Morgunblaðið - 27.01.2012, Side 8
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Pressa Friðrik Ólafsson teflir við Nansý Davíðsdóttur, fyrsta kvenkyns Íslandsmeistara barna í skák.
Sævar Már Gústavsson
saevar@mbl.is
Skákdagur Íslands var haldinn í
fyrsta sinn í gær og var haldinn há-
tíðlegur um allt land. Áætlað er að
dagurinn verði að árlegum viðburði
framvegis.
Dagurinn er haldinn til heiðurs
Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeist-
ara Íslands í skák, en Friðrik fagn-
aði 77 ára afmæli sínu í gær. Friðrik
hefur unnið mikið fyrir skákíþrótt-
ina og eflt hróður hennar á ferli sín-
um með því að ná frábærum árangri,
meðal annars lagt fjóra heimsmeist-
ara að velli.
Móttaka var haldin á Bessastöð-
um Friðriki til heiðurs og á meðal
gesta voru þau börn sem munu taka
þátt í Norðurlandamóti barna í skák
fyrir Íslands hönd. Þar tefldi Friðrik
við Nansý Davíðsdóttur, 10 ára, sem
er nýkrýndur Íslandsmeistari barna
í skák og fyrsta stelpan sem vinnur
þann titil. Viðureign endaði með
heiðursmannajafntefli á milli fyrsta
stórmeistara Íslands og fyrsta kven-
kyns Íslandsmeistara barna.
Að skákdeginum standa Skák-
akademía Íslands, Skákakademía
Reykjavíkur, Skákskóli Íslands og
taflfélög um allt land í samvinnu við
skóla, íþróttafélög, sveitarfélög og
aðra velunnara íþróttarinnar.
Sundlaugarskáksett vígt
Atburðir og uppákomur tengdar
skák voru um allt land og má þar
nefna að snemma morguns fór fram
fjöltefli ofan í Laugardalslaug. Einn-
ig var sundlaugarskáksett vígt í
Sundlaug Akureyrar og teflt við
grunnskólabörn víðsvegar um land-
ið. Skákdeginum er ætlað að kynna
íþróttina og kveikja skákáhuga fólks
á öllum aldri en kjörorð dagsins voru
„Upp með taflið!“. Gunnar Björns-
son, forseti Skáksambands Íslands,
segir íþróttina í stöðugum vexti hér
á landi og þátttaka í skák hafi aukist
verulega síðastliðin þrjú ár. „Það er
ódýrt og auðvelt að stunda skák. Það
þarf bara eitt sett og þá er hægt að
byrja. Skák er ekki jafnfyrirferð-
armikil og t.d. fótbolti og því hægt
að byrja að tefla hvenær sem er. Síð-
an skemmir ekki að skák er alveg
ótrúlega skemmtileg og gefandi,“
segir Gunnar.
Heiðursmannajafntefli í
tilefni fyrsta skákdagsins
„Það þarf bara eitt sett og þá er hægt að byrja“
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012
Þegar heiftin greip nokkra þing-menn stjórnarflokkanna í lið-
inni viku og þeir kröfðust þess að
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, yrði látin víkja
brást Jóhanna
Sigurðardóttir við
með því að segja að
ekki væri útilokað
að svo færi.
Þetta er í góðusamræmi við
viðbrögð Jóhönnu í
sambærilegum mál-
um. Þegar sótt er að
þingmönnum henn-
ar eða ráðherrum í
ríkisstjórn gætir hún
þess yfirleitt vand-
lega að veita þeim
engan stuðning eða
jafnvel slá til þeirra.
Í gær gafst Jóhönnu tækifæri til aðbæta ráð sitt því að tveir þing-
menn, þeir Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson og Birgir Ármannsson,
spurðu hana út í afstöðu hennar til
forseta þingsins.
Þrátt fyrir þessar fyrirspurnirtókst forsætisráðherra ekki að
lýsa yfir stuðningi við forseta þings-
ins. Þvert á móti ítrekaði hún að
breytingar kynnu að verða á skipan
þingforseta, og endurtók þannig
fyrri hótanir í garð forseta.
Þessi óheilindi forsætisráðherra ígarð samstarfsfólks síns eru
orðin með miklum eindæmum og
fyrir löngu orðin að sjálfstæðu
vandamáli enda grefur hún undan
því litla trausti sem þó gæti ríkt á
milli þeirra sem tekið hafa að sér að
skipa þann meirihluta sem á að stýra
landinu.
Og þegar enginn treystir foryst-unni er ekki að undra þótt ár-
angurinn sé eins og raun ber vitni.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Ömurleg framkoma
gagnvart forseta
STAKSTEINAR
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Veður víða um heim 26.1., kl. 18.00
Reykjavík -3 léttskýjað
Bolungarvík -7 léttskýjað
Akureyri -5 alskýjað
Kirkjubæjarkl. -3 léttskýjað
Vestmannaeyjar -2 heiðskírt
Nuuk -6 alskýjað
Þórshöfn 2 skýjað
Ósló -2 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 léttskýjað
Stokkhólmur -1 snjókoma
Helsinki -5 skýjað
Lúxemborg 2 súld
Brussel 7 skúrir
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 0 slydda
London 7 skýjað
París 7 heiðskírt
Amsterdam 6 skúrir
Hamborg 0 heiðskírt
Berlín -1 skýjað
Vín 0 skýjað
Moskva -15 léttskýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 13 skýjað
Róm 8 heiðskírt
Aþena 6 skýjað
Winnipeg -2 skýjað
Montreal -6 léttskýjað
New York 3 alskýjað
Chicago 1 alskýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:25 16:57
ÍSAFJÖRÐUR 10:49 16:43
SIGLUFJÖRÐUR 10:33 16:25
DJÚPIVOGUR 9:59 16:22
Fimm aðalmenn
og jafnmargir
varamenn voru
kosnir í nýja
stjórn Ríkis-
útvarpsins ohf. á
Alþingi í gær.
Björg Eva
Erlendsdóttir,
sem kjörin var
sem aðalmaður í
stjórnina, þurfti
að losa sig við
lítinn hlut sem
hún hefur átt í
vefritinu Smug-
unni til þess að
uppfylla hæfis-
kröfur sam-
kvæmt lögum
um ríkis-
útvarpið.
Í þeim segir
að stjórnarmenn
RÚV megi ekki hafa neinna hags-
muna að gæta í öðrum fjölmiðla-
fyrirtækjum sem leitt geti til
árekstra við hagsmuni RÚV.
Búin að selja hlutinn
„Það var alveg vitað um þetta.
Henni var gerð grein fyrir að ef
hún fengi kosningu í stjórn RÚV
yrði hún að segja sig frá öllum
öðrum fjölmiðlum,“ segir Björn
Valur Gíslason, þingflokks-
formaður Vinstri-grænna.
„Það er frá þessu gengið og ég
á ekki lengur hlut í Smugunni,“
segir Björg Eva.
Auk Bjargar Evu voru þau
Margrét Frímannsdóttir, Magnús
Geir Þórðarson, Magnús Stef-
ánsson og Halldór Guðmundsson
kosin sem aðalmenn í stjórn.
Varamenn eru Ása Rich-
ardsdóttir, Signý Ormarsdóttir,
Hlynur Hallsson, Þórey Anna
Matthíasdóttir og Lárus Ýmir
Óskarsson. kjartan@mbl.is
Selur
hlut sinn
í vefriti
Alþingi kýs nýja
stjórn RÚV ohf.
Björg Eva
Erlendsdóttir
Björn Valur
Gíslason