Morgunblaðið - 27.01.2012, Page 9

Morgunblaðið - 27.01.2012, Page 9
Steinunn Viktorsdóttir, tvítug stúlka sem fæddist fyrir tímann og dvaldi á vökudeild Barnaspítala Hringsins um tíma, kom í heimsókn í desember síðastliðnum ásamt for- eldrum sínum, Viktori Kr. Helga- syni, Önnu Sigríði Þráinsdóttur og ömmum og öfum með gjafir. Þau færðu deildinni peysur, húfur, sokka, og teppi sem amma Stein- unnar hefur hannað og útbúið. Fjölskyldan hefur af og til fært Gáfu vökudeildinni fatnað og fé deildinni gjafir og þá gjarnan í des- ember. Einnig færði hún vöku- deildinni peningagjöf sem mun nýt- ast vel til að hlúa að séraðstöðu sem nýlega var komið upp á deild- inni og nefnist mæðraherbergi. Þar geta mæður nú farið afsíðis og mjólkað sig í friði og ró. Starfs- menn geta líka sest þar niður með mæðrum til að leiðbeina þeim og veita fræðslu um brjóstagjöf og tengd málefni. Japanshátíð verður haldin á morgun, laug- ardag, á Háskólatorgi, Háskóla Íslands. Hátíð- in er skipulögð í sam- vinnu Sendiráðs Japans á Íslandi og nemenda í japönsku máli og menn- ingu á hugvísindasviði HÍ. Japanshátíðin hefur verið haldin í janúar ár hvert síðan 2005. Hátíð- in í ár er því sú áttunda í röðinni. Eitt af sér- kennum Japanshátíð- arinnar er að flest allt það sem gestum og gangandi er boðið upp á að skoða er unnið og fram borið af nem- endum í japönsku máli og menn- ingu við hugvísindasvið HÍ. Stofn- un Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er einn samstarfsaðila hátíðarinnar. Nemendurnir, um 60 talsins, skipuleggja og kynna hin ýmsu atriði sem tengjast japönsku máli og menningu á hátíðinni og þá hefur félagsskapur fólks af jap- önskum uppruna á Íslandi einnig lagt hönd á plóg. Enginn aðgangseyrir er á há- tíðina og hún er opin öllum. Há- tíðin hefst kl. 13 og stendur til kl. 17. Hátíð Nemendur í japönsku máli og menningu taka á móti gestum á Háskólatorgi. Japanshátíð á Háskólatorgi Morgunblaðið/Ómar FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2012 Hin árlega Rask-ráðstefna um íslenskt mál og almenna málfræði verður haldin í 26. skipti á morgun, laugardag- inn 28. janúar. Hún fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminja- safnsins og hefst kl. 10. Ráðstefnan er opin öllu áhuga- fólki um mál og málvísindi og eru stúdentar sérstaklega hvattir til að mæta. Að ráðstefnunni standa Íslenska málfræðifélagið og Málvísindastofnun Háskóla Íslands. Haldnir verða níu fyrirlestrar um ýmis efni er varða mál og málnotkun. Í síðustu málstofunni, sem m.a. fjallar um íslenskt táknmál, verður boðið upp á tákn- málstúlkun og er það nýjung á Rask-ráðstefnum. Frekari upplýsingar eru á vefsíðu málfræðifélagsins, málfræði.is. Ráðstefna um íslenskt mál Orðabækur eru gagnlegar. STUTT Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is 70% afsláttur Verðhrun á útsölu allar útsöluvörur með 70% afslætti Umm ... beikonbragð! Kartöflugratín með beikoni er fljótlegt og auðvelt í matreiðslu. Þú rífur einfaldlega plastfilmuna af bakkanum, stráir osti yfir og það tekur aðeins 20 mínútur að hita kartöflugratínið í ofni. Auðveldara getur það ekki verið! Kartöflugratín - alltaf ljúffengt – íslensk gæði eftir þínum smekk! N ýt t Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is 20% aukaafsláttur af öllum útsöluvörum Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins fer fram föstudaginn 27. janúar í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík. Dagskrá: 20:00 Húsið opnað, pönnukökur og kaffi. 20:40 Dagskrá hefst: Ræðumaður kvöldsins verður Haraldur Leifsson. Tónlistin verður að vanda í höndum heimamanna og veislustjórinn er sjálfur tónlistarmaðurinn, bóksalinn og fyrrum varabæjarfulltrúinn Kristján Freyr Halldórsson. 22:30 Dansleikur. Miðaverð: 2.500 kr. Miðasala við innganginn og í Iðnó í síma 562 9700. Ísfirðingafélagið. Jóhann Hauksson blaðamaður hefur verið ráðinn til forsætisráðuneyt- isins sem upplýsingafulltrúi ríkis- stjórnarinnar. Í tilkynningu segir að hann sé ráðinn samkvæmt laga- heimild með sama hætti og að- stoðarmenn ráð- herra. Aðstoðar- menn sem eru ráðnir samkvæmt þeim lögum gegna störfum fyrir ráðherra svo lengi sem ráðherra ákveður, þó ekki lengur en ráðherra sjálfur. Jóhann er menntaður félags- fræðingur og hefur unnið sem frétta- og blaðamaður frá árinu 1986 á fjölmörgum fjölmiðlum, lengst sem fréttamaður og dag- skrárstjóri hjá RÚV. Jóhann er kvæntur Ingveldi G. Ólafsdóttur. Í byrjun árs 2010 var auglýst eftir upplýsingafulltrúa forsætisráðu- neytisins og kom fram í fréttum RÚV að 37 manns hefðu sótt um starfið. Umsækjendur voru, a.m.k. sumir, boðaðir í viðtöl og nöfn þeirrra birt opinberlega, eins og oft er gert þegar sótt er um opinber störf. Í júlí var á hinn bóginn greint frá því að hætt hefði verið við að ráða í starfið. Ástæðan var m.a. sögð viðleitni ráðuneytisins við að ná að- haldsmarkmiðum í rekstri á árinu. Þá væru starfsmannamál stjórn- arráðsins í skoðun, m.a. í tengslum við breytingar sem miðuðu að því að auka aðhald og sveigjanleika í starfsmannahaldi. runarp@mbl.is Upplýsingafulltrúi ráðinn aðstoðar- maður Jóhann Hauksson - nýr auglýsingamiðill 569-1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.