishafa 29. sama mánaðar. Hefði haft almennt gildi „Málið snerist ekki aðeins um mína umbjóðendur. Þetta hefði haft al- mennt gildi fyrir viðskiptavini sam- bærilegra sjóða hjá öðrum bönkum. Upphæðin sem snerti umbjóðendur mína var um milljarður. Til saman- burðar voru 160- 170 milljarðar króna inni á peningamarkaðs- sjóðum Lands- bankans viku fyr- ir hrun. Um 40% þeirrar upphæðar voru tekin út síð- ustu vikuna fyrir hrun og stóðu þá um 100 milljarðar eftir. Ríkið bætti 68,8% þess fjár,“ segir Hilmar. Um 30 milljarðar töp- uðust. „Það er fyrst og fremst gagnvart Landsbankanum sem reiði manna beinist. Menn telja bankann hafa brotið á sér. Málinu er því ekki lokið. Það hefur legið fyrir frá upphafi að við myndum sækja á bankann. Við verðum að geta byggt málið nægj- anlega vel upp og það hefur verið vandinn. Það nægir ekki að vísa til skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, þótt margir af mínum umbjóðendum hafi talið hana sanna það sem þeir halda fram. Nú liggur fyrir að Hæsti- réttur gerir kröfu um betri sönnun en tilvísun til skýrslunnar. Þessi dómur slær því föstu að umbjóðendur mínir geti ekki sótt neitt til ríkisins með vís- an til yfirlýsinga ráðamanna um rík- istryggingar á sparifé.“ Bótaskylda ríkis er úr myndinni  Töpuðu 30 milljörðum á sjóðum LÍ Hilmar Gunnlaugsson Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Á opnum fundi foreldra um sam- einingu unglingastigs Hamraskóla, Foldaskóla og Húsaskóla í gær- kvöldi kom fram megn óánægja talsmanna foreldranna með vinnu- brögð Oddnýjar Sturludóttur, for- manns skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, í málinu. Auk hennar hafði hópurinn óskað eftir að þrír aðrir fulltrúar borgarinnar sætu fyrir svörum á fundinum. Ekkert þeirra mætti hins vegar á fundinn. Í lok fundarins tilkynnti formað- ur foreldrafélags Hamraskóla að hún segði sig úr stýrihópi um sam- einingu unglingastiganna. Vel á annað hundrað manns voru á fundinum í sal Hamraskóla á meðan blaðamaður Morgunblaðs- ins var á staðnum en það var hóp- ur foreldra barna í Hamra- og Bryggjuhverfi í Grafarvogi sem boðaði til hans til þess að ræða áhrif sameiningarinnar á framtíð skólans. „Ég er mjög ósátt við vinnu- brögð fulltrúa Reykjavíkurborgar. Það er kallaður saman stýrihópur með hagsmunaaðilum í þessa vinnu. Það er talað um virkt starf foreldra og að þeir hafi eitthvað um málin að segja en það hefur all- an tímann verið virt að vettugi,“ segir Elín Hjálmsdóttir, formaður foreldrafélagsins, um ástæðu þess að hún sagði sig úr stýrihópnum. Fulltrúarnir mættu ekki Þá segir hún stýrihópinn ekki hafa haft nein svör við spurningum foreldra um áhrif sameining- arinnar á framtíð skólans. „Ég hef beðið í fjóra mánuði eft- ir svörum og það er enn verið að bíða eftir þeim. Mér finnst fulltrú- ar Reykjavíkurborgar sýna íbúum hverfisins ótrúlega vanvirðingu með því að mæta ekki,“ segir Elín. Við lok fundarins voru tvær ályktanir samþykktar. Í annarri þeirra lýsir fundurinn vonbrigðum með það að fulltrúar borgarinnar skyldu ekki mæta til að sitja fyrir svörum. Í hinni eru hroðvirknisleg vinnubrögð ráðamanna fordæmd og farið fram á að hætt verði við sameininguna þar sem enn hafi ekki verið sýnt fram á ávinning af henni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Óánægja Á annað hundrað manns mættu á fundinn í Hamraskóla. Enginn fulltrúi meirihluta borgarstjórnar mætti en borgarfulltrúarnir Sóley Tómasdóttir, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Kjartan Magnússon voru viðstaddir. Lýstu megnri óánægju á fjölsóttum fundi  Fulltrúi foreldra segir sig úr stýrihópi um sameiningu Í tölvubréfi sagðist Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs, ekki komast á fundinn í gær en boðaði þess í stað til fundar með for- eldrum í Hamraskóla hinn 1. febrúar kl. 17.30 til þess að kynna undirbúningsvinnuna við sameininguna og svara spurningum. Bauð til fundar FUNDUR Í NÆSTU VIKU „Það er búið að aflýsa hættu- og óvissuástandi á Vestfjörðum og Mið- Norðurlandi. Það gæti rignt á laug- ardaginn. Rigningin þyngir og bleyt- ir snjóinn. Ef það er veikleiki í snjóa- lögunum gætu þau farið af stað. Það eru mörg dæmi um að þegar snögg- hlýnar og rignir fari að falla flóð. Við verðum á varðbergi næstu daga,“ segir Rúnar Óli Karlsson, vaktstjóri snjóflóðavaktar Veðurstofu Íslands. Á ellefta tímanum í gærkvöldi spáði Veðurstofa Íslands hægum vindi fram undir morgun og vaxandi suðaustanátt með snjókomu á Suð- ur- og Vesturlandi upp úr hádegi en slyddu og rigningu eftir því sem hlýnaði með deginum. Spáð var snjó- komu norðaustantil á landinu í kvöld. Á níunda tímanum í gærkvöldi var Hellisheiðin enn ófær en unnið var að mokstri. Þrengslin voru fær öllum bílum en hálka á veginum. Flestar aðalleiðir á Suðurlandi voru færar. Rigningar gætu leitt til snjóflóða  Snjóflóðavaktin á varðbergi um helgina Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Snjóþungt Mikið vetrarríki hefur verið á Ísafirði síðustu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.